Fréttablaðið - 15.05.2017, Page 38
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is,
Hafsteinn Hafsteinsson hafsteinn@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI
512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Jóhann Waage johannwaage@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Ólafur H. Hákonarson olafurh@365.is, FÓLK OG
SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is,
Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
Afgreiðslutími Rvk
Mánudaga til föstudaga kl. 10–18
Laugardaga kl. 11–17
Sunnudaga kl. 13–17 (Smáratorgi)
www.dorma.is
Holtagörðum, Reykjavík
Smáratorgi, Kópavogi
Dalsbraut 1, Akureyri
Skeiði 1, Ísafirði
DORMA KYNNIR
Eftir áralanga þróun og prófanir
höfum við náð markmiði okkar.
Við höfum búið til eina
þróuðustu dýnu heims.
Simba tvinndýnan er gerð úr einstakri
samsetningu 2500 keilulaga gorma
og móttækilegum minnissvampi.
Fáðu betri svefn
– sama hvert svefnmynstur þitt er.
90 x 200 cm 74.990 kr.
120 x 200 cm 89.990 kr.
140 x 200 cm 99.900 kr.
160 x 200 cm 114.990 kr.
180 x 200 cm 129.900 kr.
Simba dýnurnar eru fáan
legar í eftrtöldum stærðum
Komdu og
kynntu þér Simba
í næstu Dormaverslun eða á
www.simbasleep.is
Örugg skemmtun á að vera í fyrirrúmi í skemmtanabransanum og þannig er það svo sannarlega hjá okkur
á Secret Solstice,“ segir Þórunn Ant-
onía, sem vinnur fyrir tónlistarhá-
tíðina, en hún fékk nýverið þá hug-
mynd að láta útbúa sérstaka límmiða
sem límdir eru ofan á glös og koma í
veg fyrir að hægt sé að lauma nauðg-
unarlyfi ofan í þau. Skemmtistaðirnir
Prikið, B5 og Dillon ætla að taka þátt.
„Hugmyndin kviknaði út frá sorg
og vanmáttarkennd stúlku sem
er mér afar kær og var byrlað lyf á
skemmtistað og nauðgað. “
Var sem betur fer bjargað
„Svo eins og öll þjóðin fylgdist ég
grannt með Birnu Brjánsdóttur
harmleiknum. Það sem sló mig var
að ég upplifði að henni hefði verið
byrlað þegar ég horfði á myndskeið
af henni sem kom í fréttamiðlum,
kannski var það ímyndun í mér en
það minnti mig á tilfinningu sem ég
sjálf hafði upplifað þegar ég var yngri
og fékk eitthvað út í drykkinn minn á
skemmtistað í London. Þá var fyrsta
tilfinning mín þyngsli í fótunum, svo
algjört minnisleysi. Sem betur fer var
mér bjargað. Vinur minn vann sem
dyravörður á skemmtistað þegar
ókunnur maður var að bera mig út,
sagðist vera kærastinn minn. Hann
var stöðvaður og mér komið í örugga
höfn. Ég var heppin að þarna var ein-
hver með opin augun. En þetta snýst
ekki um mig eða mína sögu, heldur
allar þessar sögur sem maður heyrir
aftur og aftur,“ útskýrir Þórunn Ant-
onía.
„Sama dag og ég heyrði af máli
ungu konunnar sem er mér svo kær
tók ég við störfum sem kynningar-
stjóri Secret Solstice. Þá vorum við
Sveinn, samstarfsmaður minn, að tala
um hversu algengt og sorglegt þetta
væri, þessar djammsögur. Sjálfur
deildi hann sinni sögu af miklu hug-
rekki í druslugöngunni fyrir nokkru
og þessi málefni eru honum hug-
leikin. Við í teyminu vorum á leiðinni
á fund með auglýsingastofu og vorum
að kasta fram hugmyndum og þá kom
þetta, mér datt í hug að láta búa til
filmu eða miða sem fólk getur sett yfir
drykkinn sinn. Þar sem við erum að
fara að prenta límmiða og alls konar
á annað borð, af hverju ekki að búa
til eitthvað sem eykur öryggiskennd,
skapar umtal og samstöðu? Því fleiri
sem opna augun og fylgjast með og
láta sig hag annarra varða, því betra,“
segir Þórunn sem þykir sorglegt að
þörf sé á þessu verkefni.
„Við ættum auðvitað ekkert að
þurfa að vera að pæla í svona löguðu,
það er í raun fáránlegt. En stað-
reyndin er sú að það er fólk sem er
að gera þetta af ásettu ráði sem er
enn þá fáránlegra og flestum algjör-
lega óskiljanlegt. Rétt eins og við
ættum ekkert að þurfa að læsa bílum
eða heimilum okkar af ótta við að
það brjótist einhver inn, en þurfum
samt að gera það. Það er til fólk sem
stelur og það er til fólk sem byrlar og
nauðgar. Það er sorglegt en satt.“
Við eigum að passa hvert annað
„Þetta er bara fyrsta prent og tilraun
sem við gerðum í samstarfi við PMT
prent. Þeir gáfu okkur 10.000 miða til
þess að styrkja málstaðinn og ég vil
endilega að barir, veitingahús og úti-
hátíðir hugsi um að láta prenta svona
límmiða.“
Þórunn vonast til að verkefnið
verði til þess að fleiri geti skemmt
sér vel. „Fólk skemmtir sér betur ef
það veit að það er gæsla og öryggi
og kannski er þetta ágæt viðbót við
það. Ég veit að þetta er kannski ekki
lausn en þetta er hugmynd og ég er
að reyna að skapa umtal og vitundar-
vakningu um að við eigum að passa
hvert annað.“
„Ef einhver er ofurölvi þá á maður
að bjóða fram hjálp. Þú gætir verið
að bjarga lífi. Ábyrgðin er ekki bara
þeirra sem drekka úr glasinu heldur
allra í kring. Ef þú sérð eitthvað, láttu
það þig varða.“
Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhann-
esson, er verndari verkefnisins og
tekur þátt í að vekja athygli á því.
„Ég settist eiginlega niður harmi
slegin og full af eldmóði eftir að ég
heyrði sögu um fjölskyldumeðlim og
sendi forsetanum bréf með einlægri
beiðni um hjálp til að varpa ljósi inn
í þennan myrka veruleika, hvort hann
vildi vera með í þessari vitundar-
vakningu. Hann bókaði mig á fund og
vildi standa með mér og okkur í þessu
verkefni. Ef það er hægt að varpa ljósi
á eitthvað sem þarf að tala um, þá á
maður að gera það þó óþægilegt og
erfitt sé.“ gudnyhronn@365.is
Eru saman í liði
gegn nauðgunum
Þórunn Antonía Magnúsdóttir vill koma í veg fyrir að fólki séu
byrluð nauðgunarlyf. Hún lét gera límmiða sem settur er ofan á glös.
Guðni Th. er verndari verkefnisins. Dillon, B5 og Prikið taka þátt.
Þórunn Antonía heimsótti Guðna Th. á föstudaginn og sýndi honum límmiðana. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
Hugmyndin kvikn-
aði út frá sorg og
vanmáttarkEnnd stúlku
sEm Er mér afar kær og var
byrlað lyf á skEmmtistað
og nauðgað.
1 5 . m a í 2 0 1 7 m Á N U D a G U R22 l í f i ð ∙ f R É T T a B l a ð i ð
1
5
-0
5
-2
0
1
7
0
4
:4
8
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
C
D
A
-1
C
0
4
1
C
D
A
-1
A
C
8
1
C
D
A
-1
9
8
C
1
C
D
A
-1
8
5
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
4
0
s
_
1
4
_
5
_
2
0
1
7
C
M
Y
K