Norðurslóð - 16.12.1992, Side 12

Norðurslóð - 16.12.1992, Side 12
12 — NORÐURSLÓÐ Jóhann Antonsson: Jóhann og Solveig á Ytra- Hvarfi * A undanförnum árum hafa ættarmót færst mjög í vöxt. Fólk kemur saman og minnist forfeðra sinna. í slíkum tilfell- um er þeirra sérstaklega minnst sem teljast ættfaðir og ættmóðir þeirra sem saman eru komnir. Á einu slíku móti var hjónanna Jóhanns Jóns- sonar og Solveigar Jónsdóttur frá Ytra-Hvarfí minnst. Les- endur Norðurslóðar muna vafalaust eftir dagbók Jó- hanns á Hvarfí sem birtist hér í blaðinu fyrir nokkrum árum. Það sem hér fer á eftir er nokkuð stytt umfjöllun um þau hjón sem flutt var á móti niðja þeirra í sumar. Það var mannmargt á Ytra-Hvarfi í Svarfaðar- dal þann 1. júní 1864. Tilefnið var að þá voru gefin saman í hjónband Jóhann Jónsson á Ytra- Hvarfi og Solveig Jónsdóttir frá Dæli. Veisla þessi var lengi í minnum höfð vegna þess hve margir komu til að fagna brúðhjónunum og hve vel var veitt. Þess má til gamans geta að ræða sem haldin var til heiðurs brúðhjónunum hefur varðveist og er geymd á Héraðskjala- safninu á Dalvík. Jóhann var yngri af tveimur bömum Jóns Þórðarsonar og Þóru Sigurðar- dóttur á Ytra-Hvarfi. Jón hafði látist fjórum árum áður, en Þóra staðið fyrir búinu upp frá því. En með brúðkaupi sonarins var lagður grunnur að því að hann tæki við Hvarfsbúinu hvað og varð. Solveig var yngst fimm bama Dælishjónanna Jóns Sigurðssonar og Oddnýjar Sigfúsdóttur. Efnahagur heimilanna á Ytra-Hvarfi og Dæli var góður á mælikvarða þessa tíma. Jó- hann og Solveig vom því ekki alin upp við þá sám örbirgð sem var hlutskipti margra þá. Þau vom svo sem heldur ekki alin upp við ríki- dæmi en vafalítið hafa þau notið þess þegar þau hófu búskap að foreldrar þeirra vom í sæmilegum efnum. Ytra-Hvarf var þá og er enn talin meðal betri jarða í Svarfaðardal. Landrými hefur alla tíð verið þar gott ekki síst þegar það er haft í huga hversu þéttbýll Svarf- aðardalur hefur verið. Um fyrstu búskaparár Jóhanns og Solveigar em litlar heimildir. Jóhann varð 28 ára gamall árið sem hann tók við búinu á Ytra-Hvarfi en Solveig 24 ára. Hvomgt þeirra hafði fengið skólamenntun á yngri ámm enda almenn skólamenntun ekki komin á þeim tíma. í raun og vem tileinkuðu unglingar þess tíma sér ein- ungis verklag þeirra fullorðnu og bjuggu sig undir lífsbaráttuna eins og kynslóðimar á und- an höfðu gert. Kyrrstaða bændsamfélags ár- hundmðin á undan náði fram til daga Jóhanns og Solveigar á Hvarfi. Hins vegar vom teikn á lofti um að hún væri að rofna. Ögrun erlendis frá Kyrrstaðan var rofin með ögmn erlendis frá. Frelsisalda hafði risið í Evrópu í byrjun 19. aldar og fór ekki hjá því að Islendingar sem vom við nám í Kaupmannahöfn á þessum ámm drykkju í sig þessa strauma. Síðan miðl- uðu Hafnarsúdentar löndum sínum hér heima þessum áhrifum með skrifum í tímarit og blöð sem þeir réðust í að gefa út. Þeir settu þessa al- þjóðlegu vakningu í samhengi við aðstæður hér og blésu kjarki í þjóðina með hugvekjum og ættjarðarljóðum. í raun og vem vom upp tvær meginstefnur. Annars vegar lýðræðisstefna sem boðaði aukið frelsi fyrir einstaklingana til orða og athafna. Hún birtist í kröfu um annnars konar uppbygg- ingu stjómsýslu en var og að brjóta niður ein- veldi konunga og völd lénsherra og aðalsins. Einnig var verslunarfrelsi ríkur þáttur í þeirri stefnu. Hins vegar var þjóðemisstefna sem lagði áherslu á aukið frelsi fyrir hverja þjóð að vera sjálfstætt riki og frjáls undan yfirráðum annarra ríkja. Auðvitað skömðust þessar stefn- ur víða og sameiginleg var krafan um aukið frelsi. I vakningarskrifum Hafnarstúdenta blönduðust þessar tvær stefnur saman enda verið að berjast í senn fyrir auknum lýðréttind- um og meira sjálfstæði þjóðarinnar. Það má þó greina á milli sjálfstæðishetjanna frá miðbiki og síðari hluta 19. með tilliti til þessara stefna. Fjölnismenn og rómantísk skáld boðuðu í anda þjóðemisstefnunnar en Jón Sigurðsson og aðrir praktískir stjómmála- menn unnu í anda lýðræðisstefnunar. Það kann að koma einhverjum undarlega fyrir sjónir að þjóðfrelsishetjan Jón Sigurðsson hafi ekki unnið í anda þjóðemisstefnunnar, en að því marki sem hægt er að greina þama á milli er það nú samt svo. Áhrifin í Svarfaðardal En á þessi upprifjun eitthvert erindi í umfjöll- un um Jóhann og Solveigu á Ytra-Hvarfi? Ég tel tvímælalaust svo vera. Þetta skýrir um margt lífshlaup þeirra. Það hefur verið sagt um þau að bæði hafi þau verið fróðleiksfús í meira lagi. Og af lestri dagbókar Jóhanns sem hann hélt á ámnum 1888 til æviloka 1901 má ráða að hann hefur fengið mörg af þeim blöðum sem gefin vom út. Mjög líklegt er að hann hafi snemma kynnst skrifum þessara manna og þau hafi mótað viðhorf hans og gerðir. Það er létt- ara að fullyrða þetta um Jóhann en Solveigu því hann var í mörgum framfaramálum ger- andi og sýndi í verki hver áhrifin vom, en mér dettur ekki í hug að halda því fram að þessu hafi ekki verið eins farið með Solveigu. Margt bendir til þess að Jóhann hafi hrifist af málflutningi Jóns Sigurðssonar. í það minnsta hlýðir hann kalli og tekur fomstu fyrir sveitungum sínum þegar Jón hvatti til alhliða uppbyggingar í hverri sveit. Verslunarmálin vom honum alla tíða afar ofarlega í huga, það fer ekki á milli mála við lestur dagbókar hans. íslendingar höfðu öðlast verslunafrelsi 1855. Varð það til þess að í raun gátu íslendingar far- ið að taka verslunarmálin í sínar hendur án þess að upphaf og endir þeirra mála væri í Kaupmannahöfn. Gránufélagið undir fomstu Tryggva Gunnarssonar em fyrstu samtökin á verslunarsviðinu hér fyrir norðan. Þar skipar Jóhann sér í sveit og fer fyrir Svarfdælum í því félagi. Þegar best lét áttu 32 bændur af 89 hér í Svarfaðardal hlut í Gránufélaginu. Þetta var árið 1872 og eins og áður segir kom Jóhann á Hvarfi fram fyrir þá við félagið. Sauðasala til Bretlands Afurðasala heimilanna á þessum tíma var með talsvert öðm sniði en við þekkjum í dag. Um var að ræða ýmsar vömr unnar úr ull og lítils- háttar af öðmm landbúndbúnaðarvömm. Sjáv- arfang virðist að mestu hafa verið notað á heimilunum en minna sem verslunarvara. Öll viðskipti vom vömskipti. Með verslunarfrels- inu hefjast viðskipti við Bretland. Um 1870 er farið að selja sauði á fæti héðan þangað. Fyrir- komulagið var að Bretar keyptu tveggja til þriggja vetra fé og fluttu það lifandi út með skipum. Féð var sett á beit þegar út var komið og það fitað áður en því var slátrað. Þá fór að þekkjast að menn fengju greitt með peningum. Markaður var settur upp í sveitinni þar sem er- lendir kaupmenn eða umboðsmenn þeirra komu og buðu í sauðina. Sauðasala til Bretlands leggst af fyrir alda- mót. Bretar settu á það sem í dag væri líklega kallað tæknilegar viðskiptahindranir sem gerðu það að verkum að þetta varð ekki hag- kvæmt. Viðskiptahindranimar vom þannig að bannað var að ala sauðina á Bretlandi svo slátra varð þeim um leið og skipið kom þar að landi. Þetta þýddi að kjötið var lélegra en áður og stóðst ekki samkeppni við aðra matvöm. Það er hægt að skynja það við lestur dagbókar Jóhanns hversu áföll í sauðasölunni skiptu miklu hér í Svarfaðadal þegar þau fóm að koma fram á ámnum milli 1890 og 1900. Frelsið til verslunnar nægði ekki eitt þegar ýmsar aðrar hindranir vom settar upp. Svartur sjór af síld A ámnum upp úr 1870 koma Norðmenn hér í Eyjafjörðinn til að veiða sfld og vinna. Aðset- ur þeirra var að vísu ekki hér við sandinn held- ur meira í Hnsey og á Árskógsströnd. Engu að síður hafa Svarfdælir fengið vinnu við verkun- ina og um leið séð hvers konar verðmæti hægt var að gera úr sjávarfangi. I fyrstu tóku lands- menn Norðmönnum vel en smátt og smátt fór mönnum að mislíka að útlendingar væm að moka upp sfldinni fyrir framan augun á þeim en hér skorti þá verkþekkingu, tæki og síðast en ekki síst peninga til að gera það sem Norð- mennimir vom að gera. I bók Birgis Sigurðssonar, Svartur sjór af síld, má lesa sögu af manni úr Svarfaðardal sem þar er kallaður Galdra-Villi. Hann var í sfld hjá Norðmönnum í Hrísey 1884. Hatrið á útlendingum var þá orðið mikið. Lenti Villi þessi í útistöðum við Norðmennina svo til handalögmála kom. Sagan segir að hann hafi þá farið með bölbæn og sagt: Það vildi ég að hann ryki upp með storm sem þeytti öllum þessum bátum ykkar og nótum til andskotans. Það er ekki að orðlengja það, að stormurinn kom skömmu síðar og var svo ofsafenginn að bátar fuku upp á land og brotnuðu í spón. Alls fómst 12 norsk skip og þrjú íslensk sem Norð- mennimir höfðu á leigu. Þegar lægði hófu Norðmennimir mikla leit að Galdra-Villa en hann faldi sig í hlöðu í Hrísey og var síðar róið með hann á laun til lands. Sagan er líka sögð í Dalvíkursögu og þar kemur fram að Galdra- Villi mun hafa verið Viljálmur Einarsson síðar Þessar myndir af hjónunum Jóhanni Jónssyni og málari. bóndi á Bakka í Svarfaðardal og útaf honum em komnir í það minnsta hrekkjóttir menn ef ekki göldróttir. Mér segir svo hugur að þau Ytra-Hvarfs- hjón hafi snemma gert sér grein fyrir að miklar breytingar vom að verða í íslensku þjóðlífi. Sex ámm eftir að þau hefja búskap er Jóhann skipaður hreppstjóri sveitarinnar. Fyrst í stað með öðmm en síðar einn. Þetta er árið 1870. Þá var ekki komin nein sveitarstjóm eða hrepps- nefnd heldur var hlutverk hreppstjórans það sem síðar varð hreppsnefndar. Með nýrri stjómarskrá 1874 verður breyting á starfi hreppstjórans þegar ákveðið er að kjósa sér- staka hreppsnefnd. En breytingin verður ekki mikil fyrir Jóhann þar sem hann var kosinn í hreppsnefndina og hafði þar forustu. Á sama tíma var komið á sýslunefndum - eins konar héraðsstjómum - og var Jóhann fulltrúi Svarf- aðardals í sýslunefnd Eyjafjarðarsýslu svo til frá upphafi og um tuttugu ára skeið. Af framfaramálum Eins og kunnugt er var minnst 1000 ára afmæl- is íslandsbyggðar árið 1874. Konungurinn kom og heimsótti landið, og þjóðin fékk nýja stjómarskrá. Víða um land vom hátíðarhöld. Meðal annars vom hátíðarhöld hér í Svarfaðar- dal. Það er álit mannna að hátíðarhöldin hér hafi verið mikil hvatning fyrir Svarfdæli um að hefja uppbyggingarstarf hér í sveitinni. Hátíð- in þótti takast einstaklega vel og er til dæmis sagt ýtarlega frá henni í Öldinni sem leið, und- ir fyrirsögninni „Hátíðarhöld með sérkennileg- um, þjóðlegum blæ“. í Dalvíkursögu er skemmtileg frásögn af henni. Mikil vakningar- alda reis í framhaldi af þjóðhátíðarhöldunum og atburða þessa þjóðhátíðarárs ekki síður í Svarfaðardal en annars staðar og var Jóhann þar í farabroddi. Rétt er að geta sérstakleg þriggja framfaramála. Heimildir em til um að nágranni Ytra- Hvarfshjóna, Þorsteinn Þorkelsson skáld frá Syðra-Hvarfi, skrifaði sveitungum sínum dreifibréf þar sem hann hvetur til stofnunar Lestrarfélags og býður að gefa bækur sínar til að koma þessu þjóðþrifamáli af stað. Vafalaust hefur hann rætt þetta framfaramál við Jóhann nágranna sinn, í það minnsta unnu þeir saman að stofnun Lestrafélagins sem varð að vem- leika 1879, eitt hið fyrsta sinnar tegundar í sveit hér á landi. Jóhann hafði síðan forgöngu um stofnun Sparisjóðs Svarfdæla en hann var stofnaður 1884. Eins og fram kom fyrr kynntust bændur fyrst peningum að einhverju marki þegar sauðasalan hófst til Bretlands. Þess fer að gæta hér upp úr 1880. Sparisjóðir höfðu þá nýlega verið stofnaðir á nokkmm stöðum á landinu, sá fyrsti 1868. Það mun hafa verið Jón Sigurðs- son sem fyrstur hvatti til stofnunar sparisjóða með grein í Nýjum félagstíðinum 1850. Eins og kunnugt er kom síðan fyrsti íslenski bank-

x

Norðurslóð

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.