Norðurslóð - 16.12.1992, Síða 24

Norðurslóð - 16.12.1992, Síða 24
Haustlauf. Mynd: Lene Zachariassen TÍMAMÓT Skírnir 21. nóvember var Sólveig Eir skírð í Dalvíkurkirkju. Foreldrar hennar eru Agnes Matthíasdóttir og Jóhann Magnússon, Lynghól- um 8, Dalvík. 5. desember var skírð í Dalvíkurkirkju Ingunn Júlía. Foreldrar hennar eru Sigrún Rósa Haraldsdóttir og Tómas Viðarsson, Keilu- síðu 9 e, Akureyri. Hjónavígsla 21. nóvember voru gefin saman í hjónaband í Urðakirkju Anna Lísa Stefánsdóttir og Magnús Porsteinn Jónasson, Koti, Svarf- aðardal. Afmæli Agúst Bjarnason vistmaður á Dalbæ varð 75 ára 25. nóv sl. Guðrún Þorsteinsdóttir húsfreyja Hálsi varð 75 ára 4. des. sl. Hjalti Haraldsson bóndi Ytra-Garðshorni varð 75 ára 7. des. s.l. Andlát 26. nóvember lést á Dalbæ, dvalarheimili aldr- aðra, Dalvík, Jónína Jóhannsdóttir. Jónína fæddist á Búrfelli í Svarfaðardal 1. maí árið 1907, þriðja bam hjónanna Þuríðar Jóhannesdóttur og Jóhanns Þ. Jónssonar. Elsta bam þeirra hjóna dó nýfætt en 6 komust til fullorðinsára. Þau eru auk Jónínu: Ingibjörg sem nýlega er látin, Pálmi er býr á Dalvík, Ari er býr á Akureyri, Jóhannes er býr á Dalvík og Hörður sem er látinn. Jónína ólst upp á Búrfelli og átti þar heimili allt til ársins 1945. 15. nóvember það ár gekk hún í hjónaband með Sigurvini Sigur- lijartarsyni frá Skeiði og hófu þau búskap þar á bæ ásamt bróður Sigurvins. Margt var í heimili á Skeiði og einnig komu þangað nrargir og dvöldu um lengri eða skemmri tíma. Var ætíð gott að koma til Jónínu en hún tók öllum opnum örmum og vildi öllum lið- sinna. Hún fór ekki víða en hafði gaman af því að vera með fólki og oftar en ekki var hún brosandi og sá gjarnan spaugilegu hliðar mála. 1973 fluttu þau hjón hingað til Dalvíkur ásamt Þuríði dóttur sinni og fjölskyldu og Kristínu systur Sigurvins og áttu heimili að Karlsbraut 18.Sigurvin lést vorið 1987 en Jónínabjó áframíKarls- brautinni þangað til hún flutti á Dalbæ, ásamt Kristínu, í október 1991. Þar á heimilinu lést hún 26. nóvember s.l. 85 ára að aldri. Jónína var jarðsungin frá Dalvíkurkirkju 5. desember. FRÉTTAHORNIÐ Mikil gróska er í tónlistarlífinu á Dalvík og nágrenni um þessar mundir. Við sögðum í síð- asta blaði frá afrekum Kirkjukórs Dalvíkur í höfuðborginni, en það er margt fleira að gerast. Laugar- daginn 21. nóvember var stofnað listvinafélag við utanverðan Eyja- fjörð sem hlaut nafnið Utlist og í tengslum við það voru haldnir nokkrir tónleikar. Þar á meðal fyrstu opinberu tónleikar Tjamar- kvartettsins í Dalvíkurkirkju. (Að vísu „debúteraði“ kvartettinn með óopinberum tónleikum í Tjamar- kirkju, enda vart við hæfi að hefja tónleikaferilinn í öðrum sóknum.) Með kvartettinum léku þeir Einar Arngrímsson og Daníel Hilmars- son í nokkrum lögum. Einbeittir blásarar leika jólalögin á föndurdegi Dalvíkurskóla. Mynd.-þh Tjarnarkvartettinn „debúteraði“ í Dalvíkurkirkju en hann er skipaður þeim Kristjáni og Hjörleifi Hjartarsonum, Kristjönu Arngrímsdóttur og Rósu Kristínu Baldursdóttur. Mynd: Bæjarpósturinn/hk. Astofnfundi Utlistar léku nokk- ur ungmenni á lúðra, en þau era í lúðrasveit sem skipuð er bömum og unglingum frá Dalvík, Svarfaðardal, Árskógsströnd og Ólafsfirði. Þessi sveit hefur æft um tveggja ára skeið, fyrst undir stjóm Michaels Jacques en frá því í haust hefur Eiríkur Stephensen tónlistar- kennari stjórnað sveitinni. Hann er ekki með öllu ókunnugur lúðra- sveitum því hann stjórnaði Lúðra- sveit Reykjavíkur áður en hann fluttist norður. Lúð'rasveitin (sem enn hefur ekki hlotið neitt nafn) tók þátt í móti barnalúðrasveita af öllu Norðurlandi, frá Mývatnssveit vestur á Skagaströnd, sem haldið var á Blönduósi helgina 27.-29. nóvember sl. Þar voru saman- komnir á þriðja hundrað lúður- þeytara og blésu af miklum krafti. Æft var á föstudegi og laugardegi í þremur hópum og á sunnudag léku þrjár 80 manna lúðrasveitir á tón- leikum í nýja íþróttahúsinu, auk þess sem hver sveit tók nokkur lög. Mótið fór hið besta fram nema hvað fólki fannst maturinn hefði mátt vera betri. Og á heimleiðinni var vegurinn ein glæra svo ferðin tók helmingi lengri tíma en vant er. En allir komust heim að lokum heilir á húfi og ánægðir með fyrsta ferðalag lúðrasveitarinnar. Heim komin lék lúðrasveitin að sjálfsögðu fyrir gesti á fönd- urdegi í Dalvíkurskóla, en hann var haldinn 5. desember sl. Þar söng einnig bamakór undir stjóm Maríu Gunnarsdóttur tónmennta- kennara. Barnakórinn er nýstofn- aður og skipaður um 25 bömum. Nokkuð er um liðið síðan bamakór var starfandi á Dalvík og vonandi á hann langa og glæsta framtíð fyrir sér. Byrjunin lofar í það minnsta góðu. Og það er ekki hægt að skilja við tónlistarlífið á Dalvík án þess að minnast á söngdeildina sem starfrækt hefur verið við Tón- listarskóla Dalvíkur síðan í fyrra- haust. Þá byrjaði Rósa Kristín Baldursdóttir að kenna tíu full- orðnunt nemendum og árangurinn var það góður að nú hefur hún þrettán nemendur og fleiri eru á biðlista. Nemendatónleikar voru í kirkjunni í fyrravor og heyrst hefur að þeir verði einnig nú fyrir jólin. Föndurdagurinn í Dalvíkurskóla er orðinn að skemmtilegri hefð sem dregur að sér fleiri hundruð manns. Að þessu sinni var hann haldinn 5. desember. Byrjunin lofaði ekki góðu því skömmu eftir að húsið var opnað fór rafmagnið af bænum, auk þess sem færðin var þannig að rnenn þurftu helst að vera á klofstígvélum til að komast þurrunt fótum milli húsa. Engu að síður var skólinn troðfullur ailan daginn og lærðir jafnt sem leikir undu sér við að föndra og undirbúa jólahaldið. Einnig gæddu þeir sér á glæsilegum veitingum sem nem- endur 10. bekkjar seldu til styrktar ferðasjóði sínum. Hápunktur fönd- urdagsins var þó tvímælalaust þeg- ar Þórunn Bergsdóttir skólastjóri leysti Eirík Stephensen af og sveiflaði tónsprotanum yfir lúðra- sveitinni eins og hún hefði aldrei fengist við annað. .-V . |lf| kf?' _ ■ li ^: | 'é;:w Z I É María Gunnarsdóttir stjórnar barnakór Dalvíkurskóla. Mynd: -þh

x

Norðurslóð

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.