Norðurslóð - 13.12.1995, Page 3
NORÐURSLOÐ —3
Þorsteinn Skaftason:
Landslag yrði lítils virði
ef það héti ekki neitt
Örnefni í Bæjarfjalli og á Upsadal
Amyndina sem birt er í full-
um litum á baksíðu og í
smærri útgáfu hér við hlið-
ina vantar mörg ömefni og má þar
meðal annars nefna Mjóalæk og
Dýjalæk sem renna úr samnefnd-
um dölum. Stórhól niður undan
Stórhólshlíð. Djúpalæk framan
við Beitarhúshóla. Brunnklukku-
tjörn neðst í Beitarhúshólum, Sel-
hvamma niðri við Brimnesá fram-
an við Selhól. Háholt norðan
Stekkjarlautar og Kirkjuna, stór-
an stein í miðjum Melrakkadal. Þá
má einnig nefna Hornhúsmel þar
sem vatnstankar Dalvíkurbæjar
standa. Upsafjall, slægjulandið
neðan við Dýhall, Illviðrisblett
þar norðan við en sunnan Merkja-
lækjar (landamerkin milli Upsa og
Hóls), Brimnesblett norðan við
Merkjalæk, þar fyrir norðan Mar-
grétarklauf og Grettislág.
Fjallstoppurinn sem hæstur er
vestan Bjarkarkollu hefur að því er
virðist ekki haft neitt nafii þar til
Jónas Hallgrímsson frá Melum
skírði hann Halldór af sérstöku til-
efni. Kannski væri réttast að það
nafn festist í sessi.
Bæjarfjall hefur á seinustu ára-
tugum verið af mörgum nefnt
Upsafjall. Það nafn er þó ekki að
finna í ömefnaskrám Örnefna-
stofnunar né á landabréfum Land-
mælinga. heldur er þama kannski
ruglingur við nafn framhlaupsins
úr fjallinu sem heitir Upsi, eða
nafn kirkjustaðarins Upsa. Þeir
sem búið hafa næst fjallinu og alist
þar upp hafa aldrei verið í vafa um
hvert væri hið rétta nafn þess.
Þjóðsagnaritarinn Þorsteinn Þor-
steinsson smiður og bóndi á Ups-
um (fæddur 1825, dáinn 1912)
skrifar um 1865 Skýringar við ör-
nefni sem einkum tengjast Svarf-
aðardal. Þar segir hann eftirfarandi
um Upsir:
Upsir á Upsaströnd: Hefur verið
prestssetur til skamms tíma og er
þar kirkja og þjónar henni Tjarnar-
prestur. Þessi jörð var bústaður
Karls rauða og líklega byggð af
honum í fyrstu (svo segir í Land-
námu, 3. parti, 13. kapítula: „Karl
hét maður er nam Strönd alla upp
til Míganda (á að vera út til Míg-
anda)“. Er svo að sjá að höfundur
Landnámu hafi ekki verið viss í,
hvört það hafi verið Karl rauði,
sem nam Upsaströnd, en Upsa-
strönd er í landnámi Þorsteins
svörfuðs. Er það fyllilega greint í
Svarfdælu og mörg atvik í þeirri
sögu lúta að því, að Karl rauði hafi
haft umráð á Upsaströnd og búið á
Upsum, og er það eitt með öðm
sem stendur í sögunni: „Karl
kvaðst verða að fara til rétta út á
(Upsa)strönd“.
Tvímæli leika á því hvört bær-
inn Upsir standi nú þar sem hann
stóð í landnámstíð, því það hafa
gamlir menn mér sagt, að þeir hafi
heyrt af öðrum, þá gömlum mönn-
um, að bærinn hafi staðið til foma
upp í mynninu á Upsadal, sem er
stuttur spölur upp frá bænum Ups-
um, á svokölluðum Selhól. Þar eru
margar tóftarústir og girðingar. Þar
liggur djúpur gröftur eður vatns-
stokkur vestan í hæð heim undir
tóftirnar, langa leið framan úr læk,
sem runnið hefur í ána, og er
auðséð að þessi vatnsstokkur hefur
verið grafinn til að koma vatni
heim undir tóftimar. Þessi farveg-
ur er nú þurr og grasgróinn. Suður
undan tóftunum í árgilinu í djúpum
hvammi í brattri brekku móti suðri
er girðing í ferhyming hér um 15
faðmar á hvörn veg, eður lítið
mjórri út og suður, og er því líkust
að það hafi verið kornakur til
foma. Þessar tóftir eru nú kallaðar
Seltóftir, mýramar þar fyrir framan
Selmýrar og hlíðin eður fjallið upp
undan Selhlíð. Er af þessum nöfn-
um auðséð að sel hefur verið þar
einhvörn tíma, og má vel vera að
það hafi verið þar eftir að bærinn
var færður ofan fyrir dalinn, því
aðrar seltóftir eru framar á dalnum,
og er það mikið líklegra, að þar
hafi verið haft í seli, og hefur verið
mikið hæfilegra en það sem áður
er nefnt, því það hefur vart verið
ómaksins vert svo skammt frá bæ.
En hafi bærinn nokkurn tíma stað-
ið upp í dalnum, hefur hann mjög
snemma verið fluttur ofan, því
bæði sýnir það túngarðurinn, sem
sést að er mikið forn og líka þeir
stóru öskuhaugar sent eru hér, og
hefur mönnum þótt mikið hægra til
sjóar, því það er töluvert bratt upp
í dalinn frá bænum sem nú er. En
að öðru leyti hefur það verið betra,
að hann hafi staðið upp í dalnum,
því þar er mesta og besta landið og
meiri hluti af engi. Bærinn Upsir
hefur dregið nafn af hraunhæð
mikilli, sem sprungið hefur fram
úr fjallinu utan til við dalinn í fom-
öld og sest að nokkuð fyrir ofan
bæinn og er sú hæð kölluð Upsi,
og gat bærinn fengið það nafn eins
þó að hann hafi verið byggður í
fyrstu upp í dalnum, því þar hefur
hann þá staðið rétt sunnan undir
Upsahorninu. Fjallið, sem Upsinn
hefur sprungið úr, heitir Bœjar-
fjall.
Leiðrétting
I grein Þorsteins Skaftasonar sem
birtist í nóvemberblaði Norður-
slóðar var rangt farið með nafn á
gili sem sagt var heita Austurgil en
heitir að réttu Ausugil. Eru Þor-
steinn og lesendur beðnir velvirð-
ingar á þessu. Ritstj.
Blómleg útgáfustarfsemi
Grýtt var gönguleiðin
- Bók með epískum Ijóðum eftir Birnu Friðriksdóttur
komin út - Ljóðabók frá Sigfúsi
og jóladiskur Tjarnarkvartettsins
Fyrir skömmu kom út bók sem
mörgum Svarfdælingum og fleir-
um mun eflaust þykja býsna
áhugaverð. Bókin nefnist Grýtt
var gönguleiðiii og er höfundur
hennar Birna Friðriksdóttir fyrr-
um húsfreyja á Melum sem búið
hefur á Akureyri hin síðari ár.
Bókin er öll {bundnu máli en þó
er hér ekki um venjulega ljóðabók
að ræða. Hún er 160 blaðsíður að
lengd og eru í henni rúmlega eitt-
þúsund ferhendur sem mynda sam-
fellda frásögn. Það kallast víst ep-
ísk frásögn á máli bókmenntafræð-
innar. A bókarkápu segir að bálk-
urinn sé skáldverk, reynslusaga al-
þýðukonu sem fædd er á síðari
hluta 19. aldar og lauk lífsstarfi
sínu „á sauðskinnsskóm með sigg í
lófum“.
Bókin er gefin út á reikning höf-
undar og í takmörkuðu upplagi.
Verður hún væntanlega til sölu í
versluninni Sogni á Dalvík en
einnig er hægt að nálgast hana hjá
höfundi sjálfum og dætrum henn-
ar. Sími Svönu á Melum er 466-
1524 og sími Soffíu í Reykjavík er
567-5976 fyrir þá sem áhuga hafa.
Bima hefur að sögn kunnugra haft
þennan kvæðabálk í smíðum um
nokkum tíma og er eins víst að hún
lumi á fleira efni sem bíður birt-
ingar.
Fleiri útgáfufréttir
Það standa fleiri í bókaútgáfu hér
um slóðir. Sigfús Þorsteinsson á
Séra Jón Helgi
verður um kyrrt
Hauganesi sendi frá sér ljóðabók
nú í lok nóvember. Nefnist hún /
alvöru og án og hefur að geyma á
annað hundrað ljóða og lausavísna
á um 100 blaðsíðum. Eins og nafn-
ið bendir til skiptast Ijóðin í tvo
flokka en að sögn höfundar eru þau
flest frá síðustu 4-5 árum. Höfund-
ur gefur sjálfur út bókina í tak-
mörkuðu upplagi. Hún er til sölu í
bókaversluninni Sogni en einnig er
hægt að nálgast hana hjá höfundi.
Þá er komin út hjá bókaútgáf-
unni Vöku-Helgafelli bókin Hin
hljóðu tár, sem er ævisaga Ást Sig-
urbrandsdóttur skráð af Sigur-
björgu Árnadóttur frá Hærings-
stöðum. Sigurbjörg er sem kunn-
ugt er búsett í Finnlandi og á síð-
asta ári tók hún sér frí frá fréttarit-
arastörfum fyrir útvarpið til að
skrá sögu Ástu sem hefur búið þar
frá því eftir stríð.
Og enn ein útgáfufrétt: Tjarn-
arkvartettinn hefur sent frá sér
nýjan geisladisk með jólalögum og
er hann að koma í búðir þessa dag-
ana. Diskurinn nefnist A jólanótt
og hefur að geyma 18 jólalög,
bæði íslensk og erlend, sungin án
undirleiks. Utgefandi er Japis.
Kvartettinn mun halda jólatónleika
í Deiglunni á Akureyri 14. desem-
ber nk. og í Dalvíkurkirkju laugar-
dagskvöldið 17. desember kl. 22.
Fyrirtæki á
faraldsfæti
Ymsar breytingar hafa átt
sér stað í húsnæðismálum
fyrirtækja á Dalvík að und-
anförnu. Við það að verslan-
irnar Kotra og Ilex fluttu yfir
í Klemmuna losnaði húsnæð-
ið við Skíðabraut 3, gamla
Týról, sem Hallgrímur Ant-
onsson á og leigir út.
Hallgrímur hefur sótt urn til
bæjarstjómar að þar verði rek-
inn veitinga- og billjarðstofa
ásamt verslun og hefur bæjar-
stjóm fyrir sitt leyli samþykkt
erindið að uppfylltum skilyrð-
um heilbrigðis- og brunavama-
reglugerða.
I síðasta mánuði urðu maka-
skipti á eignum bæjarins og
björgunarsveitanna. Björgun-
arsveitin hefur fengið inni í
áhaldahúsi bæjarins og hefur
nú eignast þá aðstöðu í skiptum
fyrir Jónínubúð.
Nú hefur Pizza 67 sótt unt
leyfi til veitingarekstrar í Jón-
ínubúð eftir að Árni Júlíusson
festi kaup á Skíðabraut 4 sem
hýst hefur Pizza 67 um skeið.
Jón Helgi Þórarinsson sóknar-
prestur á Dalvík sótti á dögun-
um um prestsembætti á Akur-
eyri. Einnig sótti Svavar A. Jóns-
son um embættið en hann var
sem kunnugt er prestur á Ólafs-
flrði þar til nú í vor.
Sóknamefndum var sýnilega
mikill vandi á höndum að velja á
milli svo ágætra manna sem báðir
hafa verið afar vinsælir í starfi og
aflað sér báðir framhaldsmenntun-
ar. Fór svo að lokum að Svavar
fékk starfið og er ekki nokkur vafi
á því að sóknarböm Jóns hér um
slóðir hafa andað léttar yfir því.
I samtali við Norðurslóð sagðist
Jón alls ekki dapur þótt hann fengi
ekki embættið, fjölskyldunni liði
afskaplega vel á Dalvík og fólk hér
hefði reynst þeim frábærlega vel
gegnum tíðina. Ástæðuna fyrir því
að hann sækti burt sagði hann þá
helsta að hann teldi eðlilegt að
prestar með meiri starfsreynslu
gæfu kost á sér í hin stærri presta-
köll. Á Akureyri væru mörg
spennandi verkefni að fást við sem
vissulega freistuðu hans. Það var
hins vegar erfið ákvörðun að sækja
um starfið, þetta bar allt mjög brátt
að og hjá fjölskyldunni voru engar
slíkar breytingar á stefnuskránni.
Þetta kostaði því allmiklar vanga-
veltur. Fjölskyldan er nýflutt í nýj-
an prestbústað og á umsóknartím-
anum fæddist þeim hjónum þriðji
drengurinn. Þar að auki er Margrét
prestsfrú komin í nýtt og spenn-
andi starf svo þetta hefur alls ekki
verið viðburðalaust ár hjá þeim
hjónum.
„Okkur líður mjög vel yfir því
að fá að búa hér áfram við þessar
góðu aðstæður meðal vina okkar
eins og verið hefur,“ sagði séra Jón
Helgi að lokum.
hjhj
N ý 11 áskriftarár e r h afi ð
Lffið
á erindi við big
vofaldur hæsti vinmngur
Ymilljonir óskiptar
7 á einn miða 12. janúar
allir tniðar vinna
Einstakir aukavinningar:
Handritamöppur íslenskra rithöfunda
Hæstu vinningarnir ganga örttgglega út - oft tippliœkkaðir
Hvammstangi:
Róberta Gunnþórsdóttir,
Lækjargötu 6, sími 451-2468
Blönduós:
Kaupfélag Húnvetninga,
sími 452-4200
Skagaströnd:
Guðrún Pálsdóttir,
Bogabraut 27, sími 452-2772
Sauðárkrókur:
Friðrik A. Jónsson,
Háuhlíð 14, sími 453-5115
Hofsós:
Ásdís Garðarsdóttir,
Kirkjugötu 19, sími 453-7305
Siglufjörður:
Birgir Steindórsson,
Aðalgötu 26, sími 467-1301
Grímsey:
Kristjana Bjarnadóttir,
Sæborg, sími 467-3111
Ólafsfjörður:
Valberg hf„ sími 466-2208
Hrísey:
Erla Sigurðardóttir,
sími 466-1733
Dalvík:
Sólveig Antonsdóttir,
Verslunin Sogn.
sími 466-1300
Akureyri:
Björg Kristjánsdóttir,
Strandgötu 17, sími 462-3265
Svalbarðsströnd:
Sigríður Guðmundsdóttir,
Svalbarði, sími 462-3964
Grenivík:
Brynhildur Friðbjömsdóttir
Túngötu 13B, sími 463-3227
E "vtsÁ
HAPPDRÆTTI^Í
óbreytt miöaverð: 600 kr.
Mestu vinningslíkur í íslensku stórhappdrœtti
... fyrir lífið sjálft 1