Norðurslóð - 13.12.1995, Side 24
Bæjarfjall
Landslag yrði lítils virði
efþað héti ekki neitt
Ornefni í náttúrunni umhverfis okkur
eru óteljandi. Vart finnst sá hóll eða
lækur, sú laut eða brekka, það gil eða
leiti sem ekki á sér nafn. Þeim fer hins
vegar fækkandi sem þckkja þessi
örnefni. Öld fram af öld lærðist börnum
að þekkja örnefnin í umhverfi sínu nán-
ast jafnskjótt og þau lærðu tungumálið.
Nú er hins vegar öldin önnur. Náttúran
umhverfis okkur hcfur ekki sama vægi í
lífi fólks eins og undangenginna kyn-
slóða. Það er ekki lengur daglegt brauð
manna að huga að fé upp á Hrygg eða að
mannaferðum ofn Mýrar og smám
saman hverfa þeir af sjónarsviðinu sem
þekkja þessi nöfn og þau glcymast um
aldir alda.
Þorsteinn Skaftason á Dalvík hefur
lánað Norðurslóð þessa mynd til
birtingar þar sem hann hefur merkt inn
örnefni í Bæjarfjalli og á Upsadal.
Vonandi verður hún heimamönnum til
hvatningar að læra þessi gömlu nöfn og
þá ekki síður hvatning þeim sem búa yfír
þekkingu á örnefnum að hefja skráningu
á þeim, t.d. með þessum hætti.
- Sjá nánar á bls 3.
Hólshyrna
Merkjatunga
Bjarkarkolla
Dýjahnjúkur
Lágafjall
Mjóihnjúkur
Selhnjúkur
Grímudalur
Fiáandar Bæjarfij
Selhjúksvangi
Breiðató "'fe
Selstallur
Skógarbrekkur Neðsta-
6 skál
Kambur
Stórhólshlið
Reitur A
Hryggur
Krókhóll Hjallar
Dýhall
Selhlíð
Melrakkadalur
Beitarhúsahólar
Þórðar
enni
jÍS**' Selmýrar
Selhóll \
TímamóT
Andlát
Þann 22. nóvember andaðist á Borgarspítalan-
um í Reykjavrk Danícl Ágúst Daníclsson
fyrrverandi héraðslæknir í Árgerði á Dalvík.
Daníel fæddist að Hóli í Onundarfirði 21.
mar 1902. Foreldrar hans voru Daníel Bjama-
son smiður og útvegsbóndi og kona hans, Guð-
ný Kristín Finnbogadóttir. Þau bjuggu lengst á
Suðureyri við Súgandafjörð en fluttust til
Reykjavíkur 1930.
Daníel var næstyngstur sex systkina en af
þeim lifir nú aðeins yngsti bróðirinn Finnur sem var skipstjóri og
býr nú á Akureyri. Hin voru: Guðrún, ljósmóðir, Guðmundur Jón,
vélstjóri, Berta, húsfreyja, og Bjami, vélstjóri.
Daníel hóf læknisnám í Bandaríkjunum en lauk kandidatsprófi
frá Háskóla Islands 1935. Næstu árin var hann héraðslæknir á
ýmsum stöðum, svo sem Hesteyri og Siglufirði, en árið 1944 fékk
hann veitingu fyrir Svarfdælalæknishéraði með aðsetri á Dalvrk og
gegndi því embætti til 1972 þegar hann lét af embættisstörfum fyrir
aldurs sakir.
10. júní 1938 gekk Daníel að eiga Dýrleifu Friðriksdóttur ljós-
móður frá Efri-Hólum í Norður-Þingeyjarsýslu. Böm þeirra eru
Guðný, læknir, Friðrik, efnaverkfræðingur, og Bjarni, fram-
kvæmdastjóri Norræna menningarsjóðsins. Áður hafði Daníel eign-
ast Hörð Rafn, framkvæmdastjóra.
Þau Dýrleif byggðu sér hús í Árgerði og bjuggu þar upp frá því.
Dýrleif lést í júní í fyrra en eftir það bjó Daníel einn í húsinu.
Daníel var jarðsunginn frá Dómkirkjunni í Reykjavík 1. desem-
ber. Hans er minnst á bls. 2 hér í blaðinu.
sem/rr oáuwt, oy oasw/a/nö/wum um /anda//t
/estut ós/ur umnjt/eot/equó/
oyu/a/u/'//t /ioma/ic/i ár
Skírnir
18. nóvember var Kolbeinn Höður skírður á heimili sínu, Brim-
nesbraut 21 á Dalvík. Hann fæddist 9. júlí 1995. Foreldrar hans eru
Yrsa Hörn Helgadóttir (Þorsteinssonar) og Olafur Ragnarsson.
25. nóvember var Anna Rósa skrrð í Dalvíkurkirkju. Hún fæddist
4. nóvember 1995. Foreldrar hennar eru Ragnheiður Valdimars-
dóttir (Bragasonar) og Amar Már Amþórsson (Angantýssonar),
Dalbraut 6 á Dalvík. XT * - , •„
Norðursloð arnar heilla.
Svarfaðardalur-Akureyri:
Barn fæddist í sjúkrabíl
Ferðafélag Svarfdæla
Fjölskyldan á Steindyrum: Hjálmar, Gunnhildur og strákarnir þrír, Her-
bert, Jön Bjarki og litli bróðir.
Að sögn Ásu sýndu foreldramir
aðdáunarverða stillingu enda
Gunnhildur sjálf útlærð björgunar-
sveitarkona og búin að halda nám-
skeið fyrir björgunarsveitarmenn á
Dalvík í fæðingarhjálp. „Við áttum
hreint yndislega stund saman
þarna í bílnum,“ sagði móðirin í
samtalið við blaðið. „Bæði Ása og
Leifur eru góðir vinir okkar og ég
vissi að ég var í öruggum höndum.
Bíllinn er lrka mjög vel tækjum bú-
inn svo það var engin ástæða fyrir
mig að óttast."
KaRLAKÓR DaLVÍKUR Þann 1. desember hélt Karlakórinn tónleika í
Dalvíkurkirkju. Á efnisskrá voru ýmis sönglög, langflest íslensk og sum útsett
sérstaklega fyrir kórinn. Húsfyllir var í kirkjunni og gerðu áheyrendur mjög
svo góðan róm að söng kórsins. Einnig söng Már Magnússon nokkur lög á
tónleikunum. Undirleikari var Helga Bryndís Magnúsdóttir en stjórnandi
kórsins er Jóhann Ólafsson á Ytra-Hvarfi.
Aðfaranótt 23. október sl. fædd-
ist hjónunum á Steindyrum,
Gunnhildi Gylfadóttur og
Hjálmari Herbertssyni, 15
marka sonur við óvenjulegar
aðstæður í sjúkrabíl á leið til Ak-
ureyrar.
Atburðarásin var í stuttu máli
með þeim hætti að kl. hálffjögur
um nóttina vaknaði Gunnhildur
upp með fæðingarhríðir, vakti
bónda sinn og sagði honum hvers
kyns væri. Eldri drengimir tveir
voru fljótir í heiminn á sínum tíma
og því beið Hjálmar ekki boðanna
og hringdi hið snarasta í sjúkrabíl.
Leifur Harðarson sjúkrabílstjóri
var rétt kominn frá því að keyra
aðra konu á fæðingardeildina og
mæltist þeim svo til að þau hjónin
legðu af stað frá Steindyrum en
Leifur kæmi á móti þeim. Hafði
hann svo samband við Ásu Mari-
nósdóttur heilsugæsluljósmóður í
Kálfsskinni og beið hún inni á
Strönd eftir sjúkrabflnum.
Veður var hið versta, hvass
skafrenningur og hálka á vegum. Á
Holtsmóunum mættust bílamir og
þau hjónin skiptu urn bfl. Sjúkra-
bflnum var snúið við en vegna
slæmra akstursskilyrða var ekki
ekið greitt. Á Ströndinni var veðrið
sérstaklega slæmt en þar beið Ása
og slóst í förina.
Ása sér fljótt að ekki muni bfll-
inn ná til Akureyrar svo hún biður
Leif að leggja bílnum og koma til
að aðstoða við fæðinguna. Leifur
leggur bílnum við afleggjarann að
Fagraskógi og að nokkrum mínút-
um liðnum er bamið fætt, sprækur
og fallegur drengur, en útifyrir
ólmaðist stormurinn. Þá vantaði
klukkuna fimm mínútur í fimm og
hálfur annar tími tæpur frá því
hríðimar hófust.
Vetrardagskráin ákveðin
Ferðafélag Svarfdæla hélt aðal-
fund sinn þann 23. nóvember sl.
Þar var lögð fram vetraráætlun
félagsins sem hljóðar á þessa
leið:
Mánudagur 1. janúar kl. 13.00
Gönguferð fram í Stekkjar-
hús.
Sunnudagur 4. febrúar
Skíðagönguferð um Frið-
land Svarfdæla með áningu
í Hánefsstaðareit.
Laugardagur 2. mars
Skíðaferð niður Skíðadal
frá Hnjúki eftir fjallshlíð
niður í Hofsá.
Laugardagur 6. apríl
Skíðaferð kringum Skjöld-
inn, frá Atlastöðum fram
Skallárdal í gegnum Hvarf-
dalsskarð og Sandskarð
niður Sandárdal.
Sunnudagur 5. maí
Skíðaferð frá Ólafsfirði til
Siglufjarðar úr Skeggja-
brekkudal.
Eins og áður er fyrsta helgi
hvers mánaðar ferðahelgi hjá fé-
laginu en ef veður eða annað haml-
ar er stefnt á næstu helgi á eftir.
Sem fyrr reynir félagið að bjóða
upp á ferðir við hæfi sem flestra,
bama og fullorðinna. Sú hefð hefur
skapast að hefja árið með ferð í
Stekkjarhús og er að jafnaði mjög
góð mæting í þær ferðir enda má
líta á þær sem nokkurs konar
hreinsun andans og fagurt fyrirheit
fyrir komandi ár. Boðið verður upp
á kaffi í Stekkjarhúsum. Upplýs-
ingar um ferðir má fá hjá formanni
í síma 466-1554.
SÓLIN ER FARIN í FRÍIÐ SITT Myndin er tekin af síðustu sölargeislum
ársins í miðsveitinni 29. nóvember kl. 13.35.