Norðurslóð - 15.12.1999, Síða 2

Norðurslóð - 15.12.1999, Síða 2
2 — NORÐURSLÓÐ NORÐURSLOÐ Útgefandi: Rimar ehf. Ritstjórar og ábyrgðarmenn: Hjörleifur Hjartarson, Laugasteini. Sími 466-3370. Netfang: hjhj@ismennt.is Jóhann Antonsson, Dalvík. Netfang: joant@centrum.is Framkvæmdastjóri: Sigríður Hafstað, Tjörn. Sími 466-1555 Tölvuumbrot: Þröstur Haraldsson, Reykjavík. Netfang: throsth @ isholf.is Prentun: NORÐAN TVEIR Akureyri • S. 461 4522 María Móðir Guðs eg mœni á þig mitt er sollið hjarta. Bið eg þig að blessa mig benda mér áfæran stig. I Ijóma þínum leyfðu mér að skarta í Ijómanum þínum lát mitt hjarta skarta. Syni þínum, sem mér gaf siðareglu hreina. Honum sem sínu holdi af heiminum kœrleiksfórnir gaf Segðu honum óskina mína eina segðu hjartans óskina mína eina. Vil eg, þar sem gullblóm grœr götuna mínafinna Hjálpa mér til þess helga mœr hjartað meðan í mér slœr í kærleikanum kunni eg að vinna, í hreinum kœrleik kunni eg að vinna. Ingibjörg Bjarnadóttir Gert á aðventu 1998 TímamóT Brúðkaup og skírn Gefin voru saman í hjónaband í Dalvíkurkirkju þann 27. nóvember Helga Rún Traustadóttir (Þorsteinssonar) og Jóhann Gunnar Jóhannsson, til heimilis að Snægili 28 Akureyri. I þeirri sömu at- höfn var skírð dóttir þeirrra, Kristín Aðalheiður. Þann 13. desem- ber varð sjötugur Jóhannes Arskóg, Smáravegi 9, Dalvík. Afmæli Þann 14. desem- ber varð sjötugur Stefán K. Arnþórsson, Karlsbraut 21, Dalvík. Þann 24. desem- ber verður 100 ára Guðrún Björnsdóttir, nú til heimilis að Dalbæ, Dalvfk. Jólahug- leiðing „Verið óhrœdd því sjá eg boða yður mikinn fögnuð sem veitast mun öllum lýðum, þvíyður er í dagfrelsari fœddur, sem er Kristur Drottinn í borg Davíðs. “ Lúk. 2:10-12 Fæðing þessa bams var tímamótaviðburður í sögu mannkyns. Barn fæðist inn á jörðina, lítil yndis- leg vera, svo fögur svo hrein, svo fullkomin, eins og nýfædd börn eru. Þessi sonur Guðs Alföður, átti eftir, með lífi sínu og kenningu, að gjörbreyta viðhorfi milljóna manna, ekki aðeins til lífs og dauða heldur líka til grunnþátta mannlegra samskifta. Og þessi gjöf, þessi kenning munhalda gildi sínu um aldir alda. Okkur tekst misvel að feta þann veg sem Meistar- inn benti á, svo margbreytileg sem við erum að allri innri gerð. „Leitið og þér munuð finna,“ sagði hann. Finna, hvað átti hann við, átti hann við að við ættum að ganga á heimsenda til að finna ljós og frið, eða svokölluð lífsgæði? eða átti hann við að menn skyldu skoða í eigin barm? Mannssálin er svo víðfeðm, þar eru margar vistarverur, sem okkur er holt að skoða með íhygli. Sú skoðun á að geta fært okkur hamingju og innri frið, ef við gætum látið okkur skiljast, hversu stórkostleg gjöf lífið er. Þó enginn viti með vissu hvað Jesú sagði - nákvæmlega - og hvað hefur breyst í meðförum manna í aldanna rás, er það staðreynd að við sem segjumst vera kristin, eigum engan dýrmætari sjóð, en kenningar hans sem geymdar eru í Bíblíunni. „Það sem þér viljið að aðrir geri yður, það skuluð þér og þeim gjöra“, er þetta ekki stórkostlegur vegvísir, væri ekki himnaríki á jörð ef fólki tækist að fara eftir þessu? Og hvílík náðargjöf þessi fæðing. Islendingar réðu engu um það hvenær árs fæðingar- hátíðin skyldi haldin, en er það ekki merkilegt að þessi hátíðskuli hafa verið tímasett einmitt þegar dagurinn er stystur og myrkrið mest hjá okkur. Öll ljósin, gleðin og velvildin sem jólunum fylgir styttir okkur svo skammdegið. Hafið þið hugleitt hvemig jólahátíðin yrði, ef hún væri haldin um Jónsmessuleytið og hvem- ig skammdegið yrði ef engin jól væru. Fólk talar um gjafaflóð, vissulega er það gengið út í öfgar sumstaðar og of lítið á öðrum stöðum. Menn verða sjálfir að ákveða hvernig það er haft, og svo ræðst það af ytri að- stæðum. En er ekki bros, hlýleg orð, heimsóknir kveðjur og óskir um gleðileg jól líka gjafir, þær geta allir gefið. Stærsta gjöfin verður alltaf fæðing bams- ins okkar. Þetta líf sem er eilíft kraftaverk. Gefum okkur tíma til að taka við og njóta þessarar gjafar, skoða hana frá eins mörgum hliðum og okkur er unnt. Finna lífsspekina, kærleikann og friðinn sem hún færir okkur. Það er enginn staddur á svo skugga- legum stað í tilverunni, að ljós kærleikans komist ekki inn, ef fólk vill bara opna og hleypa því að. Gleðileg jól. Ingibjörg Bjarnadóttir, Gnúpufelli, Eyjafirði Fiðlarinn afDalvík William Butler Yeats Þýðing: Karl ísfeld Ég er fiðlarinn frœgi afDalvík, sem fleka kristninnar börn. Minnfaðir er prestur í Fljótum, frœndi messar á Tjörn. Minn geistlegifaðir ogfrœndi flytja sín bænamál. En samtímis svellandi danslög syng ég í Hvanneyrarskál. Loksförum viðfrœndi til herrans aðfala þar sœluvist. Þá brosir hann að okkur öllum, en afgreiðir mig samtfyrst. Því gleðin er göfugs aðal og gœfan fylgimey hans. Og fiðlan er ungs manns yndi, og unaður hans er dans. Og englar og útvaldir hrópa í uppsölum himnaranns. „Þarna erfiðlarinnfrœgi afDalvík ogfimlega stíga þeir dans. Þýðing þessi á ljóði Yeats er úr ljóðabók sem Karl ísfeld sendi frá sér 1946. Nefnist hún „Svartar morg- unfrúr“ og hefur að geyma bæði þýðingar og frumort ljóð. Karl ísfeld fæddist árið 1906 að Sandi í Aðaldal, systursonur Guðmundar Friðjónsson- ar skálds. Hann gaf út nokkrar ljóðabækur og smásögur en þekktastur er hann fyrir þýðingar sínar. Hann var einn afkastamesti bókmennta- þýðandi landsins fyrr og síðar og liggja eftir hann þýðingar á stórmennum á borð við Hem- ingway, Steinbeck, Dumas, Dickens, Somerset Maugham og þannig mætti lengi telja. Þýðing hans á ævintýrium góða dátans Svejk er mörg- um hugstæð og þessa dagana er verið að lesa upp í ríkisútvarpinu eitt af stórvirkjum hans; þýðinguna á finnska þjóðkvæðinu Kalevala. Ástæða þess að Karl staðfærir kvæði Yeats til Dalvíkur er sjálfsagt ekki önnur en sú að á frummál- inu heitir kvæðið „The fiddler of Dooney" og Dalvík er altént tveggja atkvæða bæjarheiti sem byrjar á d. I það minnsta mun enginn afburða fiðluleikari hafa komið frá Dalvík á fimmta áratugnum. í frumtextan- um heita Fljótin hins vegar Kilvamet og Tjörn heitir hvorki meira né minna en Mocharabuiee. ... My cousin is priest in Kilvarnet, My brother in Mocharabuiee... Þó vitum við til þess að Karl ísfeld muni hafa ver- ið einn af kostgöngurum Sesselju Eldjám meðan hann gekk í Menntaskólann á Akureyri. Þær systur Imba og Sella leigði menntaskólapiltum löngum herbergi og höfðu þá í fæði. Héldu piltar þessir mikilli tryggð við þær systur jafnan upp frá því. Vera má að þau kynni að hafa haft þessi áhrif á þýðing- una. Karl ísfeld. Norðurslóð árnar heilla.

x

Norðurslóð

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.