Norðurslóð - 15.12.1999, Blaðsíða 5

Norðurslóð - 15.12.1999, Blaðsíða 5
NORÐURSLÓÐ —5 Júlíus Kristjáns- son skrifar Jón Stefánsson. Rósa Þorsteinsdóttir. Kristján E. Jónsson. Þórey Friðbjörnsdóttir. Aldarafmæli Nýjabæjar (Jónshúss) Fyrsta íbúðarhúsið á Dalvík sem byggt var úr öðru en torfí og grjóti að mun hafa verið um áramótin 1898-99 sem Jón Stefánsson í Nýjabæ á Böggvisstaðasandi hóf undirbúning að byggingu að nýju íbúðarhúsi úr timbri fyrir sig og konu sína, Rósu Þorsteinsdóttur, ásamt börnum þeirra hjóna. Nýja húsinu var valinn staður aðeins ofar, eða fjær Sandgerðistjörn- inni en gamli torfbærinn Nýibær stóð. Kirkjusmiður Jón Stefánsson var ekki nýgræðingur í smíði timburhúsa, því árið 1892 byggði hann Tjarnarkirkju í Svarfaðardal, ásamt öðrum lagtækum mönnum. I afmælisriti sem gefið var út í tilefni 100 ára afmælis kirkjunnar ár- ið 1992 segir Hjörleifur Stefánsson arkitekt um sérkenni hennar: “Tjamarkirkja ber svarfdælsk einkenni. Timburklæðning veggjanna setur mjög ákveðinn svip á kirkjuna. Lóðréttu böndin, sem klæðningin er felld í, skiptir veggjunum í reiti og lóðréttu homaböndin mynda eins- konar flatsúlu. Ekkert annað hús hér á landi ber samskonar klæðningu. Ekki er auðvelt að geta sér til um ástæðu þess að Tjarnar- kirkja hefur fengið öðruvísi klæðningu en öll önnur hús. Ef til vill hefur kirkjusmiður- inn hreinlega ætlað sér að móta útlit kirkj- unnar á sérstakan hátt, og ef svo er, þá hefur honum vissulega tekist vel til.” Ennfremur getur Hjörleifur þess að mis- tök hafi orðið í efnisútvegun, þ.e. að borð- viður hafi orðið of stuttur: Þá hefur smiðurinn þurft að finna snjall- ræði til þess að nýta efnið án þess að útkom- an yrði klaufaleg. Ef þetta hefur verið raunin þá hefur honum líka tekist vel upp. Já, Hjörleifur arkitekt telur að mistökin hafi legið í því, að borðviður hafi orðið of stuttur. A þessum tíma gátu smiðir ekki hringt eða hlaupið í næstu timbursölu eftir réttum Iengdum af trjáviði. Heimildir hef ég fyrir því að heima á Tjöm stóðu menn við veturinn áður en kirkjusmíðin hófst og flettu rekaviði í frosti og kulda. Hvaðan sem sá viður hefur komið er hæpið að réttum lengd- um hafi skolað á fjömr safnaðarnefndar Tjarnarsóknar og því hafi smiðirnir orðið að láta sér nægja það er til féll. En þeir er þar söguðu eða flettu vom auk Jóns Stefánsson- ar, Gísli Jónsson á Hofi og Jón Þórðarson frá Hnjúki. Bygging Tjamarkirkju vitnar um hagleik Jóns Stefánssonar við húsasmíðar. Bygging Nýjabæjar Árið 1899 reis hið nýja hús af grunni og hlaut það nafnið Nýibær eins og það gamla. Jón var yfirsmiður verksins en Þorsteinn sonur hans smíðaði þó alla gluggana og voru þeir smíðaðir úr svokölluðum rauðviði. Nýibær eða „Jónshúsið" eins og það var ætíð nefnt, stundum aðeins „Húsið“, var tví- lyft, portbyggt með háu risi á hlöðnum grunni. Það var strax jámvarið. Flatarmál þess er 9 xl2 álnir eða 5,7 x 7,6 metrar. Vegna þess að lítið rými reyndist í kjallara tók Jón það til bragðs, nokkrum árum síðar, að lyfta húsinu af grunni og steypa rúmgóð- an kjallara undir það. Anton Antonsson, frá Hamri, sem viðstaddur var og sá til Jóns við framkvæmdina, sagði undirrituðum, að snilldarlegt hefði verið að sjá hversu verk- lega smiðurinn hefði lyft húsinu við þær fmmstæðu aðstæður sem þá voru fyrir hendi. Þar kom aðferðin með vogstöngina að góðum notum. Notuð voru rekatré og nægjanlegur mannskapur. Við þessar breytingar varð til stór geymsla sem síðar var breytt í eldhús og búr inn af því. Þá kom rúmgott smíðaverkstæði og eldiviðargeymsla undir stiga sem lá upp á miðhæð. Á miðhæðinni var fyrsta pósthúsið á Dalvík starfrækt. Jón Stefánsson var póst- hirðingarmaður frá lokum nítjándu aldar allt til áramóta 1932-33 og þá að sjálfsögðu með póstþjónustuna í sínum húsum. Herbergja- skipan er enn um margt óbreytt í húsinu í dag, þó er kominn nýr og rúmbetri uppgang- ur á rishæð og steyptur stigi niður í kjallara. Þá er eldhús þar sem áður var póstafgreiðsla. Að ytra útliti er allt eins og í upphafi nema nú eru útitröppur steyptar þar sem áður voru trétröppur upp á miðhæðina. Laust fyrir 1930 voru settar fyrstu vatns- miðstöðvamar í tvö hús hér á Dalvík og var Nýibær annað þeirra en hitt var Árgerði, íbúðarhús Sigurjóns Jónssonar læknis. í Nýjabæ var mjög stór kolakynt eldavél af gerðinni „Mörse", en síðar var sett olíu- kynding í vélina og pottofnar í hvert her- bergi og eru þeir enn í notkun. I september 1969 var Nýibær tengdur Hitaveitu Dalvíkur og var þá sama miðstöðvarkerfið notað áfram. Gluggar eru þeir sömu og frá upphafi en á árinu 1992 var sett í þá svokallað verk- smiðjugler, eða tvöfalt einangrunargler og við þær breytingar var hvergi hægt að finna fúa í gluggum. Kirkjurokið í sögu Dalvíkur segir Kristmundur Bjarna- son eftirfarandi: Að morgni 20. september árið 1900 var vestanstormur með tveggja stiga hita. Þegar fullbjart var orðið herti storminn og fór hann vaxandi til nóns og gerði fárviðri hið mesta sem elstu menn mundu til. Reif þá víðast af heyjum og húsum. Kirkjurnar á Urðum og Upsum fuku báðar og brotnuðu í spón. Vallakirkja skekktist á grunni og gekk suð- urhlið hennar frá en Tjarnarkirkja laskaðist lítið. Einn fiskibátur fauk. Timburhús á Rauðuvík fauk á sjó út og létust tvö börn. Kári frá Siglufirði fórst í Vesturál og tólf hákarla og fiskiskip á Akureyri rak út Odd- eyrarbót innanverða og sködduðust meira og minna. Mætti svo lengi telja. Jónshúsið var raunar ekki fullfrágengið, óvíst um styrk- leika þess í slrku fárviðri. Hjónin (Jón og Rósa) brutust með börnin út í Sandgerði (þá torfbær), því að hætta þótti á að húsið kynni að lyftast af grunni þá og þegar, þótt dyggi- lega væri fest niður á hornunum sem sneru til suðvesturs en það var hættulegasta vind- áttin. En húsið stóðst þessa þolraun. Sögur segja að höfuðsmiðurinn sjálfur hafi, eftir að þau hjón höfðu komið börnun- um fyrir í Sandgerði, farið suður í Nýjabæ og dvalið þar meðan hið illræmda „kirkju- rok“ stóð yfir, mest til að sýna fram á þá trú sem hann hafði á eigin smíði. Einnig er talið að Jón Stefánsson hafi viljað sýna fram á að hægt væri að búa í öðrum híbýlum en lág- reistum torfbæjum. Athvarf í blíðu og stríðu íbúðarhúsið Nýibær á sér þannig marg- slungna og á stundum viðburðarrfka sögu. Þar hefur margur maðurinn átt heimilisfesti um lengri eða skemmri tíma og mörg nýgift hjónin hafið sína fyrstu sambúð. Þar má til dæmis nefna Jónínu og Júlíus Björnsson í Sunnuhvoli og þar fæddist Egill, fyrsta barn þeirra, Ráðhildi og Pál Friðfinnsson á Hrafnsstöðum, Guðrúnu og Snorra Sigfús- son fyrrverandi námsstjóra, Eyvöru og Stef- án Jónsson á Brimnesi og þar fæddist Sverrir sonur þeirra og foreldra mína, þau Þóreyju Friðbjömsdóttur og Kristján Jónsson. Þess eru dæmi að í Nýjabæ, sem að flatarmáli er aðeins 43 fermetrar að grunnfleti, hafi búið allt að fjórar fjölskyldur samtímis eða um tuttugu manns. Árið 1908 gekk hér á Dalvík taugaveiki- faraldur. íbúar Nýjabæjar fóru ekki varhluta af þeirri illvígu veiki. Húsið var sett í sóttkví frá aprílmánuði til september og var þá eins- konar stofufangelsi 13-14 manna. Það má því segja að Nýibær hafi gegnum öldina fóstrað margt manna og verið athvarf fólks í blíðu og stríðu. Á smíðaverkstæðinu í kjallara hússins stundaði Jón margskonar smíðavinnu enda maðurinn þekktur hagleiksmaður við slík störf. M.a. smíðaði Jón líkkistur um látna samborgara sína. Gamansaga er til af því þegar Jón var við kistusmíði í kjallara sínum og brá sér í mat að góðvin hans og sam- ferðamann Anton Árnason frá Hamri, bar að. Anton vék sér beint í kjallarann og sá hvar nær fullbúin kista stóð opin á kjallara- gólfinu. I stráksskap sínum lagðist hann flat- ur í kistuna og beið smiðsins. Er Jón kom að vinnu varð honum hverft við er Anton reis upp úr kistunni og sagði: „Nonni minn, þú hefur hana aðeins rýmri fyrir mig“. Árið 1934 eignaðist Kristján Eldjárn, sonur Jóns og Rósu, Nýjabæ og var það í eigu þeirra hjóna, Kristjáns og Þóreyjar, þar til þau létust árið 1976 og 77. Frá þeim tíma hefur húsið verið í eigu þriggja bama þeirra, Jónu, Júlíusar og Friðbjöms. Nú hefur Nýibær fengið miklar og góðar endurbætur á aldar afmæli sínu. Á síðast- liðnu sumri var skipt um alla járnklæðningu, bæði á þaki og veggjum. Einangrun var end- urnýjuð og sömuleiðis umgjarðir um glugga, dyr og vindskeiðar á stöfnum og kvistum. Þá var skipt um glugga í kjallara. Lokaorð Söfnun hvers konar menningarverðmæta hefur skipað mikilvægan sess í menningar- lífi Dalvíkurbyggðar á síðari árum. Um það vitnar ágætt byggðasafn að Hvoli ásamt gögnum Héraðsskjalasafns Svarfdælinga. Varðveisla gamalla húsa hefur hins vegar ekki staðið ofarlega í forgangsröð bæjaryfir- valda þrátt fyrir að enn séu uppi hús hér á Dalvík sem risu af grunni í upphafi aldarinn- ar. Mörg hafa orðið fyrir barðinu á eyðingar- öflunum og skammt er síðan Dalvfkingar máttu sjá á eftir einu af elsta húsi byggðar- lagsins burtu af staðnum án þess að nokkuð væri gert til að finna því nýjan stað eða hlut- verk í bænum. Þá er ömurlegt að horfa upp á stór og myndarleg hús á þeirra tíðar mæli- kvarða bíða þess eins að verða eyðingaröfl- unum að bráð og engar tilraunir gerðar til að spyrna við fótum. En þess ber einnig að geta sem vel er gert. Fyrir fáum árum síðan höfðu Kiwanismenn á Dalvík frumkvæði að því að láta skera út í tré nöfn þeirra gömlu húsa sem enn standa og festa utan á þau í stað götunúmera. Sýndu þeir þannig þessum gömlu húsum og mann- lífi fym tíðar virðingarvott sinn. Þetta var vel til fundið og minna nöfnin á þá daga er Dalvík var aðeins lítið sveitaþorp sem ekki hafði formlegt gatnakerfi né götuheiti. En betur má ef duga skal. Islensk húsagerðarlist og byggingarsaga er hluti menningarsögu þjóðarinnar. Hverjum núlifandi íslendingi er hollt að fræðast um þessa sögu, um kjör fólks fyrr á tíð og þær breytingar sem orðið hafa í aðbúnaði og lífsháttum. Það væri dýr- mætt fyrir byggðarlagið Dalvík, ef tök væru á, að varðveita gömlu húsin komandi kyn- slóðum til íhugunar um óðal feðra sinna og ekki siður uppruna. Júlíus Krist jánsson

x

Norðurslóð

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.