Norðurslóð - 15.12.1999, Blaðsíða 4
4 — NORÐURSLÓÐ
íslendingar við messu í Nígeríu
líins <>}> fram kom í grein Jó-
hanns Antonssonar í síóasta
blaði ætlaði liann að gera Ní}>-
eríuferð á vegum l iskmiðlun-
ar Norðurlands hetri skil.
Ve)>na plássleysis bíðiir það
hetri tíma en hér eru tvær
inyndir af þátttiiku lslendin}>-
anna í messuhaldi í Aba í Níg-
eríu. A stærri myndinni eru
|>eir meðal harna í sunnudaga-
skóla en á þeirri minni í kirk.ju
sem þarna er verið að reisa.
Barnamessan fór fram í ný-
hyggingunni en hin athiifnin
undir hárujárnsþaki.
Áætlun Ferðafélags Svarfdæla árið 2000
1. janúar Stekkjarhús - árleg gönguskíðaferð frá Kóngsstöðum í Stekkjarhús.
5. febrúar Hrísahöfði-Hálshorn
4. mars Hamar -Hofsá
1. apríl Reistará-Árskógur
29. apríl Tungnahryggur - vélsleðar og skfði
6.-7. maí Greni vík-Gi 1-Greni vík
23. júní Jónsmessuganga í Lokugarnir
l.júlí Fjölskylduferð í Hrísey
29. júlí Dýjafjallshnjúkur
12.-13. ágúst Tungnahryggur
2. september Karlsárdalur-Sauðdalur, um Vikið
7. október Haustlitaferð um Kóngsstaðaháls
Dalvíkurbyggð
Húsaleigubætur
Samkvæmt lögum um húsaleigubætur nr. 138/
1997 eru húsaleigubætur ætlaðar til lækkunar
húsnæðiskostnaðar tekjulágra leigjenda og til að
draga úr aðstöðumun á húsnæðismarkaði.
Sækja skal um húsaleigubætur fyrir hvert alman-
aksár og gildir umsóknin til áramóta. Umsókn um
húsaleigubætur skal hafa borist eigi síðar en 15.
dag umsóknarmánaðar og eru bæturnar greidd-
ar út eftirá.
Skilyrði fyrir því að fólk njóti húsaleigubóta eru
m.a. eftirfarandi:
Að umsækjandi hafi lögheimili í Dalvíkurbyggð.
Að umsækjandi hafi þinglýstan húsaleigusamn-
ing til a.m.k. sex mánaða.
Að umsækjandi leigi íbúð, en ekki einstaklings-
herbergi.
Þeir sem leigja húsnæði eru því hvattir til að afla
sér upplýsinga um rétt sinn til húsaleigubóta.
Núverandi móttakendur húsaleigubóta eru
minntir á að umsóknir um húsaleigubætur eru
fyrir hvert almanaksár og gilda til áramóta. Hygg-
ist umsækenndur njóta bóta á árinu 2000 ber að
endurnýja umsóknir fyrir 20.01.2000.
Upplýsingar og umsóknarblöð er hægt að fá á
skrifstofu sveitarfélagsins og hjá undirrituðum.
Dalvíkurbyggð í desember 1999
Félagsmálastjóri Dalvíkurbyggðar
Ferðafélag Svarfdæla hefur sent
frá sér áætlun sína og er hún birt
hér til hliðar.
Nánari upplýsingar um ferðirn-
ar veita Osk Jórunn í síma 466-
3273, Dóra í síma 466-1575, Hjör-
leifur í síma 466-3370, Gunnhildur
í síma 466-1030 og Brynjólfur í
síma 466-1663.
Geta má þess í framhjáhlaupi að
stofnaður hefur verið Samstarfs-
hópur um merkingar gönguleiða á
Tröllaskaga sem í eiga sæti fulltrú-
ar ferðafélaga og sveitarfélaga í
grenndinni, bæði úr Eyjafirði og
Skagafirði. Hlutverk hans og ætlun
er að samræma merkingu göngu-
leiða og kortagerð á svæðinu og
beita sér fyrir átaki á því sviði.
Ásetningur
12% fækkun mjólkurkúa
Asetningur í Svarfaðardalshreppi hinum forna nú í haust var sem
hér segir:
1999 1998 fjölgun/fækkun
Mjólkurkýr 723 821 -98
Kvígur 1 árs og eldri 352 336 +16
Geldneyti 1 árs og eldri 99 70 +19
Kvígukálfar 1 árs og yngri 285 290 -5
Nautkálfar 1 árs og yngri 2 120 -58
Ær 1.210 1.156 +54
Hrútar 58 54 +4
Lambgimbrar 188 301 -103
Lambhrútar og geldingar 36 34 +2
Geitur og lífkið 9 16 +3
Hestar 93 96 +3
Trippi 49 63 -14
Folöld 17 21 -4
Varphænsni 3.630 3.420 +210
Aliminkar, læður 1.050 800 +250
Aliminkar, högnar 150 100 +50
Alirefir, læður 100 100 0
Alirefir, steggir 20 25 -5
Kanínur 10 10 0
Heyforði 3.051.979 fóðureiningar
(Þaraf: 163.958 f.e. hey frá fyrra ári)
Heyþörf 3.031.950 fóðureiningar
Mismunur 20.029 fóðureiningar
Síðastliðið sumar var afleitt til heyskapar eins og alþjóð veit, lítil
hey og einstaklega erfið tíð. Það skyldi því engan undra að ekki er sett-
ur á vetur sami fjöldi búfjár og þegar betur hefur árað. Bændur fækka
geldneytum og trippum og setja færri lömb á vetur. Ánum hefur að
vísu fjölgað en það eru jú væntanlega lömbin frá því í fyrra sem keypt
voru hingað.
Stóru tíðindin við þennan ásetning er fækkun kúa í hreppnum um
12%. Frá því Norðurslóð hóf göngu sína fyrir 22 árum hafa kýr í
hreppnum verið um og yfir 800 og upp undir 900 þegar mest var 1985.
Aldrei hefur þeim fækkað niður fyrir 800 fyrr en nú. Hversu illa sem
árað hefur hafa bændur haldið í kýmar og þess vegna hefur fjöldi
þeirra verið stöðugur hvað sem á hefur gengið.
Fækkun búa hefur hingað til ekki haft í för með sér fækkun kúa í
dalnum því jafnhliða fækkun hafa þau kúabú sem eftir standa stækkað.
Nú ber hins vegar nýrra við. Að einhverju leyti skýrist þetta bakslag af
litlum heyfeng, því þrátt fyrir mikinn niðurskurð gerir heyfengur ekki
meira en svo að mæta þörfinni. Þá hefur kúafjöldi undanfarin ár e.t.v.
verið meiri en þörf var á því stórir mjólkurframleiðendur hafa verið að
fjölga kúm verulega. En fyrst og fremst liggur skýringin í því að tvö
kúabú, Hofsárkot og Syðra-Hvarf, lögðu upp laupana á síðasta ári.
Síðasti bæjarstjórnarfundur á öldinni
Bæjarstjórn Dalvíkurbyggðar kemur saman til síðasta fundar á þessari
öld þriðjudaginn 14. desember nk. Á fundinum verður til fyrri um-
ræðu tillaga að fjárhagsáætlun fyrir árið 2000. Að sögn Rögnvaldar Skíða
Friðbjömssonar bæjarstjóra hefur undirbúningur fjárhagsáætlunarinnar
gengið vel og var í upphafi lagt af stað með það markmið að rekstur sveit-
arfélagsins yrði ekki meiri en 83% af tekjum. Sagði hann að áætlunin bæri
merki þess að bæjarfélagið hefði staðið í miklum framkvæmdum og að
ráðgert væri að greiða niður skuldir á næsta ári.
Horft til baka -Annó 1999
Hér skal hefja hugarflug og horft til baka afrek hennar engin skilur
yfir löngu liðna daga œðstu gildin þögnin hylur.
Hfsform sem er hoifin saga. Vandamálm viku þegar vorsins gróður
Gamalreyndir grannt nú þrœða grónar slóðir teygði sig til allra átta
eyðibýlin aftur heita óðalsbú hér upp til sveita. enn við komu bjartra nátta.
Líkt var þá sem lífið vekti lofsöngstóna
Þar á bœ var búskapurinn basl ífyrstu vetur þegar vék að nýju
Þó var ágætt þar að vera Þar var alltafnóg að gera. og vorið kom með sól og hlýju.
Ljúft er hér að leiða hug til liðins tíma
Sífrjó var þá sveitamennt og sómi löngum oft þó vœri fœðuforðinn
menn þá vildu sitja að sínu sjálfráðir án lánsfjárpínu. frekar rýr að vori orðinn.
A veturna í vefstól skyldu vaðmál ofin Að afla heyja afrek var má óhœtt telja rœktað land var rýrt tilfanga
UII í heild var heimaunnin regnsöm sumur þrautaganga.
úr hrosshári var þráður spunnin. Þeir sem liartnœr heila öld nú hafa lifað
Annasamt var allajafna alla daga lifað hafa tvenna tíma
amboð þurfti að endurnýja títt viðfátœkt hörð var glíma.
engin mátti afhólmi flýja. Heill sé þeim sem halda tryggð við heiðarbýlin
Otfog hrífa ennþá voru óskatœkin byggðu að nýju hagar hendur
Hátt ber enn í hugskotsmyndum húsakost sem hér nú stendur.
hrífuhaus með brúnbrístindum. Vormenn Islands viku ei afvarðstöð sinni
Flestum leiddust fjósverkin ogfyrirlitu óðalssetur upp til sveita
mjólka kýr og mokaflórinn milt þó syngi útvarpskórinn. eru tákn sem metnað veita.
Öldin sem í örbirgð reis í auðlegð kveður.
Byrðar allar búandhjónin báru saman Því skal Guði þakkir gjalda
liúsfrúin stóð honum nœrri hennar hlutur oft var stœrri. það skal lífœð allra alda
Otilh’ödd varfús að fœra fórnir stórar Jóhann Sigurðsson
Fæddur árið 1910 á Göngustöðum í Svarfaðardal.