Fréttablaðið - 17.05.2017, Side 1
— M e s t l e s n a dag b l a ð á Í s l a n d i * —1 1 5 . t ö l u b l a ð 1 7 . á r g a n g u r M i ð V i K u d a g u r 1 7 . M a Í 2 0 1 7
FrÍtt
Faxafeni 11 • Sími 534 0534
Finndu okkur á
ALLT FYRIR
GÆSA/STEGGJA
PARTÝ
www.lyfja.is
Barnadagar
Tilboð til 28. maí
15–30%
afsláttur
af völdum
barnavörum
Fréttablaðið í dag
sKOðun Verndum Seljalands-
foss, skrifar Guðrún Hálfdanar-
dóttir. 11
lÍFið Kronik Live verður „svo
sannarlega rappveisla“ að sögn
Emmsjé Gauta. 26
plús 2 sérblöð l FólK
l aMazing hOMe shOw
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Gallup apríl-júní 2015
stjórnsýsla Stjórnendur Hörpu
hafa að undanförnu átt samtöl við
fulltrúa eigenda hússins, ríki og
Reykjavíkurborg, um áframhald-
andi rekstur þess. Reksturinn hefur
ekki verið sjálfbær og sem dæmi um
það hafa eigendur frá árinu 2013
lagt húsinu til samtals 700 milljónir
umfram áætlanir til að halda uppi
rekstrinum. Það gerir um 170-190
milljónir í framlag umfram áætl-
anir á hverju ári. Heimildir Frétta-
blaðsins herma að stjórnendur
Hörpu hafi þar að auki upplýst
eigendur um að enn sé þörf á fram-
lagi frá þeim fyrir árið 2017 ef ekki
eigi að fara illa. Þegar ríki og borg
tóku verkefnið yfir árið 2009 hafði
þó verið ákveðið að leggja ekki til
meiri framlög en ákveðið hafði
verið í samningi um bygginguna frá
árinu 2006.
Rekstrarvanda Hörpu má að hluta
rekja til deilna um fasteignagjöld, en
samkvæmt núverandi fasteignamati
ber Hörpu að greiða 300 milljónir á
ári í fasteignagjöld, sem er um fjórð-
ungur af öllu rekstrarfé hússins.
Stjórnendur Hörpu vinna enn að
því að fá þessa upphæð lækkaða.
Svanhildur Konráðsdóttir, for-
stjóri Hörpu, segir að stjórnendur
og starfsmenn Hörpu séu að rýna
reksturinn. Það sé meðal annars
háð endanlegri niðurstöðu um
fasteignagjöld hver aðkoma eig-
enda þarf að vera til framtíðar. „Það
munar auðvitað mjög miklu hvort
við erum að horfa á 315 milljónir
eða 180. Það er þessi óvissa og ég get
engu um það spáð hver niðurstaðan
verður hjá yfirfasteignamatsnefnd.
En það er alveg ljóst og hefur legið
fyrir alveg frá byrjun að reksturinn
hefur ekki verið sjálfbær,“ segir
hún. Stjórnendur hafi rætt rekstur
hússins til skamms tíma og til lengri
tíma við fulltrúa eigenda.
Svanhildur segir að búist hafi
verið við að niðurstaðan yrði klár
í apríl en yfirfasteignanefnd hafi
fengið frest til loka júní. „Óvissan
hefur því verið lengri en við höfðum
búist við,“ segir Svanhildur.
Auk þeirra 700 milljóna sem ríki
og Reykjavíkurborg hafa lagt hús-
inu til vegna rekstursins á árunum
2013-2016 hefur húsið fengið 4,9
milljarða frá eigendum frá árinu
2011 vegna fjármögnunar þess.
Þrátt fyrir þetta nam taprekstur
hússins frá árinu 2011 til 2015
rúmum 2,6 milljörðum króna.
jonhakon@frettabladid.is
Harpa þarf hundruð
milljóna til viðbótar
Að óbreyttu mun Harpa áfram þurfa hundruð milljóna í rekstrarframlög frá ríki
og borg. Hefur fengið 700 milljónir frá árinu 2013. Stjórnendur hússins hafa
að undanförnu rætt við eigendurna um framtíðina. Tap af rekstri nemur millj-
ÍHUGULL Donald Trump sést hér ganga í þungum þönkum í Hvíta húsið eftir að hafa kvatt Recep Tayyip Erdogan. Starfsbræðurnir funduðu í gær í
skugga háværra kalla bandarískra þingmanna þess efnis að rannsókn fari fram á samskiptum Bandaríkjaforseta við Rússa. Nú síðast þykir afar umdeild-
ur sá verknaður hans að deila trúnaðarupplýsingum með Rússum. Þá hefur einnig verið kallað eftir rannsókn á samskiptum hans og James Comey, fyrr-
verandi forstjóra FBI, en upplýst var í gær að Trump hefði beðið Comey um að hætta rannsókn á máli Michaels Flynn. – sjá síðu 8 / FRÉTTABLAÐIÐ/EPA
En það er alveg ljóst
og hefur legið fyrir
alveg frá byrjun að rekstur-
inn hefur ekki verið sjálfbær.
Svanhildur Konráðsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Hörpu
neytendur Verðmerkingar á H&M
fatnaði í Noregi benda til þess að
Íslendingar muni greiða hærra verð
fyrir flíkur en Norðmenn. Verð-
merkingar sýna verð í norskum
krónum og íslenskum og er saman-
burðurinn íslenskum neytendum í
óhag. – sg / sjá síðu 2
stjórnMál Búist er við átakafundi
hjá Framsóknarmönnum um helg-
ina þegar miðstjórn flokksins hittist
í fyrsta sinn eftir aðalfundinn sem
felldi Sigmund Davíð. – snæ / sjá síðu 4
ViðsKipti Svanhildur Nanna Vig-
fúsdóttir, stjórnarformaður VÍS,
gagnrýnir þá hluthafa
sem hafa staðið gegn
breytingum í stjórn
félagsins og segir þá
gæta „valdahags-
muna á kostnað
arðsemissjónar-
miða“.
sjá Markaðinn
H&M dýrari
hér en í Noregi
Átakafundur
hjá Framsókn
Gagnrýnir
varðhunda í VÍS
1
7
-0
5
-2
0
1
7
0
4
:2
7
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
C
E
0
-4
9
4
0
1
C
E
0
-4
8
0
4
1
C
E
0
-4
6
C
8
1
C
E
0
-4
5
8
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
5
6
s
_
1
6
_
5
_
2
0
1
7
C
M
Y
K