Tímarit um endurskoðun og reikningshald - 01.01.1983, Qupperneq 35
meðaltali frá 19x0 til 19x1. Hér á eftir fara
ársreikningar, sem samdir hafa verið með
þrem þeirra aðferða, sem kynntar hafa verið:
Kaupverð - nafnkrónufjármagn
Rekstrarreikningur ár 19x1:
RekstrartekjunTekjurafleigu 40
Rekstrargjöld
Ýmisrekstrarkostnaður 3
Afskrift af skipi 20______2i_
Hreinar rekstrartekjur 17
Vaxtagjöld 10,50
Hagnaður 6,50
Efnahagsreikningur lok 19x1:
Fjármunir
Sjóöur 26,50
Skip 80.00
106,50
Fjármagn
Langvinnt lán 30
Höfuðstóll 1/1 70
Hagnaður árs 6,50 76,50
106,50
Sviptivirði - starfsmáttarfjármagn
Rekstrarreikningur ár 19x1:
Hreinar rekstrartekjur samkv. reikn-
ingsskilum kaupverðs - nafnkrónu-
fjármagns 17
— Álag á afskrift -3
— Álag vegna virðisrýrnunar pen-
ingalegs rekstrarfjár -3
11
Leiðrétting vegna sKuldsetningar 9
— Vaxtagjöld -10,50 -1,50
9,50
Efnahagsreikningur lok 19x1:
Fjármunir
Sjóður 26,50
Skip 104
Fjármagn 130,50
Langvinnt lán 30
Höfuðstóll 1/1 70
Endurmatsforði 21
Hagnaður árs 9,50 100,50
130,50
Nokkurra skýringa er þörf. Skipið skal
afskrifað af sviptivirði eins og það er talið
hafa verið að meðaltali á árinu. Meðaltal
kaupverðs nýs skips í ársbyrjun og árslok er
(100 + 130)/2 = 115 kr. Pað gerir 23 kr. í
afskrift, og álag á afskrift af upphaflegu
kauperði verður þá 3 kr.
Af handbæru fé, sem fyrirtækið eignast
hinn 30/6,s vara 23 kr. til þeirrar rýrnunar,
sem þá er talin verða á sviptivirði skipsins
vegna notkunar þess á árinu. Alag vegna
rýrnunar peningalegs rekstrarfjár verður þá
reiknuð svo: 23 x 130/115 — 23 = 3 kr.
Leiðrétting vegna skuldsetningar er reiknuð
út á sama hátt og í fyrra skýringardæmi: 30 x
130/100 — 30 = 9 kr.
Skipið er í árslok metið á 80% af endur-
kaupsverði nýs skips; það skal ta'lið vera
sviptivirði þess í árslok. Til hægðarauka við
sannprófun talna efnahagsreiknings, skulu
taldar upp færslur í reikninga fyrir skipið og
fyrir endurmat. Staða reiknings fyrir skipið
hinn 1/1 er lOOkr. í debet. í debethlið er svo
færð hækkun á kaupverði nýs skips á árinu,
30 kr. en í kredit gjalfærð afskrift, samtals 23.
kr., og afskriftaleifar, eða óafskrifuð verð-
hækkun 3 kr. Á endurmatsreikning eru
færðar í kredit mótbókun við færslu áður-
nefndra 30 kr. í reikning fyrir skipið og
mótbókun við álag vegna virðisrýrnunar
rekstrarfjár, 3 kr., og í debet mótbókun við
gjaldfærslu leiðréttingar vegna skuldsetning-
ar og mótbókun við áðurnefndar afskrifta-
leifar, 3 kr. Svokallaðar afskriftaleifar verða
til við þann mismun, sem er á annars vegar
verðfalli viðeins árs notkun (130 —104 = 26)
og á þeirri afskrift, sem hefur þótt hæfa að
gjaldfæra, 23 kr.
Að gefnum þeim forsendum um verðbreyt-
ingar, sem stuðzt hefur verið við, þ.e. að verð
og vísitölur, sem málið varða, breytast í sama
mæli, gefa reikningsskil sviptivirðis — stað-
krónufjármagns sömu niðurstöðu um hagnað
og reikningsskilin að ofan, þ.e. 9,50 kr. Eftir
úthlutun 9,50 kr. í árslok stæði fyrirtækið í
33