Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda - 01.01.1996, Blaðsíða 25

Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda - 01.01.1996, Blaðsíða 25
3. Almenn undirstöðuatriði (drög) 3.1 Væntingar þeirra sem eiga beinna hagsmuna að gæta Þegar áhættuþættir sem stefna hlutlægni í hættu koma ffam eða virðast í uppsiglingu skyldi viðkomandi endurskoðandi ætíð velta því fyrir sér hvort gera eigi málsaðilum grein fyrir tengslum, aðstæðum eða hags- munum sem í húfi eru. 3.2 Almannahagur og hugsanleg áhrifhans á verkið Það liggur svo að segja í orðanna hljóðan að lög- bundin endurskoðun varðar almannahag.2 Þetta er oft tdltekið beinum orðum í lagafyrirmælum, svo sem það að leyfa eða kreíjast þess að lögskipaðir endurskoð- endur fyrirtækja sem rekin eru samkvæmt reglugerð, til dæmis banka, hafi samráð við fulltrúa stjórnvalda. 3.3 Aðstæður 3.3.1 Lög og stéttarlegar siðareglur um sjálfstæði og hlutlægni eru ríkjandi í flestum löndum. Sums staðar hafa verið settar takmarkanir á starfssvið endurskoð- enda til þess að vernda sjálfstæði þeirra í ásýnd. Þó að þessi lög eða reglur séu mismunandi eftir löndum ber að leggja á það áherslu að þessa álitsgerð má ekki nota til þess að koma sér undan eða sneiða hjá lögum og reglugerðum að því marki sem þau stefna að því að vernda almannahag. Auk þess að fara að landslögum og siðareglum stéttarinnar verður hver endurskoðandi fyrir sig að gera viðeigandi ráðstafanir til þess að gæta eigin hlutlægni. 3.3.2 Aðstæður við endurskoðun eru síbreytilegar. Þess vegna hafa endurskoðendur ætíð þurft að gefa nýjan gaum að viðbrögðum sínum við áhættuþáttum. 2 A undanliðnum árum hefur mikið verið rætt um almannahag í tengslum við smáfyrirtæki. Það er almennt viðurkennt að hluthafar í lidum eigendareknum fyrirtækjum þurfa á endur- skoðanda að halda sem ráðleggur og leiðbeinir stjómendum og veirir stundum lagalega ráðgjöf, auk þess sem hann leggur nokkuð hlutlægt mat á fyrirtækið. Einkar gagnleg, en nokkuð órökvísleg, viðurkenning á þessari hagnýtu þörf birtist oft í því að smáfyrirtækjum er veitt undanþága ff á kvöðum um lög- bundna endurskoðun. Vegna þess að stjórnendur sem jafnframt em eigendur fyrir- tækis hafa tvö sjónarhorn á það er þeim (og öðrum sem á þá treysta, svo sem starfsmönnum, viðskiptavinum og lánar- drottnum) ffemur umhugað um að forðast hættur sem stafa af því að lítið fyrirtæki fái lélega ráðgjöf og leiðbeiningar en þær sem skapast af smávægilegri hlutdrægni í endurskoðun. Sem stendur gera lög engan greinarmun af nákvæmlega þessu tagi og því er það ekki heldur gert í þessari álitsgerð, en þetta er undirstöðuatriði í boðum og bönnum sem skráðum hlutafé- lögum em sett. Reglur um þau em strangari en reglur sem gilda fyrir smá- og einkafyrirtæki. Ekki er unnt að gera neina tæmandi úttekt hér en end- urskoðendur ættu að hafa komið sér upp siðareglum og vinnureglum í eigin starfi sem þeir geta stuðst við. Eftirtalið má nefna sem viðmið: Þess er vænst að endurskoðendur hafi frá upphafi starfsferils fengið þjálfun í því að breyta af ráðvendni í öllu starfi sínu og viðskiptum og einnig að leitast við að sýna hlutlægni og góða dómgreind. Þessar kröfur skipta miklu máli í matinu sem þarf að fara fram áður en þeir öðlast réttindi. Endurskoðendastarfið byggist á því að leggja fram faglegt mat sem krefst hlutlægni. Þess vegna eiga endurskoðendur að vera vel þjálfaðir í því að leiða persónulegar skoðanir og kenndir hjá sér við úrskurði sína. Þar sem orðspor endurskoðenda um hlutleysi og hlutlægni er grundvöllur þess að þeir geti innt starf sitt af hendi og fengið verkefni í nokkurri bráð og lengd hljóta þeir allir, hvort sem þeir starfa einir eða í félagi við aðra, að gæta þess að það bíði ekki hnekki. Akveðnir starfshættir á endurskoðunarstofum og efidr- lit með starfi sérhvers meðeiganda stuðla að því að tryggja hlutlægni endurskoðenda. 3.4 Ymsar varúðarrástafanir Endurskoðandinn starfar innan um stéttarsystkini sín og í flestum Evrópulöndum hefur stéttin komið sér upp ýmiss konar varúðarráðstöfunum og refsiá- kvæðum. Endurskoðendastéttin setti sér siðareglur fyrir löngu og koma þær að hluta til ffam í þessari álitsgerð. I áranna rás hefur stéttin staðið vörð um þessar regl- ur með eftirlitskerfi sem: • bregst við umkvörtunum, jafnt frá almenningi sem stéttarsystkinum • kannar undirrót umkvartananna og ef nauðsyn ber til • grípur til aðgerða gagnvart endurskoðandanum sem kvartað var yfir. Þar við bætist að í nokkrum löndum hefur stéttin staðið fyrir öflugu eftirliti með reglugerðarbundnum störfum á borð við reikningsskil. Það er því sennilegt að fyrra framferði endurskoðunarstofa og núverandi starfshættir við að gæta hlutlægni lendi undir smásjá óháðra fagmanna komi upp áhöld um frammistöðu þeirra. 3.5 Hlutlægni erýmis hætta búin Ymislegt getur orðið til þess að draga úr hlutlægni og er sumt almenns eðlis en annað tengt aðstæðum við viðkomandi verkefhi. Til þess að koma auga á áhættu- 23

x

Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda
https://timarit.is/publication/1258

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.