Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda - 01.01.1996, Blaðsíða 34

Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda - 01.01.1996, Blaðsíða 34
1. Kaup samkvæmt kaupaðferð: Ef ofangreind samtenging er flokkuð sem kaup og kaupaðferð beitt er færsla sú sem M hf. færir í sínum bókum til þess að gera grein fyrir fjárfestingu sinni eft- irfarandi: Fjárfesting í dótturfélagi 10.000 Hlutafé 5.000 Lögbundinn varasjóður 5.000 Færsla þessi er í samræmi við þau fyrirmæli urn kaupaðferðina að fjárfesting í dótmrfélagi skuli færð til eignar á raunverulegu kaupverði. Ekki er heldur reynt að færa upp óráðstafað eigið fé D hf. í bókum M hf. Oll hækkun á eigin fé, sem færð er í bækur M hf., er færð á innborgað hlutafé. 2. Kaup samkvæmt samlegðaraðferð: Ef gengið er út frá þeirri forsendu að ofangreind viðskipti beri að meðhöndla sem kaup samkvæmt sam- legðaraðferðinni er færsla sú sem gerð er í bókum M hf. vegna viðsldptanna eftirfarandi: Fjárfesting í dótturfélagi 8.200 Hlutafé 5.000 Lögbundinn varasjóður 1.000 Óráðstafað eigið fé 2.200 Samkvæmt þessari aðferð er bókfært verðmæti eigin fjár D hf. sú fjárhæð sem lögð er til grundvallar við ákvörðun á verðmæti fjárfestingar í dótturfélagi hjá M hf. Fjárhæð sú sem færð er til hækkunar á lögbundn- urn varasjóði í færslunni að framan er í raun afgangs- stærð. Fjárhæð þessi er ekki til í bókum D hf. Hér er við það miðað að óráðstafað eigið fé D hf. flytjist yfir í hið nýja félag í samræmi við þá kenningu að hin sam- tengda eining eigi að endurspegla fjárhagsstöðu sem væri eins og ef bæði félögin hefðu alltaf verið eitt fé- lag. Nafnverð útgefinna hlutabréfa fært til hækkunar á hlutafé. Það sem síðan er afgangs er fært til hækkunar á lögbundnum varasjóði. Með þessari færslu hefur bókfært verðmæti eigin fjár D hf. verið fært til eignar sem fjárfesting í dóttur- félagi. Segja má að M hf. hafi yfirfært eignir og skuld- ir D hf. í sínar bækur á bókfærðu verði með þessari færslu. 3. Samruni samkvæmt kaupaðferð: Við samruna yfirtekur M hf. allar eignir og skuldir D hf., sem við það hættir að vera til sem sjálfstætt fé- lag. M hf. yfirtekur eignir og skuldir D hf. eins og fé- lagið hefði keypt þessar eignir beint þar sem kaupað- ferðinni er beitt. M hf. færir því eftirfarandi færslu í sínurn bókum vegna þessarar fjárfestingar: Veltufjármunir 1.000 Varanlegir rekstrarfjármunir 9.000 Viðskiptavild 700 Skuldir samtals 700 Hlutafé 5.000 Lögbundinn varasjóður 5.000 Eftir þessa færslu eru allar eignir og skuldir D hf. færðar í bókhaldi M hf. 4. Samruni samkvæmt samlegðaraðferð. Samkvæmt þessari aðferð yfirfærast allar eignir og skuldir D hf. yfir í M hf. á bókfærðu verði og D hf. hættir að vera til sem sjálfstætt félag. Færsla sú sem gerð er í bókum M hf. er eftirfarandi: Veltufjármunir 1.000 Varanlegir rekstrarfjármunir 8.000 Skuldir samtals 800 Hlutafé 5.000 Lögbundinn varasjóður 1.000 Óráðstafað eigið fé 2.200 Eignir og skuldir D hf. eru nú skráðar í bækur M hf. eins og þær hefðu alltaf tilheyrt því félagi. 5. Sameiningar Við sameiningu félaga er nýtt félag stofhað sem yf- irtekur allar eignir og skuldir tveggja eða fleiri félaga, sem við það hætta að vera til sem sérstök félög. Ef slík sameining er skráð samkvæmt kaupaðferð eru eignir í raun keyptar, af þeim félögum sem sameinast, á mark- aðsverði. ‘I samræmi við fyrirmæli hér að framan um óráðstafað eigið fé, er það ekki fært upp við samein- inguna. Ef sameining er hins vegar gerð samkvæmt sam- legðaraðferðinni eru eignir og skuldir tveggja eða fleiri félaga yfirteknar á bókfærðu verði. Óráðstafað eigið fé hins nýja félags verður því samanlagt óráðstaf- að eigið fé þeirra félaga sem sameinast. Það er í sam- rænti við þá kenningu að hið nýja félag eigi að hafa sömu fjárhagsstöðu og þau félög sem sameinast. Lokaorð Hér að framan hefur verið gerð grein fyrir helstu tegundum af samtengingum félaga og þeim reikn- ingsskilaaðferðum sem ber að beita við hverja tegund. Rétt er að taka fram að þar sem ekki eru til ákveðnar vinnureglur hér á landi, sem styðjast við lög eða fyrir- mæli, hefur verið litið til bandarískra reglna um þetta efni. Þar er löng hefð fyrir notkun þeirra og ekkert sem bendir til að þær eigi ekki jafht við hérlendis. 32

x

Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda
https://timarit.is/publication/1258

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.