Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda - 01.01.1996, Blaðsíða 27
er erfitt að sjá fyrir sér aðstæður þar sem þörf er á
að meina endurskoðanda aðgang að upplýsingum
sem gætu haft áhrif á hlutlægni, en þær geta skap-
ast, til dæmis í sambandi við ákveðna tegund af
sjálfskoðun.)
Sé endurskoðandi viss um að hlutlægni hans sé nóg-
samlega tryggð með varúðarráðstöfunum af þessu
tagi, en er samt í vafa um að það sé álit manna al-
mennt, ber honum að fara yfir stöðu mála í samráði
við annan löggiltan endurskoðanda, annaðhvort
reyndari eða hærra settan félaga á sinni eigin endur-
skoðunarstofu, annarri stofu eða hjá fagfélaginu, ef
annarra kosta er ekki völ. Verði niðurstaðan sú að
hlutlægni hans sé gætt í hvívetna skal það skjalfest á
fullnægjandi hátt.
• Aðgerðir út á við, ef til vill yfirlýsing opinberlega,
til þess að útskýra að mönnum sé ljós hættan á hags-
munaárekstrum við ákveðnar aðstæður og muni
draga úr henni.
• Aðgerðaleysi ef engin önnur leið getur leyst að-
steðjandi vanda. I þessari álitsgerð er stundum mælt
gegn aðgerðum vegna þess að í ákveðnum kringum-
stæðum er ólíklegt að nokkrar öryggisráðstafanir
dugi til þess að fullvissa almenning um að endur-
skoðandinn sé óvilhallur. Vanhæfisreglur og bönn af
sumu tagi eru falin í lögum eða reglugerðum og því
ekki í verkahring endurskoðendastéttarinnar.
3.9 Breyttar aðstœður
Vegna þess að aðstæður og viðhorf almennings
breytast með tímanum gætu varnaðarorðin í þessari
álitsgerð orðið fleiri eða færri þegar fram líða stundir.
Breytingar á þeim þurfa þó að ákvarðast af almanna-
hag annars vegar og hins vegar af því sjónarmiði að
reglur megi ekki vera of erfiðar í ffamkvæmd. Stéttin
verður að hafa þessa siglingu milli skers og báru að
leiðarljósi.
3.10 Að hafiia verki
Það leiðir af því sem hér hefur verið sagt að það við-
horf almennings (eða einhvers hluta hans) að hlut-
lægni endurskoðanda sé véfengjanleg er ekki eitt og
sér næg ástæða til þess að vísa verki ífá sér. Gagnverk-
andi aðgerðir og varúðarráðstafanir sem nefndar hafa
verið hér á undan vega oft þyngra en áhættuþættirnir.
Fáum utan endurskoðendastéttarinnar er kunnugt um
þær margbrotnu og flóknu starfsháttareglur sem end-
urskoðunarstofur af öllum stærðum hafa tileinkað sér.
Opinber umræða og upplýsingar endurskoðenda um
þær rnundu gera almenningi betri grein fyrir þeim og
draga úr misskilningi. Við vissar kringumstæður gerist
það þó að hlutlægni endurskoðanda er svo veigamikil
hætta búin, eða mönnum virðist almennt að svo sé, að
honum beri að vísa verkefnum frá sér í því skyni að
gæta ásýndar stéttarinnar út á við, jafnvel þótt hann
telji mál þannig vaxin að tiltækar varúðarráðstafanir og
starfshættir geri honum kleift að halda hlutlægni sinni
í málinu. I slíkum tilvikum ber honum að hafna eða
hætta við verkið. Aðstæðum af þessum toga er lýst sér-
staklega í leiðbeiningunum sem hér fara á eftir.
4. Sérstök málefni
4.1 Tengsl við fyriitækið sem er til endurskoðunar
4.1.1 Akveðin viðskiptaleg eða fjárhagsleg tengsl
milli endurskoðanda og fyrirtækis sem er til endur-
skoðunar geta valdið því að eiginhagsmunir séu eða
virðist í húfi. Varúðarráðstafanir gagnvart slíku, sem í
raun koma í veg fyrir að endurskoðandi tald að sér eða
haldi áfram með verkefni, eru til dæmis:
1. Endurskoðandinn þarf að tryggja að hann eigi
engin hlutabréf af neinu tagi, beint eða óbeint, í
viðkomandi fyrirtæki.1 * 3 Endurskoðendum er ekki
leyfilegt að gangast í ábyrgð fyrir skuldbindingum
viðskiptavinar, svo sem skuldum, eða vera honum
fjárhagslega tengdur á annan hátt, til dæmis þann
að veita eða taka lán (nema ffá viðurkenndum fjár-
málastofhunum í venjulegum viðskiptum þar sem
hægt er að gæta tilhlýðilegra öryggisráðstafana)
eða þá að þiggja eftirlaunahlunnindi eða annars
konar hlunnindi.
2. Verði ytri atvik, svo sem arfur, gjöf eða samruni
fyrirtækja, til þess að endurskoðandi eignist arð-
gefandi hlut í fyrirtæki viðskiptavinar ber honum
eins fljótt og auðið er, og í síðasta lagi innan eins
árs, að losa sig við þann hlut eða vísa endurskoð-
unarverkefninu frá sér ella.
3. Endurskoðandi má ekki vera lögfræðilegur fulltrúi
fyrirtækis sem hann endurskoðar, né heldur með-
limur í stjórn, yfirstjórn eða eftirlitsráði þess, eða
starfsmaður þess. Hann má ekki heldur hafa gengt
slíkum starfa hjá fyrirtækinu í að minnsta kosti tvö
ár áður en hann tekur verkefni að sér, til þess að
forðast eiginhagsmunaárekstra eða sjálfskoðun.
1 í nokkrum löndum gilda óverulegar undanþágur frá þessum
almennu reglum (svo sem arðlaus hiutabréfaeign stjórnar-
manna á Irlandi og Stóra-Bredandi). I slíkum tilvikum þurfa
endurskoðendur að gera ráðstafnir tii að gæta hlutleysis síns.
25