Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda - 01.01.1996, Page 31
ná fram ákveðnum margfeldisáhrifum, þ.e. að þess er
vænst að rekstrarárangur félaganna eftir samtengingu
verði betri en áður. Slíkt veður hins vegar ekki alltaf
raunin. Ef í ljós kemur að samtenging félaga hefur
ekki tekist getur verið auðveldara að láta hana ganga
til baka með því að selja hlutabréfaeign í dótturfélagi
en að selja þær eignir sem viðkomandi félag átti fyrir
samruna. Ef félög hafa verið sameinuð með samruna
er einungis hægt að láta hann ganga til baka með því
að selja þær eignir sem viðkomandi félag átti fyrir
samrunann.
Annað atriði sem kemur til álita í þessu sambandi er
sú staðreynd að hlutafélög eru félög með takmarkaðri
ábyrgð hluthafa. Ef félag er hluthafi í öðru félagi ber
það aðeins takmarkaða ábyrgð líkt og aðrir hluthafar.
Ef eitt félag rennur hins vegar inn í annað við samruna
eða með sameiningu verður hið nýja félag skuldari að
ölluin skuldum viðkomandi félags.
Bókun fjárfestinga í dótturfélögum
Meginreglur við bókun á fjárfestingum í dótturfé-
lögum eru tvær og eru á ensku nefndar „purchase
accounting" og „pooling of interest accounting“ og
hafa á íslensku verið nefndar „kaupaðferð“ og sam-
legðaraðferð“.
Kaupaðferð:
Samkvæmt kaupaðferðinni er litið svo á að með-
höndla eigi samtengingu félaga sem kaup á eignum án
tillits til þess hvernig slík samtenging á sér stað. Eign-
ir sem félag eignast við samtengingu með því að greiða
fyrir þær með peningum eru færðar í bókhaldi móður-
félagsins á því verði sem greitt er fyrir þær. Eignir sem
félag eignast við samtengingu með því að gefa út
hlutafé sem greiðslu eru annað hvort færðar við gang-
verði viðkomandi eigna eða hlutafjárins. Val á því hvor
viðmiðunin er notuð byggist á því hversu aðgengileg-
ar upplýsingar um verðmæti þessara eigna eru.
Eftirfarandi fyrirmæli varðandi skiptingu á kostnað-
arverði íjárfestingar samkvæmt kaupaðferð voru sett
fram af bandarísku reikningsskilanefndinni (APB op-
inion no. 16): „Allar raunverulegar eignir (identifiable
assets) sem keyptar eru og yfirteknar skuldir við sam-
tengingu skal færa á matsverði á kaupdegi. Það sem
kann að vera greitt fyrir félag umfram matsverð eigna
að ffádregnum skuldum skal færa sem viðskiptavild.“
Þegar kaup á eignarhluta í félagi fellur undir kaup-
aðferðina þarf að meta eignir til markaðsverðs, sem yf-
irleitt er hærra en bókfært verð viðkomandi eigna.
Þetta yfirverð er síðan afskrifað. Oftast er miðað við
að afskrifa yfirverð á áætluðum líftíma þeirra eigna
sem það tilheyrir. Einnig hafa verið sett fram fyrirmæli
í Bandaríkjunum um að keypt viðskiptavild skuli af-
skrifuð á ekki lengri tíma en 40 árum. Samkvæmt lög-
um um ársreikninga ber að afskrifa kostnað vegna
óeíhislegra réttinda á ekki lengri tíma en fimm árum.
Af þessu leiðir að verulegar gjaldfærslur geta fylgt því
að nota kaupaðferð í formi afskrifta af yfirverði eigna
og viðskiptavildar.
I samtengingum félaga sem flokkaðar eru sem kaup
verður að ráðstafa þeim mismuni sem er á milli kaup-
verðs og hlutfallslegrar eignar í bókfærðu eigin fé
dótturfélags á einstakar eignir í samræmi við fyrr-
greind fyrirmæli bandarísku reikningsskilanefndarinn-
ar. Þessi aðferð krefst þess að eignir og skuldir dóttur-
félagsins séu metnar til raunvirðis. Slíkt mat getur ver-
ið mjög flókið í framkvæmd. Eftirfarandi reglur voru
settar fram af bandarísku reikningsskilanefndinni um
mat á raunvirði eigna dótmrfélaga:
1. Markaðsverðbréf skulu metin á innlausnarverði að
frádregnum sölulaunum.
2. Viðskiptakröfur skulu metnar á bókfærðu verði að
teknu tilliti til áfallinna vaxta að frádreginni niður-
færslu vegna hugsanlegra tapa.
3. Birgðir:
a. Fullunnar afurðir skulu metnar á söluverði að
ffádregnum sölukostnaði og eðlilegri söluþókn-
un.
b. Vörur í vinnslu skulu memar á söluverði fullunn-
inna vara að ffádregnum kosmaði við að ljúka
ffamleiðslu og eðlilegum sölukosmaði og sölu-
launum.
4. Fastafjármunir:
a. Eignir til áframhaldandi nota skulu metnar á
endurstofnverði nema notkun þeirra í framtíð-
inni bendi til lægra virðis þeirra fyrir kaupanda.
b. Eignir sem seldar verða skulu metnar á áætluðu
söluverði.
c. Eignir sem nota á í skamman tíma og selja síðan
skulu metnar á áætluðu söluverði að teknu tdlliti
til rýrnunar vegna fyrirhugaðrar notkunar.
5. Óáþreifanlegar eignir, s.s. samninga, einkaleyfi,
réttindi o.s.frv., skal meta við áætluðu markaðs-
verði.
6. Aðrar eignir s.s. lóðir, náttúmauðæfi o.fl. skal meta
við áæduðu markaðsverði.
7. Skammtíma- og langtímaskuldir skulu memar á
núvirði að teknu tillliti til vaxtakjara.
29