Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda - 01.01.1996, Page 37
Stjórn FLE
1994-1995
F.v. Guðmundur
Frímannsson, Tryggvi
Jónsson, varafor-
maður, Þorsteinn
Haraldsson,formaður,
Hjördís Ásberg, og
Sigurður Þórðarson.
Stefán D. Franklín gerði grein fyrir störfum rit-
nefndar. Stefán þakkaði meðnefndarmönnum sínum
samstarfið. Theodór Sigurbergsson gengur nú úr
nefndinni.
A fundinum fór ffam stjórnarkjör. Tillaga uppstill-
ingarnefhdar um Þorstein Haraldsson sem formann til
eins árs var borin upp og samþykkt. Tryggvi Jónsson
var kjörinn varaformaður til eins árs. Guðmundur Frí-
mannsson og Hjördís Asberg voru kjörin meðstjórn-
endur til tveggja ára. Helga Harðardóttir og Dýri
Guðmundsson voru kjörin varamenn í stjórn til eins
árs. Benóní Torfi Eggertsson var kjörinn endurskoð-
andi til eins árs og Lárus Finnbogason til vara.
Kosning aðalmanna og varamanna í fastanefndir
FLE var eftirfarandhí Alitsnefnd voru Olafur Nilsson
og Gunnar Sigurðsson kosnir aðalmenn til eins árs en
Arni Tómasson sem varamaður til eins árs. I Endur-
skoðunarnefnd var Hjörleifur Pálsson kosinn sem að-
almaður til þriggja ára og Halldóra Arason sem vara-
maður til eins árs. I Reikningsskilanefnd var Geir
Geirsson kosinn sem aðalmaður til þriggja ára og Sig-
urður B. Arnþórsson sem varamaður til eins árs. I
Menntunarnefnd var Jóhann Unnsteinsson kosinn
sem aðalmaður til þriggja ára og Björg Sigurðardóttdr
sem varamaður til eins árs. I Ritnefnd var Gerður
Guðjónsdóttir kosin sem aðalmaður til þriggja ára og
Konráð Konráðsson kosinn sem varamaður til eins
árs.
Þorsteinn Haraldsson fór yfir fyrirliggjandi rekstr-
aráætlun 1994/1995 lið fyrir lið. Fram kom að ekki er
mikið borð fyrir báru í áætlunni en bent var á að félag-
ið hefði haft tekjur umfram gjöld undanfarin ár og að
eignastaða félagsins væri sterk, þó að ekki væri ætlun-
in að skerða eignir sem til væru komnar vegna sölu
fasteignar.
Önnur mál:
Endurskoðunarnefnd lagði fram til samþykktar til-
lögu að leiðbeinandi reglum um skipulag endurskoð-
unar.
Guðmundur Snorrason gerði grein fyrir tillögu að
leiðbeinandi reglum um skipulag endurskoðunar.
Hann greindi frá því að tillagan hefði verið tekin til
endurskoðunar og breytt frá því sem hún var lögð
fram á félagsfundi haustið 1993. M.a. hefði verið tek-
ið tillit til framkominna tilagna orðanefndar. Guð-
mundur gerði sérstaklega grein fyrir breytingum á tl.
nr. 9, 11 og 13 og breyttri uppsetningu með feitletrun-
um. Fram kom að engar skriflegar breytingartillögur
höfðu borist frá félagsmönnum ffá því. Guðmundur
gaf kost á fyrirspurnum eða athugasemdum frá félags-
mönnum. Hann þakkaði þá fráfarandi formanni end-
urskoðunarnefndar Olafi Kristinssyni gott og ánægju-
legt samstarf.
Tillagan var samþykkt mótatkvæðalaust.
Að lokum þakkaði Þorsteinn félagsmönnum fyrir
frábæra ráðstefnudaga og Bryndísi starfsmanni félags-
ins fyrir hennar störf auk þess að bjóða nýtt fólk vel-
komið til trúnaðarstarfs í þágu félagsins.
Fleira var ekki tekið fyrir og sleit fundarstjóri Arni
Tómasson fundi.
35