Ráðunautafundur - 15.02.1992, Page 134
124
RÁÐUNAUTAFUNDUR 1992
Stofnræktun kartöfiuútsæðis
Ólafur G. Vagnsson
Búnaðarsambandi Eyjafjarðar
og
Sigurgeir Ólafsson
Rannsóknastofnun landbúnaðarins
ELDRI STOFNRÆKT
Upphaf stofnræktunar á kartöflum hér á landi má rekja til laga um verslun með kartöflur o.fl.
nr. 31 frá 1943, en þar segir í 10. gr. „Grænmetisverslun ríkisins skal sjá um, eftir því sem
unnt er, að árlega sé völ á heilbrigðu, völdu, innlendu útsæði. Skal hún þess vegna koma á
fót stofnræktun úrvalskartöflutegunda (eliteræktun) og semja við einstaka kartöflu-
framleiðendur um framleiðslu útsæðis af þessum tegundum og sé þessi ræktun háð ströngu
heilbrigðiseftirliti’ ’.
Ekki var þessari grein laganna framfylgt fyrr en 1948 en þá gerðu Grænmetisverslunin
og Tilraunaráð jarðræktar með sér samning um framkvæmd og eftirlit með þessari stofnrækt.
Er þar gert ráð fyrir, að tilraunastöðvamar f jarðrækt sjái um fyrsta lið stofnræktarinnar, þ.e.
framleiðslu á svokölluðum A-stofni en Grænmetisverslunin semji síðan við kartöflu-
framleiðendur um framhaldsræktun á því útsæði sem kallast þá B-stofn.
Tilraunastöðvarnar á Akureyri, Sámsstöðum og Skriðuklaustri hófu þessa stofnræktun
1948 en eftir 1954 var Tilraunastöðin á Akureyri ein eftir og hafði með höndum framleiðslu
á A-stofni til ársins 1968. Á þvr ári fluttist A-stofns ræktunin að Áshóli í Grýtubakkahreppi
og voru ábúendur þar með þá ræktun allt til 1990. Um 1980 komu fleiri aðilar inn í ræktun
á A-stofni, voru það bændur á jörðunum Amarhóli, Eyrarlandi og Garði í Öngulsstaðahreppi
og svo nokkru síðar Þómstöðum I í Öngulsstaðahreppi.
Grænmetisverslun ríkisins og síðar Grænmetisverslun landbúnaðarins gerðu síðan
samninga við kartöfluframleiðendur um framhaldsræktun á A-stofninum, þ.e. framleiðslu B-
stofns til sölu til hins almenna kartöflubónda. Fór sú ræktun fram hjá kartöfluframleiðendum
við Eyjafjörð og var hún yfirleitt í höndum 10-15 framleiðenda, a.m.k. hin síðari ár. Á fyrstu
árum stofnræktarinnar vom mörg afbrigði ræktuð innan hennar en þeim fækkaði fljótt og