Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.2016, Blaðsíða 62
Helgarblað 4.–7. mars 201646 Sport
K
ylfingurinn Tiger Woods
má muna sinn fífil fegurri á
golfvellinum. Það eru ár og
dagar síðan hann einokaði
golfíþróttina og var sá lang-
besti í sínu fagi. Tiger virðist aldrei
hafa náð sér almennilega á strik eftir
að hneykslismál skóku einkalíf hans
og tilveru árið 2009, sem lyktaði með
því að hann skildi við eiginkonu sína
Elin Nordegren. Meiðsli hafa einnig
leikið kappann grátt á undanförnum
árum og er alls óvíst hvenær hann
snýr aftur eftir aðgerð á baki sem
hann fór í á síðasta ári. En Tiger er
þó ekki á flæðiskeri staddur fjárhags-
lega og var enn 9. tekjuhæsti íþrótta-
maður heims samkvæmt nýjasta
tekjulista tímaritsins Forbes, með
árstekjur upp á rúmar 50 milljónir
dala, eða 6,4 milljarða króna.
Vefsíða Business Insider tók til
gamans saman lista yfir það hvernig
Tiger, sem stendur nú á fertugu,
þénar og eyðir auðæfum sínum og
hefur gert á umliðnum árum.
Þénað 173 milljarða á
ferlinum Tiger Woods var
um árabil draumaskjólstæðingur
stórfyrirtækja sem reiðubúin voru
til að greiða honum stórfé fyrir
auglýsingasamninga. Heildartekjur
Tigers á ferlinum, frá því hann gerð-
ist atvinnumaður árið 1996, nema
rúmlega 1,35 milljörðum Banda-
ríkjadala, eða sem nemur ríflega
173 milljörðum íslenskra króna.
Eins og hjá öðrum stórstjörnum
kemur minnstur hluti tekna hans
frá íþróttinni sem hann stundar. Af
þeim 50,6 milljónum dala sem hann
hafði í tekjur árið 2015 þá voru 50
milljónir dala frá styrktaraðilum á
borð við Nike, Rolex og Upper Deck.
Ekki slæmt fyrir kylfing sem vart
hefur unnið mót í þrjú ár.
14 milljarðar í verðlaunafé
Af heildartekjum Tigers í gegn-
um tíðina þá virðist það vinningsfé
sem hann hefur hlotið fyrir að vinna
á annað hundrað atvinnumanna-
mót, þar af 14 risamót, aðeins dropi
í hafið í samanburði. Tiger hefur
þó tekið heim 110 milljónir dala
frá golfvellinum á ferlinum, eða
sem nemur 14 milljörðum króna
og myndu flestir sætta sig við þá
innkomu.
Nike
er
tekjulind
Tigers
Árið 2013
var greint
frá því að
Nike hefði
endurnýjað
langtíma-
samning
sinn við
Tiger og er
hann sagð-
ur metinn
á um 200
milljónir
dala, eða 25
milljarða
króna. Nike hefur í gegnum tíðina
verið ein helsta tekjulind Tigers og
samstarf þeirra reynst ábatasamt
fyrir báða aðila frá upphafi.
Dýrkeypt lauslæti Það dró
til tíðinda þegar Tiger klessu-
keyrði bifreið sína við heimili sitt
í nóvember 2009, að því er talið er
eftir heiftarlegt rifrildi við eiginkonu
sína. Næstu vikur og mánuði kom
ýmislegt misjafnt upp á yfirborðið
og afhjúpaði að stórstjarnan hefði
lifað tvöföldu lífi um árabil. Og átt
margar
hjákonur.
Tugir
kvenna
stigu fram í
fjölmiðlum
og lýstu því
yfir að hafa
átt í ástar-
sambandi
við Tiger.
Fullkomið
orðspor
hans beið veru-
lega hnekki, styrktaraðilar létu sig
hverfa sem og eiginkona hans, Elin
Nordegren. Skilnaður þeirra árið
2010 er sagður hafa kostað Tiger
110 milljónir dala, eða sem nemur
öllu því vinningsfé sem hann hefur
sankað að sér á ferlinum.
Milljarðasnekkja Árið 2004
ákvað Tiger að gera vel við
sig og keypti sér lúxussnekkjuna
Privacy á 20 milljónir dala, eða 2,5
milljarða króna. Þar er allt til alls,
meðal annars átta manna nudd-
pottur og líkamsræktarsalur – svo
aðeins fátt eitt sé nefnt.
Stórhýsi á Flórída Árið 2006
keyptu
Tiger og Elin
sér fokdýra
landareign á
Jupiter Island
á Flórída og
byggðu sér lúxusstórhýsi frá grunni
fyrir um 55 milljónir dala, eða 7
milljarða króna. Á landareigninni
er meðal annars að finna golfvöll og
einkabryggju þar sem Tiger getur
fengið sér rúnt á snekkjunni sinni.
Eftir skilnað þeirra hjóna hefur Tiger
búið í húsinu.
Vill nota eigin húsgögn
Þegar Tiger Woods tekur þátt
í golfmótum þá leigir hann gjarnan
hús meðan á þeim stendur. Tiger vill
hins vegar hafa kunnuglega hluti í
kringum sig og skiptir því út öllum
húsgögnunum í þeim fyrir sín eigin.
Einkaþotan Auðkýfingar
eins og Tiger ferðast ekki
með hefðbundnu áætlunarflugi og
dugar því ekkert minna en glæsileg
Gulfstream G550 einkaþota fyrir allt
hans snatt milli staða og heims-
hluta. Þessi einkaþota hans er metin
á 65 milljónir dala, eða 8,3 milljarða
króna.
Gefur til góðgerðamála
Tiger lætur líka gott af sér
leiða. Árið 2011 lagði hann 11 millj-
ónir dala, eða 1,4 milljarða króna,
í góðgerðasjóð sinn, Tiger Woods
Foundation. Sjóðinn stofnaði hann
árið 1996 ásamt föður sínum Earl.
Tiger þénar vel og lifir hátt
n Svona græðir og eyðir kylfingurinn auðæfum sínum n Gengur illa í golfinu
Sigurður Mikael Jónsson
mikael@dv.is
Nóg til Tiger
Woods getur leyft
sér eitt og annað
eftir farsælan feril.
MyNd Epa
Allt á einum stað:
Prentun, merkingar og frágangur.
Inni- og útimerkingar.
Segl- og límmiðaprentun.
Ljósmynda-, striga- og segulprentun.
Textaskraut, sandblástur,
GSM hulstur og margt fleira...