Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.2016, Blaðsíða 70

Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.2016, Blaðsíða 70
54 Lífsstíll Helgarblað 4.–7. mars 2016 6 mánaða barn með bjór í pela n íslendingar hjálpa munaðarlausum börnum í Suður-afríku n Tekur á þegar ný börn bætast við H ér eru allir þakklátir fyrir góðverk jafnvel þótt þau séu mjög lítil. Ég hef ekki fyrr en nú gert mér grein fyrir því hversu gott ég hef það og hvað ég er í góðri stöðu til að gefa til baka,“ segir hinn 19 ára gamli Sigurður Erik Hafliðason sem dvel- ur um þessar mundir rétt fyrir utan Höfðaborg í Suður-Afríku og sinnir sjálfboðaliðastarfi á munaðarleys- ingjaheimili á vegum nýstofnaðra samtaka sem nefnast Norður Suður. Í janúar ræddi DV við Lilju Mar- teinsdóttur, stofnanda samtakanna, en þá var allt að verða tilbúið fyrir komu fyrstu sjálfboðaliðanna. Sam- tökin standa fyrir fjögurra vikna sjálf- boðaliðaprógrammi fyrir ungmenni á aldrinum 15 til 20 ára og dvelja þátttakendur á heimili Lilju og fjöl- skyldu hennar meðan á prógramm- inu stendur. Þakklát fyrir allan lærdóminn „Það hefur verið séð ótrúlega vel um okkur hérna og ég gæti ekki ímynd- að mér betri stað til að fá að vera og gista á,“ segir Sigurður Erik sem er augljóslega ánægður með dvölina í Suður-Afríku. Hekla Líf Júlíusardóttir, 16 ára, er einnig þátttakandi í prógramminu og tekur undir orð Sigurðar Eriks. „Ég er svo þakklát fyrir allt sem ég hef lært á þeim tíma sem ég hef ver- ið hér í Suður-Afríku og þetta kenn- ir manni hvernig maður á að njóta hverrar sekúndu í lífinu. Ég hef feng- ið að kynnast frábærum krökkum og frábæru fólki hérna. Ég vona að allir sem lesi þetta íhugi að fara í svona sjálfboðastarf hvar sem er í heimin- um. Þótt ekki væri nema bara til að sjá hvað krakkarnir sem eiga ekkert, sumir ekki einu sinni mömmu og pabba, eru alltaf glaðir og hamingju- samir með allt.“ Hafa fundist í ruslatunnum Sigurður Erik og Hekla Líf starfa daglega með bæði munaðarlausum börnum og börnum sem búa við mjög bág kjör í nágrenni Höfða- borgar og taka þátt í daglegum leik og athöfnum þeirra. Börnin hafa tek- ið íslensku ung- mennunum opn- um örmum, enda hafa þau á skömmum tíma glætt líf þeirra gleði með ýmsum uppákomum, eins og dagsferð á ströndina, sem sum barnanna höfðu aldrei upplifað áður. Hekla Líf og Sigurður Erik benda bæði á að ferð á ströndina hljómi kannski ekki stórfenglegt í hugum flestra en hún var það sannarlega í hugum barn- anna. Þá ákváðu þau að lífga aðeins upp á fábrotnar vistarverurnar á einu munaðarleysingjaheimilinu með því mála kojurnar í björtum litum og það gladdi börnin líka mikið. En vistarverurnar eru áhyggjuefni út af fyrir sig því þar eru flær og veggjalýs mikið vandamál. En það er einmitt eitthvað sem sjálfboðaliðarnir vilja taka á. Á því munaðarleysingjaheimili eru 28 börn á aldrinum sex mánaða til 18 ára en langflest þeirra hafa verið skilin eftir, meðal annars í runnum eða ruslatunnum og í veg- köntum í fátækrahverfunum. Fæst þessara barna eru nokkurn tíma ættleidd og eyða því allri barnæsku sinni á heimilinu, þar sem þau búa við bág kjör. Matur er af skornum skammti og verða þau að treysta á velvild ókunnugra þegar kemur að nauðsynjum. Mörg systkini skilin eftir Íslensku sjálfboðaliðarnir hafa tekið ástfóstri við sex mánaða dreng, Anele, sem var skilinn eftir á götunni með ekkert nema bjór í pela. En hann er eitt af sex börnum sem móð- ir hans hefur skilið eftir á víðavangi á síðustu árum. Drengurinn þjáist af afleiðingum áfengiseitrunar og þarf mikla umönnun sem ekki er í boði á heimilinu. Bleyjur og þurrmjólk eru af skornum skammti og engin sér- tæk aðstoð er í boði fyrir drenginn og starfsfólk heimilisins. Sigurður Erik og Hekla Líf ákváðu að setja af stað söfnun fyrir börnin og hafa þau nú þegar safnað miklu magni af föt- um og öðrum nauðsynjum, eins og bleyjum og mjólk. Þá hafa þau séð til þess að litli drengurinn fái hreina pela og snuð. Þriggja ára sá um eins árs bróður Lilja, sem heldur utan um pró- grammið, segir að ástandið á börn- unum taki mikið á Heklu Líf og Sig- urð Erik. Það sé sérlega erfitt fyrir þau að horfa upp á ný börn bætast í hópinn, en á síðustu vikum hafa þrjú börn komið inn á heimilið. „Þriggja ára strákur kom í síðustu viku ásamt eins og hálfs árs bróður sínum. Þeir voru teknir af heimili sínu af félags- málayfirvöldum eftir að mamma þeirra skildi þá ítrekað eftir marga daga eina heima með takmarkaðar matar- og drykkjarbirgðir. Þessi eldri hefur verið ábyrgur fyrir vel- ferð litla bróður síns frá fæðingu og bera báðir drengirnir þess augljós merki. Báðir þjást þeir af miklum næringarskorti og stríða við gríðar- legan aðskilnaðarkvíða. Þegar litli grætur má sjá þann eldri stökkva til að sinna honum,“ segir Lilja. En ólíkt öðrum börnum á heimilinu koma bræðurnir ekki til með að staldra þar lengi við. Þeir verða sendir í varan- legt fóstur á næstu dögum. Sólrún Lilja Ragnarsdóttir solrun@dv.is Ferð á ströndina Sigurður Erik og Hekla Líf fóru með hóp af munaðarlausum börnum á ströndina og það gladdi þau mikið. MyndiR SiguRðuR ERik HaFLiðaSon Á heimilinu Hérna er Hekla með litla drenginn, sem fannst með bjór í pelanum, í fanginu. Vinir Sigurður Erik með einu barni af munaðarleysingjaheimilinu. „Ég vona að allir sem lesi þetta íhugi að fara í svona sjálfboðastarf hvar sem er í heiminum. Er skipulagið í lagi...? Lausnir fyrir heimili og fyrirtæki Brettarekkar Gey mslu - og dekk jahi llur Mikil burðargeta Einfalt í uppsetningu KÍKTU VIÐ Á WWW.ISOLD.IS OPIÐ 08:00 - 17:00 Nethyl 3-3a - 110 Reykjavík Sími 53 53 600 - Fax 567 3609
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.