Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.2016, Qupperneq 70
54 Lífsstíll Helgarblað 4.–7. mars 2016
6 mánaða barn
með bjór í pela
n íslendingar hjálpa munaðarlausum börnum í Suður-afríku n Tekur á þegar ný börn bætast við
H
ér eru allir þakklátir fyrir
góðverk jafnvel þótt þau
séu mjög lítil. Ég hef ekki
fyrr en nú gert mér grein
fyrir því hversu gott ég hef
það og hvað ég er í góðri stöðu til að
gefa til baka,“ segir hinn 19 ára gamli
Sigurður Erik Hafliðason sem dvel-
ur um þessar mundir rétt fyrir utan
Höfðaborg í Suður-Afríku og sinnir
sjálfboðaliðastarfi á munaðarleys-
ingjaheimili á vegum nýstofnaðra
samtaka sem nefnast Norður Suður.
Í janúar ræddi DV við Lilju Mar-
teinsdóttur, stofnanda samtakanna,
en þá var allt að verða tilbúið fyrir
komu fyrstu sjálfboðaliðanna. Sam-
tökin standa fyrir fjögurra vikna sjálf-
boðaliðaprógrammi fyrir ungmenni
á aldrinum 15 til 20 ára og dvelja
þátttakendur á heimili Lilju og fjöl-
skyldu hennar meðan á prógramm-
inu stendur.
Þakklát fyrir allan lærdóminn
„Það hefur verið séð ótrúlega vel um
okkur hérna og ég gæti ekki ímynd-
að mér betri stað til að fá að vera og
gista á,“ segir Sigurður Erik sem er
augljóslega ánægður með dvölina í
Suður-Afríku.
Hekla Líf Júlíusardóttir, 16 ára, er
einnig þátttakandi í prógramminu
og tekur undir orð Sigurðar Eriks.
„Ég er svo þakklát fyrir allt sem ég
hef lært á þeim tíma sem ég hef ver-
ið hér í Suður-Afríku og þetta kenn-
ir manni hvernig maður á að njóta
hverrar sekúndu í lífinu. Ég hef feng-
ið að kynnast frábærum krökkum og
frábæru fólki hérna. Ég vona að allir
sem lesi þetta íhugi að fara í svona
sjálfboðastarf hvar sem er í heimin-
um. Þótt ekki væri nema bara til að
sjá hvað krakkarnir sem eiga ekkert,
sumir ekki einu sinni mömmu og
pabba, eru alltaf glaðir og hamingju-
samir með allt.“
Hafa fundist í ruslatunnum
Sigurður Erik og Hekla Líf starfa
daglega með bæði munaðarlausum
börnum og börnum sem búa við
mjög bág kjör í
nágrenni Höfða-
borgar og taka þátt
í daglegum leik og
athöfnum þeirra.
Börnin hafa tek-
ið íslensku ung-
mennunum opn-
um örmum,
enda hafa þau á
skömmum tíma
glætt líf þeirra
gleði með ýmsum
uppákomum,
eins og dagsferð
á ströndina, sem
sum barnanna
höfðu aldrei upplifað áður. Hekla
Líf og Sigurður Erik benda bæði á að
ferð á ströndina hljómi kannski ekki
stórfenglegt í hugum flestra en hún
var það sannarlega í hugum barn-
anna.
Þá ákváðu þau að lífga aðeins upp
á fábrotnar vistarverurnar á einu
munaðarleysingjaheimilinu með
því mála kojurnar í björtum litum
og það gladdi börnin líka mikið. En
vistarverurnar eru áhyggjuefni út af
fyrir sig því þar eru flær og veggjalýs
mikið vandamál. En það er einmitt
eitthvað sem sjálfboðaliðarnir vilja
taka á.
Á því munaðarleysingjaheimili
eru 28 börn á aldrinum sex mánaða
til 18 ára en langflest þeirra hafa
verið skilin eftir, meðal annars í
runnum eða ruslatunnum og í veg-
köntum í fátækrahverfunum. Fæst
þessara barna eru nokkurn tíma
ættleidd og eyða því allri barnæsku
sinni á heimilinu, þar sem þau búa
við bág kjör. Matur er af skornum
skammti og verða þau að treysta á
velvild ókunnugra þegar kemur að
nauðsynjum.
Mörg systkini skilin eftir
Íslensku sjálfboðaliðarnir hafa tekið
ástfóstri við sex mánaða dreng,
Anele, sem var skilinn eftir á götunni
með ekkert nema bjór í pela. En
hann er eitt af sex börnum sem móð-
ir hans hefur skilið eftir á víðavangi
á síðustu árum. Drengurinn þjáist af
afleiðingum áfengiseitrunar og þarf
mikla umönnun sem ekki er í boði á
heimilinu. Bleyjur og þurrmjólk eru
af skornum skammti og engin sér-
tæk aðstoð er í boði fyrir drenginn
og starfsfólk heimilisins. Sigurður
Erik og Hekla Líf ákváðu að setja af
stað söfnun fyrir börnin og hafa þau
nú þegar safnað miklu magni af föt-
um og öðrum nauðsynjum, eins og
bleyjum og mjólk. Þá hafa þau séð
til þess að litli drengurinn fái hreina
pela og snuð.
Þriggja ára sá um
eins árs bróður
Lilja, sem heldur utan um pró-
grammið, segir að ástandið á börn-
unum taki mikið á Heklu Líf og Sig-
urð Erik. Það sé sérlega erfitt fyrir
þau að horfa upp á ný börn bætast í
hópinn, en á síðustu vikum hafa þrjú
börn komið inn á heimilið. „Þriggja
ára strákur kom í síðustu viku ásamt
eins og hálfs árs bróður sínum. Þeir
voru teknir af heimili sínu af félags-
málayfirvöldum eftir að mamma
þeirra skildi þá ítrekað eftir marga
daga eina heima með takmarkaðar
matar- og drykkjarbirgðir. Þessi
eldri hefur verið ábyrgur fyrir vel-
ferð litla bróður síns frá fæðingu og
bera báðir drengirnir þess augljós
merki. Báðir þjást þeir af miklum
næringarskorti og stríða við gríðar-
legan aðskilnaðarkvíða. Þegar litli
grætur má sjá þann eldri stökkva til
að sinna honum,“ segir Lilja. En ólíkt
öðrum börnum á heimilinu koma
bræðurnir ekki til með að staldra þar
lengi við. Þeir verða sendir í varan-
legt fóstur á næstu dögum.
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
solrun@dv.is Ferð á ströndina Sigurður
Erik og Hekla Líf fóru með hóp
af munaðarlausum börnum á
ströndina og það gladdi þau
mikið. MyndiR SiguRðuR ERik HaFLiðaSon
Á heimilinu Hérna er Hekla með litla drenginn,
sem fannst með bjór í pelanum, í fanginu.
Vinir Sigurður Erik með einu barni af munaðarleysingjaheimilinu.
„Ég vona að allir sem
lesi þetta íhugi að
fara í svona sjálfboðastarf
hvar sem er í heiminum.
Er skipulagið í lagi...?
Lausnir fyrir heimili og fyrirtæki
Brettarekkar
Gey
mslu
- og
dekk
jahi
llur
Mikil burðargeta
Einfalt í uppsetningu
KÍKTU VIÐ Á WWW.ISOLD.IS OPIÐ 08:00 - 17:00
Nethyl 3-3a - 110 Reykjavík
Sími 53 53 600 - Fax 567 3609