Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.2016, Blaðsíða 32
32 Umræða Helgarblað 4.–7. mars 2016
Myndin Logn við Granda Listaverkið Þúfan nýtur sín vel og myndar skemmtilega andstæðu við hlið HB Granda. mynd Þormar ViGnir Gunnarsson
Tækifæri til breytinga
N
ú hefur verið kynnt niður-
staða stjórnarskrárnefnd-
ar um þrjú ný ákvæði í
stjórnarskrá Íslands. Í
þeim ákvæðum felast
stærstu tækifærin til lýðræðisum-
bóta í 70 ára sögu lýðveldis á Ís-
landi.
náttúruvernd
Nýtt ákvæði um vernd náttúru og
umhverfis sem skuli grundvallast á
varúðar- og langtímasjónar miðum
með sjálfbæra þróun að leiðar-
ljósi mun gjörbreyta möguleikum
okkar til að standa gegn ósjálf-
bærri atvinnuuppbyggingu. Við
munum ekki þurfa að þræta um
það hvort náttúran eigi að njóta
vafans og hvort forsendur sjálf-
bærrar þróunar séu grundvöllur
við mat á framkvæmdum. Við
munum einfaldlega geta byggt á
því að þessar grundvallarreglur
séu í stjórnarskrá.
Þjóðaratkvæðagreiðslur
Það mun skipta lykilmáli að 15%
landsmanna geti fengið að kalla
lög í þjóðaratkvæðagreiðslu (og
sumar þingsályktanir) og fengið
þannig úrslitavald um ákvarðanir,
án þess að eiga það undir mati for-
seta á hverjum tíma hvort þjóð-
in fái að fara með þetta vald. Þetta
hlutfall, 15%, er alls ekki óhóflegt
í ljósi nýlegrar reynslu af undir-
skriftasöfnunum.
Þá er gert ráð fyrir því að 25%
kosningabærra manna þurfi til að
snúa við ákvörðun Alþingis. Al-
mennt eru þátttökuþröskuldar af
þeim toga ekki góðir og rétt að hafa
þá sem lægsta. Þingræðið er hins
vegar grunnþáttur í stjórnskipan-
inni og mikil þátttaka í þingkosn-
ingum. Ágæt rök eru fyrir því að
mjög lítill minnihluti eigi ekki að
geta snúið við ákvörðunum þjóð-
kjörins þings sem hefur að baki sér
umboð þjóðarinnar. En mikilvægustu áhrif ákvæðis-
ins eru hvatningin til stjórnvalda
á hverjum tíma til að fara vel með
meirihlutavald sitt og leita víðtæk-
ari samstöðu um umdeild mál.
Þau munu ekki geta böðlast áfram
að vild, án tillits til minnihluta á
þingi eða þjóðarinnar. Það er gott
fyrir lýðræðið, gott fyrir stjórn-
málin og gott fyrir samfélagið allt.
Þjóðareign á auðlindum
Með ákvæði um þjóðareign á auð-
lindum verður til þjóðareignar-
réttur sem verður hliðsettur en
ekki undirsettur einkaeignarrétti.
Það hefur verið baráttumál jafn-
aðarmanna um áratugaskeið.
Vöntun á stjórnarskrárákvæði um
þjóðareign hefur staðið umbót-
um í auðlindanýtingu fyrir þrifum
um áratugi. Eigendur fiskveiði-
kvóta hafa haldið fram sjónarmið-
um um eignarrétt á þeim kvóta
sem þeir hafa fengið og tilraunir
til breytinga á fiskveiðistjórnar-
kerfinu hafa þurft að taka mið
af réttaróvissu um eignarréttar-
legt tilkall kvótaeigenda. Þegar ný
þjóðareignargrein í stjórnarskrá
verður að veruleika verður þeirri
spurningu svarað í eitt skipti fyrir
öll: Þjóðin á fiskveiðiauðlindina.
Sama mun eiga við um öll önnur
takmörkuð gæði, sem ekki eru
þegar háð einkaeignarrétti, allt frá
auðlindum í jörðu til fjarskipta-
tíðni. Kerfisbreytingar, eins og
breytingar á fiskveiðistjórnarkerf-
inu, verða þá mun auðveldari í
framtíðinni.
mikilvægar breytingar
Þau þrjú nýju ákvæði sem hér
hafa verið rakin munu öll fela í sér
breytingar, þótt í þeim felist ekki
heildstæð endurskoðun stjórnar-
skrár. Við höfum áreiðanlega öll
hvert um sig óskalista um ýmsar
aðrar breytingar sem við vildum
sjá á stjórnarskrá. Þá liggur fyrir sú
samþykkt í þjóðaratkvæðagreiðslu
frá 2012 að tillögur stjórnlagaráðs
skuli lagðar til grundvallar frum-
varpi sem lagt verði fyrir Alþingi.
Verkefnið er að skapa trúverðugan
ramma um efndir á þeirri sam-
þykkt og mikilvægt að segja það
skýrt að vinnu við endurskoðun
stjórnarskrárinnar verður haldið
áfram. En jafnframt er mikilvægt
að leggja áherslu á að það felst
engin mótsögn í stuðningi við
þessar breytingar og stuðningi
við frekari stjórnarskrár umbætur.
Þvert á móti mun samþykkt
þessara afmörkuðu breytinga sýna
að það er hægt að gera breytingar
og í kjölfarið skapast þrýstingur á
að halda áfram. Stóra spurningin
sem við þurfum að spyrja okkur
er ekki hvort við hefðum viljað sjá
aðrar og fleiri breytingar á stjórnar-
skrá. Henni getum við líklega flest
svarað játandi. Stóra spurningin er
frekar hvort þessi þrjú ákvæði sem
nú standa til boða, séu til góðs eða
til tjóns. Svarið við þeirri spurn-
ingu er ótvírætt: Til góðs! n
„Stóra spurningin
sem við þurfum að
spyrja okkur er ekki hvort
við hefðum viljað sjá
aðrar og fleiri breytingar á
stjórnarskrá.
Árni Páll Árnason
formaður Samfylkingar
Kjallari
mynd stefÁn KarLsson
Hannyrðabúðin
Ótrúlegt úrval!
Eyravegi 23, Selfossi
sími 555-1314
eina sanna!
Eyravegi 23, Selfossi // 555-1314
Yfir 130 tegundir af garni
fyrir prjón og hekl
Áteiknaðir dúkar í úrvali
Allt til hannyrða
á einum stað
Sendum í pósti
Sendum út
um allt land!
Allt til hannyrða á einum stað
Eyravegi 23, Selfossi // 555-1
314 //
Opið virka daga 11 - 6 og lau
gardaga 11 - 2
Úrval af útsaumspökkum
Verð frá 470.-
20. nóv verður kynning á
handgerðum hnöppum frá
ROÐ á Selfossi
Allt til hannyrða á einum stað
Eyravegi 23, Selfossi // 555-1
314 //
Opið virka daga 11 - 6 og lau
gardaga 11 - 2
140 tegundir af garni fyrir
prjón og hekl
gróft, fínt, skrautlegt, matt,
lífrænt, loðið, mislitt ...
ull, alpaka, kasmír, bómull,
hör, silki, bambus, minkur ...
hvaða lit má bjóða þér?