Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.2016, Qupperneq 2

Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.2016, Qupperneq 2
2 Fréttir Helgarblað 18.–21. mars 2016 S kúli Mogensen, eigandi og forstjóri WOW air, hefur stefnt Silicor Materials, Skipulags- stofnun og umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, til að fá hnekkt ákvörðun um að sólarkísil- verksmiðjan sem bandaríska fyrir- tækið vill byggja á Grundartanga þurfi ekki að fara í umhverfismat. Stefna Skúla, Kjósarhrepps og meðlima fé- lagsins Umhverfisvaktin við Hval- fjörð verður tekin fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag, föstudag. Sam- kvæmt heimildum DV, sem Skúli vill ekki staðfesta, er málareksturinn kost- aður af honum. „Ég styð þetta mál heilshugar og ég hef stutt við það eins og ég hef stutt við umhverfismál á ýmsum sviðum án þess að ég hafi verið að flagga því,“ segir Skúli í samtali við DV. Niðurstaðan sé röng Málarekstur Skúla og annarra stefn- enda í málinu er í höndum Málflutn- ingsstofu Reykjavíkur. Páll Rúnar M. Kristjánsson, lögmaður hópsins, sagði í samtali við Vísi í júlí í fyrra að ekki hefði farið fram nægjanleg rann- sókn á umhverfisáhrifum verksmiðj- unnar. Ákvörðun Skipulagsstofnun- ar í apríl 2014 um að hún þyrfti ekki að fara í umhverfismat væri efnislega röng og að lögum samkvæmt þyrfti slíkt mat því að fara fram. „Mér finnst stórkostlega galið ef svona framkvæmd, sem er á við fimmtán fótboltavelli, og hæð verk- smiðjunnar spannar einhverja sex til 24 metra, yfir þetta gríðarlega stóra svæði, þarf ekki að fara í umhverfis- mat. Jafnframt tel ég mjög áríðandi að menn endurskoði núverandi fyrirkomulag, að stóriðjunni, ekki einungis í Hvalfirði heldur alls stað- ar á landinu, er sjálfri ætlað að fylgj- ast með hvort hún sé að fara eftir sett- um reglum og lögum þegar kemur að mengunaráhrifum,“ segir Skúli. „Það er svo margt forneskjulegt og galið í núverandi fyrirkomulagi að ég tel löngu tímabært að láta á það reyna hvort það standist. Hvort þetta sé raunverulega það sem við viljum.“ Arnar Þór Stefánsson, lögmaður Silicor Materials, segir í samtali við DV fyrirtækið fari fram á að málinu verði vísað frá. „Enginn þessara stefnenda hefur sýnt fram á lögvarða hagsmuni af úr- lausn málsins. Þau eru eigendur jarða hinum megin við Hvalfjörðinn og að mati Silicor Materials of fjarri þessari starfsemi til að geta átt lögvarinna hagsmuna að gæta. Til vara er krafa um sýknu á þeim forsendum að lög um mat á umhverfisáhrifum geri ekki ráð fyrir því að þessi starfsemi þurfi fara í umhverfismat.“ Vill byggja hótel Silicor Materials hóf viðræður við Faxaflóahafnir og Hvalfjarðarsveit um lóð á Grundartanga árið 2013. Áform fyrirtækisins spurðust út í febr- úar árið eftir og áttu framkvæmdir við 116 milljarða króna verksmiðjuna þá að hefjast haustið 2014. Forsvars- menn Silicor hafa síðan þá fullyrt að fyrirtækið ætli að hreinsa sólarkísil með umhverfisvænni aðferð sem það hafi einkaleyfi á. Skúli hefur gagn- rýnt áform fyrirtækisins en hann hef- ur í nokkurn tíma stefnt að byggingu vistvæns hótels í Hvammsvík í Hval- firði. Í samtali við DV í júní fyrra sagð- ist hann ætla að hætta við hótelið ef sólarkísilverksmiðjan risi á Grundar- tanga. „Í síðustu viku voru fréttir um göngin á Bakka við Húsavík og þar er um beinan ríkisstyrk við stóriðjuna þar að ræða. Svo í ofanálag eru fram- lög ríkissjóðs til vegaframkvæmda lækkuð í fjárlögum í ár miðað við árið í fyrra. Sem er grátleg og óboðlegt. Það sama má segja um það sem er að eiga sér stað í Helguvík,“ segir Skúli. Hann rifjar upp frétt DV frá því fyrr í vik- unni um að fyrsta gjalddaga Thorsil ehf. á gatnagerðargjöldum vegna lóð- ar fyrir tækisins í Helguvík hefði verið seinkað í fimmta sinn. „Það liggur fyrir að það er búið að eyða hundruðum milljóna ef ekki milljörðum í að niðurgreiða þessi verk efni nú þegar. Svo geta menn ekki einu sinni staðið skil á lóðargjöldum,“ segir Skúli. n Skúli stefnir ríkinu og Silicor Materials Hópur fólks undir forystu Skúla Mogensen vill verksmiðju Silicor Materials í umhverfismat Haraldur Guðmundsson haraldur@dv.is MyNd SkeSSuHorN „Mér finnst stórkostlega galið ef svona framkvæmd, sem er á við fimmtán fót- boltavelli, og hæð verksmiðjunnar spannar einhverja sex til 24 metra, yfir þetta gríðarlega stóra svæði, þarf ekki að fara í umhverfismat. Ráðinn sveitarstjóri Langhlauparinn Gunnlaugur Júlíusson verður í dag, föstudag, ráðinn sveitarstjóri í Borgar- byggð. 26 umsóknir bárust um starfið. Gunnlaugur er hag- fræðingur að mennt en gengið verður formlega frá samningum við Gunnlaug í dag. Áður hafði byggðarráð Borgarbyggðar sam- þykkt að ganga til samninga við Guðlaug, eftir mat á umsóknum. Gunnlaugur hefur mikla reynslu af sveitarstjórnarmálum og er sviðsstjóri hag- og upplýsinga- sviðs Sambands íslenskra sveitar- félaga. Þá hefur hann verið nokk- uð í fjölmiðlum vegna þátttöku sinnar í langhlaupum, þar sem hann hleypur stundum hundruð kílómetra. Rukkað frá 1. maí Bílastæðagjald verður innheimt á Þingvöllum frá og með 1. maí. Vonir standa til að gjaldið muni skila fjörutíu til fimmtíu milljón- um króna. Ólafur Örn Haralds- son þjóðgarðsvörður segir að fjármunirnir verði nýttir til nauðsynlegra framkvæmda og til að bæta þjónustu. Gjaldið verður 500 krónur á fólksbíl og 750 krónur á jeppa og hópferðabíla fyrir átta farþega eða færri. Níu til átján manna bíl- ar greiða 1.500 krónur en stærri rútur 3.000 krónur. Gjaldið veitir heimild til að leggja bílnum í sól- arhring. Það verður innheimt á Hakinu, á Þingplani neðan Al- mannagjár og á gamla Valhallar- reitnum. Grundartangi Skúli Mogensen, forstjóri WOW air, vill verksmiðju Silicor Materials í umhverfismat. V ið sjáum það nú að inngrip stjórnvalda var nauðsyn. Án lagasetningar og afarkosta eru líkur til þess að við sætum enn að bíða eftir hugmyndum slitabúa að nauðasamningum,“ sagði Bjarni Benediktsson, fjármála- og efna- hagsráðherra, á ársfundi Seðlabanka Íslands í gær, fimmtudag, um áætlun og vinnu stjórnvalda að afnámi fjár- magnshafta. Bjarni benti þar á að framsal slita- búa föllnu bankanna á innlendum eignum þeirra til ríkissjóðs, ásamt öðrum ráðstöfunum, hafi haft „mikil og varanleg áhrif á fjárhag ríkissjóðs“. „Réttir hvatar og tímafrestir tryggðu að stærsta snjóhengjan, 30% af landsframleiðslu, var leyst á um 10 mánuðum eftir að aðgerðir stjórn- valda hófust. Þar sem ég stóð hér fyr- ir ári síðan hafði ég aðeins veika von um að okkur tækist að nýta tímann til áramóta til að ganga frá málefnum allra fallinna fjármálafyrirtækja, en það tókst,“ sagði Bjarni. n Bjarni hrósaði sigri Fjármálaráðherra ánægður á ársfundi Seðlabankans

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.