Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.2016, Síða 4
4 Fréttir Helgarblað 18.–21. mars 2016
BORÐPLÖTUR
OG SÓLBEKKIR
Bíldshöfða 12 | 110 Reykjavík | Sími 587 6688
fanntofell@fanntofell.is | Finndu okkur á Facebook
Fanntófell hefur sérhæft sig
í framleiðslu á borðplötum og
sólbekkjum frá árinu 1987
Hráefnið sem notað er til framleiðslu
er allt gæðavörur, harðplast HPL, akrílstein,
Fenix NTM og límtré. Erum með mikið úrval
efna, áferða og lita.
Framleiðum eftir óskum hvers og eins.
HARÐPLAST OG AKRÍLSTEINN
Viðhaldsfrítt yfirborðsefni með mikla endingu og
endalausa möguleika í hönnun. Upplitast ekki,
dregur ekki í sig lit, raka, óhreiningi eða bakteríur.
FENIX
Nýtt fingrafarafrítt yfirborðsefni með
einstaka eiginleika og silkimjúka viðkomu.
Efnið er mjög álagsþolið, upplitast ekki og
hefur baktreríudrepandi eiginleika.
Þ
etta er samstarfsverkefni á milli
ICIJ, Zeitung, Reykjavík Media
og fleiri miðla,“ segir Jóhannes
Kr. Kristjánsson rannsóknar-
blaðamaður, en eftirgrennslan hans
á félaginu Wintris Inc. varð til þess að
eiginkona forsætisráðherrans, Anna
Sigurlaug Pálsdóttir, upplýsti um til-
vist félagsins fyrr í vikunni. Þá sagði
hún að það þyrfti að gefa „Gróu á
Leiti“ smá frí og að menn þyrftu að
beina orkunni að því sem „skiptir
raunverulegu máli“.
Í ljós hefur komið að Anna
Sigurlaug upplýsti um félagið vegna
fyrirspurnar Jóhannesar sem vinnur
nú í samstarfi við alþjóðlegan
samstarfsvettvang rannsóknar-
blaðamanna (ICIJ), og þýska dag-
blaðið Suddeutsche Zeitung.
Samstarfið nær til fleiri erlendra
miðla að sögn Jóhannesar. Hann
varðist frétta þegar DV ræddi við
hann, en upplýsti þó að umfjöllun
um félag Önnu muni birtast á næstu
vikum. Þá boðar hann nýjan fjölmiðil
sem tekur til starfa fljótlega.
Félag Önnu Sigurlaugar er skráð á
Bresku Jómfrúreyjunum og er skráð
með lögheimili þar. Jómfrúreyjar
eru þekkt skattaskjól. Félagið greiðir
skatta hér á landi.
Wintris átti tvær samþykktar al-
mennar kröfur á hendur Kaupþingi,
samtals að fjárhæð 86,5 milljónir
króna. Miðað við að áætlaðar endur-
heimtur kröfuhafa Kaupþings eru um
24% af nafnverði mun félagið fá um
20 milljónir króna greiddar.
Þá á Wintris samþykkta kröfu á
gamla Landsbankann að fjárhæð
tæplega 174 milljónir króna. Miðað
við að áætlaðar endurheimtur al-
mennra kröfuhafa slitabús Lands-
bankans eru um 15% af nafnverði þá
mun félagið Wintris fá um 26 milljónir
króna greiddar upp í kröfu sína. n
Var að svara Jóhannesi
ICIJ með umfangsmikil skattaskjólsgögn
Fyrirspurn Jóhannesar Jóhannes er
margverðlaunaður rannsóknarblaðamaður
en fyrirspurn hans varð til þess að ráð-
herrafrúin upplýsti um huldufélag á Bresku
jómfrúreyjunum.
Í
slendingar eru í þriðja sæti
á heimsvísu þegar kemur að
læsi. Finnar tróna á toppnum
en Norðurlandaþjóðirnar raða
sér í efstu sætin. Þetta er niður-
staða nýrrar rannsóknar um lestr-
armenningu, sem unnin var af John
Miller, forseta Central Connect-
icut State University í New Britain.
Í rannsókninni voru til grundvall-
ar lagðar hefðbundnar lestrarmæl-
ingar sem og þættir sem varpa ljósi
á læsi þjóða – svo sem fjölda bóka
og bókasafna miðað við höfða-
tölu, aðgengi að dagblöðum, lengd
skyldunáms og aðgengi að tölvum.
Fréttin byggir á grein The Guardian
um rannsóknina.
Ísland er aðeins í 29. sæti þegar
kemur að námsárangri. Það sem
hífir Íslendinga upp listann er að-
gengi að dagblöðum og tölvum,
sem er óvíða betra. Þá er Ísland í
13. sæti þegar kemur að aðgengi að
bókum og bókasöfnum.
Norðurlandaþjóðirnar efstar
Í stað þess að einblína aðeins á al-
þjóðlegar lestrarmælingar horfir
Miller til læsis og aðbúnaðar til
lesturs. Hann hefur safnað saman
og birt upplýsingar um læsi 200
þjóða. Hann sækir fanga víða, svo
sem til Unesco og PISA-könnunar-
innar, sem OECD stendur fyrir. Að-
eins er þó til fullnægjandi tölfræði
um 61 þjóð af þessum 200. Hann
hefur raðað þessum þjóðum nið-
ur á lista, þar sem hann leggur
heildarmat á læsi þjóða.
Norðurlandaþjóðirnar einoka
toppsæti listans. Finnar eru efstir,
þá Norðmenn, svo Íslendingar og
loks Danir og Svíar. Svisslendingar
verma sjötta sæti og Bandaríkja-
menn það sjöunda. Aftast á listan-
um eru Taílendingar, Indónesar og
Botsvanamenn.
Færa fórnir fyrir lestur
Skýrsluhöfundur, Miller, segir að
samanburður á þeim tölfræðiþátt-
um sem snúa að læsi, endurspegli
menningarlegan styrk samfélags-
ins. Lestrarhegðun og aðbúnaður til
lestrar sé undirstaða farsællar fram-
tíðar í upplýsingadrifnum efnahag
nútímasamfélaga. Mikil vægi læsis
sanni sig á hverjum degi, um heim
allan. „Margir jarðarbúar, og jafnvel
heilu samfélögin, færa miklar fórn-
ir á hverjum degi til að læra að lesa,“
segir Miller. Sum samfélög taki
þessari þekkingu sem gefinni. Sam-
félög sem ekki leggi áherslu á læsi
séu iðulega niðurnídd og vannærð,
bæði á sál og líkama. Mannréttindi
séu þar fótum troðin og mannleg
reisn lítil.
Læsi metið að verðleikum
Rannsóknin leiðir einnig í ljós að
niðurstaðan yrði allt önnur ef bara
væri horft til árangurs á lestrarpróf-
um. Ef sá mælikvarði er aðeins not-
aður trónir Singapúr á toppnum
og önnur Kyrrahafslönd á borð við
Suður-Kóreu, Japan og Kína á með-
al efstu fimm þjóða. Finnland væri
eina þjóðin sem kæmist á topp
fimm-listann þegar horft er til lestr-
armælinga.
Þegar inn í jöfnuna eru teknir
hlutir á borð við fjölda bókasafna,
fjölda bóka á bókasöfnum, út-
breiðslu tölva, lengd skólagöngu og
fjölda dagblaða, breytast niðurstöð-
urnar mjög. Þá er ekki eitt Kyrrahaf-
sland á meðal efstu 25 þjóðanna.
Miller segir að í ljós hafi komið
að engin marktæk fylgni sé á milli
lengd skyldunáms og fjárfestinga
í menntun annars vegar og læsis
hins vegar. Hann trúir því að ástæð-
an fyrir árangri Norðurlandaþjóð-
anna sé að í menningu landanna sé
læsi metið að verðleikum. n
n Alþjóðleg lestrarpróf ekki eini mælikvarðinn n Norðurlandaþjóðirnar allar í toppsætunum
Helstu
niðurstöður
Skora hæst í læsi
1 Finnland
2 Noregur
3 Ísland
4 Danmörk
5 Svíþjóð
6 Sviss
7 Bandaríkin
8 Þýskaland
9 Lettland
10 Holland
Fjármagn lagt í menntun
1 Brasilía
2 Ísrael
3 Mexíkó
4 Belgía
5 Argentína
... 19 Ísland
Efst á lestrarprófum
1 Singapúr
2 Finnland
3 Suður-Kórea
4 Japan
5 Kína
... 29 Ísland
Flest bókasöfn (og bækur)
1 Eistland
2 Lettland
3 Noregur
4 Ísland
5 Pólland
Fjöldi dagblaða
(miðað við mannfjölda)
1 Finnland
2 Noregur
3 Þýskaland
4 Sviss
5 Tékkland
... 13 Ísland
Heimili með tölvur
1 Holland
2 Ísland
3 Danmörk
4 Lúxemborg
5 Noregur
Baldur Guðmundsson
baldur@dv.is
„Margir
jarðar-
búar, og jafnvel
heilu samfélögin,
færa miklar fórnir
á hverjum degi til
að læra að lesa
Stúlka les bók Þrátt
fyrir að Íslendingar séu
ekki framarlega í alþjóð-
legum lestrarkönnunum
benda aðrar rannsóknir til
að við séum í fremstu röð
þegar kemur að læsi.
EruM NúMEr Þrjú Í lEstri