Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.2016, Page 8

Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.2016, Page 8
8 Fréttir Helgarblað 8.–11. apríl 2016 eldbakaðar eðal pizzur sími 577 3333 www.castello.is Dalvegi 2, 201 Kópavogi / Dalshrauni 13, 220 Hafnarfirði Mágur Sigmundar Davíðs í vinnuskjali Reykjavík Media Nafntogaðir menn úr stjórnmála- og atvinnulífinu á lista RME N öfn Róberts Wessman fjár- festis, Finns Ingólfssonar athafnamanns, Eggerts Skúlasonar, ritstjóra DV, og Boga Pálssonar, mágs Sig- mundar Davíðs Gunnlaugssonar, eru meðal þeirra sem birtast á lista sem sjást í fréttaskýringaþættinum Upp- drag Granskning sem sýndur var í sænska ríkissjónvarpinu á miðviku- dagskvöld og á RÚV í gærkvöldi. Listinn, reyndist vera vinnuskjal Jóhannesar Kr. Kristjánssonar, fjöl- miðlamanns hjá Reykjavík Media, en hann hefur rannsakað Panama-skjöl- in síðastliðna tíu mánuði. Þátturinn fjallaði um skjölin og meðal annars um tengingu fyrrverandi forsætisráð- herra, Sigmundar Davíðs, við þau. Á einum tímapunkti í þættinum birtist svipmynd af lista sem á eru nöfn fjölmargra nafntogaðra einstak- linga úr íslensku viðskiptalífi, umrætt vinnuskjal úr Panama-skjölunum. Þetta staðfestir Jóhannes á Face- book. Þess má geta að ekki er hægt að leita með hefðbundnum tölvu- skipunum í gögnunum, því um er að ræða ljósmyndir af skjölum lögfræði- stofunnar Mossack Fonseca. Hvergi er um eiginlegan lista að ræða heldur skjalasafn, sem telur á 12. milljón gagna. „Þarna birtast punktar sem við unnum með á tímabili,“ sagði Jó- hannes, en Aðalsteinn Kjartansson, samstarfsmaður hans, staðfesti að listinn hefði verið birtur fyrir mistök í þættinum, sem væri óheppilegt, og að Reykjavík Media hefði ekkert haft um birtingu hans að segja. Tekið skal fram að ekki var fjall- að sérstaklega um nöfnin á umrædd- um lista í þættinum og DV hefur ekki upplýsingar um að nöfn allra sem þar eru tengist aflandsfélögum í skatta- skjólum – þó draga megi þá ályktun. DV hafði samband við fjölmarga á listanum en tekið skal fram að hann er ekki tæmandi. Þeir sem svöruðu könnuðust við að hafa komið nálægt félögum á aflandseyjum. Fleiri úr fjölskyldunni Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, fyrrverandi forsætisráðherra, hefur nú hrökklast úr embætti vegna upp- lýsinga sem komu fram í Panama- skjölunum og birtust í Kastljósi fyrir tæpri viku. Hann átti félagið Wintris, sem skráð er í þekktu skattaskjóli á Tortóla-eyjum, með eiginkonu sinni, Önnu Sigurlaugu Pálsdóttur. Sam- kvæmt vinnuskjalinu virðist Bogi Pálsson, bróðir Önnu Sigurlaugar og mágur Sigmundar Davíðs, einnig tengjast Panama-gögnunum. Ekki náðist í Boga við vinnslu fréttarinnar. Fyrrverandi ráðherra á listanum Eins og áður sagði eru nafntogaðir einstaklingar úr íslensku viðskipta- og stjórnmálalífi á vinnuskjalinu. Í samtali við DV kveðst Finnur Ing- ólfsson, sem er fyrrverandi ráðherra og fyrrverandi varaformaður Fram- sóknarflokksins, hafa átt aflandsfé- lag en því hafi verið lokað 2010. Hann bætti við að umrætt félag á listan- um hafi hann átt með Helga S. Guð- mundssyni, fyrrverandi formanni bankaráðs Landsbankans. Þá er nafn ritstjóra DV, Eggerts Skúlasonar, einnig á listanum í vinnuskjalinu. Eggert segist hafa átt félag erlend- is, en að félagið sem er tengt nafni hans á listanum sé ekki umrætt fé- lag. Hann var til rannsóknar vegna félagsins hjá sérstökum saksóknara á árunum 2012–2014, en rannsókn- in var þá felld niður. Hann vísar til til- kynningar sinnar frá árinu 2015. Einnig er að finna á umrædd- um lista sem birtist í gær Sindra Sindrason, fyrrverandi stjórnarfor- mann Eimskips og fyrrverandi for- stjóra Pharmaco, og Sigþór Sigmars- son, stjórnarmann í Novator. Sigþór vildi ekkert tjá sig um málið þegar DV náði tali af hon- um. „Ég hef ekkert um málið að segja, þetta eru gamlar fréttir.“ Kveðst Sindri kannast við að hafa átt fyrirtæki sem skráð var í gegn- um Landsbank- ann í Lúxemborg, sem var skráð á aflandseyjum. Segir félagið skattlagt á Íslandi Róbert Wessman var einnig að finna í vinnuskjalinu. „Róbert Wessman hefur ávallt tilkynnt um eign sína í Aceway til skattyfirvalda á Íslandi og tekjur félagsins hafa verið skattlagð- ar sem launatekjur hans en ekki sem fjármagnstekjur hér á landi, jafnvel þótt skráning þess væri erlendis,“ seg- ir Halldór Kristmannsson, talsmaður Alvogen. Róbert stofnaði umrætt fé- lag, Aceway, í samstarfi við Lands- bankann í Lúxemborg og var félagið skráð í Panama, en félagið hélt utan um eign hans í Actavis. Þá má nefna að Jóhann Halldórs- son, sem dró framboð sitt til stjórn- ar VÍS – klukkutíma fyrir aðalfund – á miðvikudag, kemur fyrir á vinnu- skjalinu. Hann segir við fréttastofu RÚV að málin tengist ekki. Hann hafi hætt við framboðið vegna átaka í hluthafahópnum. Frekari opinberanir handan við hornið Boðaðar hafa verið frekari opinber- anir úr Panama-skjölunum, en þau verða svo að mestu gerð opinber í maí og aðgengileg öllum. Það er að segja að frátöldum gögnum sem ICIJ, alþjóðasamtök rannsóknarblaða- manna, telja að eigi ekki erindi til al- mennings vegna persónuverndar- sjónarmiða. n einar@dv.is, arnarorn@dv.is, baldur@dv.is, astasigrun@dv.is Finnur Ingólfsson Fyrrverandi ráðherra Framsóknarflokksins er á lista Jóhannesar. Róbert Wessman Notaði félag í Panama til að halda utan um eign sína í Actavis. Eggert Skúlason Nafn ritstjóra DV er að finna í vinnuskjalinu. Mynd SIgtRygguR ARI Bogi Pálsson Mág Sigmundar Davíðs er að finna á listanum. Mynd 365 Listinn Hér má sjá vinnuskjal Jóhannesar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.