Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.2016, Blaðsíða 16
Helgarblað 8.–11. apríl 201616 Umræða
Að hlæja óvinsæl yfirvöld í hel
Þ
að hefur löngum verið
beittasta vopn almennings
í löndum þar sem stjórn-
völd eru óvinsæl en neita að
hverfa frá kjötkötlunum að
segja um þau neyðarlega brandara.
Einn brandarinn sem gekk á með-
al fólks sem þurfti að búa við hin illa
þokkuðu stjórnvöld Austur-Evrópu á
tímum Kalda stríðsins var einhvern-
veginn á þessa leið: Háskólastúdent
í hagfræði í Austur-Berlín er beðinn
um að lýsa efnahagsástandinu í
Bandaríkjunum og hann svarar óhik-
að: „Bandaríkin færast óðfluga nær
hyldýpi kreppunnar og innan fárra
ára munu þau steypast ofan í logandi
öngþveitið!“ Prófdómarar klappa,
þetta er fullkomið svar, verðskuldar
hæstu einkunn. Og næsta spurning
snýst um að lýsa efnahagsástandinu
í Sovétríkjunum, og það kemur líka
hratt, hárrétt og óhikað: „ Sovétríkin
nálgast Bandaríkin óðfluga og munu
innan fárra ára taka fram úr þeim!“
„Orður titlar úrelt þing …“
Þótt stjórnvöld séu fyrirlitin en
þaulsætin, vanræki þegnana og
sýni þeim grimmd á meðan valda-
stéttin baðar sig í munaði, þá lum-
ar almenningur alltaf á þessu beitta
vopni, það er að segja húmornum.
Eins og sást meðal annars í nefnd-
um kommúnistaríkjum í austan-
verðri Evrópu á sinni tíð. Húmors-
leysi valdhafanna þar var auðvitað
hlægilegt í sjálfu sér, og sumu þarf
ekki einu sinni að gera grín að: til
dæmis orðu- og nafnbótafarganinu
sem þeir voru alltaf að hlaða hver á
annan; pólitískir kommissarar sem
aldrei höfðu komið á vígstöðvar,
menn sem aldrei höfðu gert neitt
hetjulegra en að njósna um og kúga
samlanda sína, fengu miklu fleiri og
hærri orður og nafnbætur fyrir hug-
rekki og hetjuskap en sannar stríðs-
hetjur úr fremstu víglínu. Þessi andi
lifir enn eins og menn vita í Norður-
Kóreu, og margir hafa séð myndir af
helstu ráðamönnum þar með orð-
urnar sínar og heiðursmerki sem
ekki bara fylla jakkana bæði að
framan og aftan heldur líka buxna-
skálmarnar niður fyrir hné – þetta
er eins og að horfa á trúða.
Falsson og frystikista
kommúnismans
Sumt pólitískt grín er semsagt
þannig að það semur sig sjálft,
og varla neinu við það að bæta.
Sá sem nú væri að semja stjórn-
málarevíu á Íslandi gæti ekki samið
neitt dramatískara og fyndnara en
sænska sjónvarpsviðtalið frá liðn-
um sunnudegi. Hefði það aldrei átt
sér stað heldur bara verið samið
af til dæmis Spaugstofumönnum
eða Fóstbræðrum, þá hefði eflaust
heyrst sú krítík úr ýmsum áttum
að nú hefðu höfundarnir skotið yfir
markið; svona vitleysa myndi auð-
vitað aldrei gerast í alvörunni. Og
sama á við það ef þeir hefðu látið
braskfyrirtæki í skattaskjóli í eigu
fjármálaráðherrans og félaga hans
heita „Falsson“.
En við vorum að tala um Austur-
Evrópu á tímum Kalda stríðsins
og þannig samfélög – „frystikistu
kommúnismans“ kallaði það ein-
hver – og það grín sem almenningur
gat búið sér til um þjóðfélagsmál-
in og valdhafana. Og reyndar lágu
leiðtogar og valdastétt þeirra ríkja
gjarnan meira en vel við höggi, með
sinn hégómleika og megalómaníu.
Og var það þeim mun furðulegra
sem það blasti betur við að gjarnan
voru þetta afar litlir kallar, smá-
menni til orðs og æðis en höfðu flot-
ið upp í æðstu stöður og embætti,
eins og taðkögglar í vatni. En reynd-
ar fer það gjarnan svo í valdakerfi
og pólitík þar sem persónueigin-
leikar eins og þeir sem kenndir eru
við músina sem læðist reynast helst
ávísun á frama; í einræðisflokkum
og valdakerfi þar sem menn kom-
ast því hærra eftir því sem þeir eru
falskari og lygnari, viljugri til að
sýna tvískinnung, sýna hærra sett-
um meiri hollustu, með tilheyrandi
rassasleikjum, og eru jafnan tilbún-
ir til að selja ömmu sína í von um
bitling. Mörgum eru í fersku minni
síðustu dagar Sjáseskú-hjónanna í
Rúmeníu, og hversu furðulegt var
að sjá að því lítilsiglda fólki skyldi
hafa tekist að trúa því að það væri
ígildi þjóðfrelsara og sólkonunga í
þessu fátæka landi með sinni kúg-
uðu þjóð; þau höfðu meira að segja
látið rífa niður alla hina gamalgrónu
miðborg Búkarest til að byggja þar í
staðinn yfir sig sjálf stærstu forseta-
höll í heimi. Og svo við lítum á ný
til Norður-Kóreu; bara útlitið og
merkikertissvipurinn á því útblásna
barni sem þar fer nú með ein-
ræðisvöld er þannig að Coen-bræð-
ur eða Monty Python myndu veigra
sér við að hafa hann í skrípamynd –
það væri eiginlega „overkill“.
Austur-Evrópu húmorinn
Einn Austur-Evrópubrandaranna
var svona: Kennari spyr ungan
nemanda hver sé munurinn á
kapítal ista og kommúnista. Barnið
svarar: „Kapítalistinn elskar pen-
inga en kommúnistinn elskar fólk.“
„Mjög gott!“ segir kennarinn. „Og
hvernig birtist þetta?“ „Kapítal-
istinn læsir peningana sína niðri,“
segir nemandinn, „en kommún-
istinn læsir …“ „Já, þetta er orðið
gott,“ sagði þá kennarinn. Önnur
sagan var svona: Þrír menn sátu í
fangaklefa í DDR og ræddu um fyrir
hvað þeir sætu inni. Einn sagði:
„Ég kom fimm mínútum of seint til
vinnu, og það þótti spilla fyrir.“ Ann-
ar sagði: „Ég kom alltaf fimm mín-
útum of snemma til vinnu, og þá
var því slegið föstu að ég væri að
njósna.“ Sá þriðji sagði: „Ég mætti
alltaf á réttum tíma, svo þeir föttuðu
að ég hefði náð mér í úr frá Vestur-
löndum.“
Eitt sinn voru Erich Honecker
og Mielke, æðsti lögregluforinginn
í DDR, að ræða um áhugamál sín,
eða hobbí. Honecker sagði: „Ég
safna saman öllum bröndurum
sem eru sagðir um mig.“ Þá sagði
Einar Kárason rithöfundur skrifar
Þér að segja
„Eitt sinn voru Er-
ich Honecker og
Mielke, æðsti lögreglu-
foringinn í DDR, að ræða
um áhugamál sín, eða
hobbí. Honecker sagði:
„Ég safna saman öll-
um bröndurum sem eru
sagðir um mig.“ Þá sagði
Mielke: „Mitt hobbí er í
rauninni mjög svipað: Ég
safna saman öllum sem
segja brandara um þig.“
Kim Jong-un
„Merkikertissvipur
á útblásnu barni“
Gerðu daginn
eftirminnilegan
Kökulist | Firði Hafnarfirði og Valgeirsbakarí | Hólagötu 17 í Reykjanesbæ
Bakarameistari & Konditormeistari
Skoðaðu tertuúrvalið á heimasíðunni www.kokulist.is