Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.2016, Blaðsíða 32
Helgarblað 8.–11. apríl 201624 Sport
Gerum við Apple vörur
iP
one í úrvali
Sérhæfum okkur í Apple
Allskyns
aukahlutir s: 534 1400
E
ins og greint hefur verið frá
mun Ítalinn Antonio Conte
taka við stjórastöðunni á
Stamford Bridge í sumar.
Ljóst er að mikið verk býður
Conte hjá Chelsea í sumar, enda
liðið úr leik í svo til öllum keppnum.
Chelsea á þó enn möguleika á að
komast í Evrópudeildina.
Breska blaðið Daily Mail gerði
athyglisverða úttekt á dögunum þar
sem mat var lagt á hverjir yrðu áfram
og hverjir færu frá Chelsea í sumar,
þegar Conte tekur við stjórninni. n
Conte bíður
hreinsunarstarf
n Antonio Conte tekur við Chelsea n Líkur á að gjörbreytt Chelsea-lið mæti til leiks á næsta tímabili
Einar Þór Sigurðsson
einar@dv.is
Markverðir
Thibaut Courtois –
KYRR
Courtois er fyrsti
kostur hjá Chelsea
og ljóst er að Conte
mun leggja hart að
forsvarsmönnum Chelsea
að halda belgíska landsliðsmarkverðin
um. Orðrómur hefur verið á kreiki um að
Courtois hafi áhuga á að fara til Real Mad
rid. Eitt af fyrstu verkum Conte verður þó
að sannfæra stjórn Chelsea – og Courtois
sjálfan – um að ekki verði af því.
Asmir Begovic –
KYRR
Asmir Begovic hefur
verið varaskeifa fyrir
Courtois og verður
það áfram að óbreyttu.
Begovic ku þó vera óánægð
ur með lítinn leiktíma á tímabilinu. Þó
má gera ráð fyrir að Begovic verði áfram
á Brúnni.
Miðjumenn
Eden Hazard – FER
Hazard var yfir
burðamaður í ensku
úrvalsdeildinni á
síðustu leiktíð, en hann
hefur átt afleitu gengi
að fagna í vetur. Real
Madrid og Paris SaintGermain eru sögð
vilja fá leikmanninn og sjálfur virðist hann
vera kominn annaðhvort til Spánar eða
Frakklands – allavega í huganum.
Cesc Fabregas –
KYRR
Líkt og aðrir lykilmenn
Chelsea hefur Fabre
gas verið skugginn af
sjálfum sér á löngum
köflum. Hann hefur þó
sýnt sitt rétta andlit að undanförnu
og líklegt þykir að hann verði áfram hjá
Chelsea.
Ruben Loftus-
Cheek – KYRR
Ruben LoftusCheek er
aðeins tvítugur og það
er öllum ljóst að þarna
fer efnilegur leikmaður.
Guus Hiddink hefur notað hann talsvert að
undanförnu og líklegt þykir að Conte muni
gera slíkt hið sama á næstu leiktíð.
Nemanja Matic –
FER
Orðrómur hefur verið á
kreiki um að Matic færi
sig um set í sumar og
verði seldur til megin
lands Evrópu, mögulega
Spánar eða Ítalíu. Matic hefur átt slaka
leiktíð og ekki náð að fylgja frábærri
frammistöðu sinni síðan í fyrra eftir.
John Obi Mikel – FER
Nígeríumaðurinn hefur
þjónað Chelsea vel á
undanförnum árum og
sætt sig við að vera í
aukahlutverki á löngum
köflum. Guus Hiddink
virðist sérstaklega hrifinn
af kappanum en ekki þykir
líklegt að Conte sé jafn hrifinn af hon
um. Ekki þykir ólíklegt að John Obi Mikel
verði seldur í sumar. Það er að minnsta
kosti mat Daily Mail.
Oscar – FER
Það leikur enginn í vafi á
að Oscar er frábær leik
maður, en hann á það
til að týnast í leikjum.
Orðrómur er á kreiki um
að þessi öflugi Brassi verði
seldur í sumar og hefur fyrrverandi
félag Conte, Juventus, helst verið nefnt í
því samhengi.
Pedro – FER
Það var altalað í fyrra
sumar að Chelsea hefði
gert ótrúleg kaup þegar
það fékk Pedro frá
Barcelona. Hann kostaði
vissulega ekki mikið, um 20
milljónir punda. Eftir frábæra byrjun hefur
fjarað undan Pedro og í heildina hefur hann
sýnt lítið. Sjö mörk og tvær stoðsendingar í
34 leikjum segja allt sem segja þarf.
Willian – KYRR
Willian hefur verið einn
af fáum ljósum punkt
um hjá Chelsea í vetur
og nær engar líkur eru á
að forsvarsmenn félags
ins vilji missa hann, hvað þá
Conte. Yfirburðamaður hjá Chelsea í vetur.
Bertrand Traore – KYRR
Traore hefur fengið nokkur tækifæri í vetur
og líklegt verður að teljast að hann verði
áfram. Fjögur mörk í átta leikjum er býsna
gott fyrir tvítugan leikmann hjá Chelsea.
Kenedy – KYRR
Þessi tvítugi leikmaður
hefur líklega spilað
meira en margir bjugg
ust við í vetur. Getur leyst
ýmsar stöður, meðal
annars bakvarðarstöðuna
og miðjuna. Öflugur leikmaður
sem vert er að fylgjast með.
Varnarmenn
Branislav Ivanovic
– KYRR
Ivanovic skrifaði undir
eins árs framlengingu
á samningi sínum í
janúar síðastliðnum svo
útlit er fyrir að hann verði
áfram hjá Chelsea. Aldurinn er þó farinn að
segja til sín svo gera má ráð fyrir að næsta
tímabil verði hans síðasta hjá Chelsea.
Cesar Azpilicueta – KYRR
Spænski bakvörðurinn
talaði vel um Conte í
mars síðastliðnum og
talið er nær öruggt að
hann smellpassi inn í
hugmyndafræði Conte.
Azpilicueta er fjölhæfur, á mörg góð ár
eftir í boltanum og auk þess frábær leik
maður. Hann verður áfram hjá Chelsea.
John Terry – FER
Eins og sakir standa er ljóst að John Terry
er á leið frá Chelsea. Samningur hans renn
ur út í sumar og ekki stendur til að bjóða
honum nýjan samning. Það er ekki nema
Conte takist að sannfæra stjórn Chelsea
um annað að Terry verði mögulega áfram.
Gary Cahill – KYRR
Cahill verður áfram,
sérstaklega í ljósi þess
að Terry er á útleið.
Kurt Zouma –
KYRR
Þessi 21 árs Frakki hafði átt
góða leiktíð áður en hann
meiddist illa á hné í
febrúar. Hann verður
áfram og á framtíðina
fyrir sér hjá Chelsea.
Baba Rahman – FER
Baba Rahman kom frá
Augsburg í fyrrasumar
en hann hefur lítið kom
ið við sögu á tímabilinu.
Í þeim leikjum sem hann
hefur spilað hefur hann
ekki alveg virst tilbúinn.
Líklegt þykir að Baba Rahman fari
frá Chelsea í sumar.
Framherjar
Diego Costa – FER
Diego Costa er sagður
óánægður á Englandi,
þá einna helst með
meðferð dómara og
aganefndar enska
knattspyrnusambandsins.
Diego Costa er frábær leikmaður og
eflaust vilja forsvarsmenn Chelsea ekki
missa hann. Ekki þykir þó ólíklegt að
Chelsea muni hlusta á tilboð í leikmann
inn í sumar.
Loic Remy – FER
Flest virtist benda til þess að Remy færi
til Newcastle á láni í janúar en hann ákvað
að vera um kyrrt hjá Chelsea og berjast
fyrir stöðu sinni. Talið er nær öruggt
að Remy fari í sumar enda er hann ekki
fremstur í goggunarröðinni hjá Chelsea.
Alexandre Pato – FER
Pato þurfti að bíða í tvo mánuði eftir
fyrsta tækifærinu í Chelseatreyjunni.
Brasilíumaðurinn má muna sinn fífil feg
urri og ólíklegt þykir að Chelsea framlengi
lánssamning hans eða freisti þess að fá
hann á langtímasamningi.
Radamel Falcao
– FER
Fyrrverandi Manche
ster Unitedfloppið,
Radamel Falcao, hefur
verið jafnvel enn verra
en það var hjá Manchester
United. Eins frábær og Falcao var á sínum
tíma virðist hann vera kominn fram yfir
síðasta söludag. Sú staðreynd að Pato
kom inn á sem varamaður gegn Aston
Villa á dögunum sýnir að Falcao á enga
framtíð á Stamford Bridge.
Antonio Conte
Þykir harður í horn
að taka. Fróðlegt
verður að sjá hvað
gerist í herbúðum
Chelsea í sumar.