Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.2016, Qupperneq 30
Helgarblað 8.–11. apríl 201622 Fólk Viðtal
og pabbi hættu að vera fátæk. Það
var mjög erfitt. Ég fraus hálfpartinn
og táraðist. Þurfti að fara afsíðis. Ég
tengdi svo vel við það sem hún var
að segja, enda hafði ég sjálfur upp
lifað fátækt. Ég gat ekki hætt að
hugsa um þessa stelpu. Ef hún hafði
svona ofurtrú á því að ég gæti gert
eitthvað fyrir hana þá vildi ég helga
líf mitt því að nota rödd mína fyrir
börn sem hafa enga rödd. Búa til fal
legan töfraheim fyrir börn þar sem
þau geta fundið sjálfstraustið og lært
að láta drauma sína rætast. Töfrar
eru ekki bara spilagaldrar og sjón
hverfingar. Ef maður trúir á töfra þá
gerast kraftaverk. Og maður verður
sjálfur að hafa trú á sjálfum sér og því
sem maður ert að gera, annars ger
ist ekkert.“
Átti fjörutíu jakkaföt
Eftir námskeiðið á Skagaströnd
tók Einar Mikael þá ákvörðun
að einbeita sér alfarið að fjöl
skylduskemmtunum og hætta að
skemmta drukknu fólki á árshátíð
um. Hann fann strax að það hent
aði honum miklu betur. Og hjólin
fóru að snúast. Allt í einu var hann
farinn að framleiða sjónvarpsþætti,
kominn með þrjár vörulínur, gaf
út bækur og stofnaði galdraskóla
sem tólf þúsund börn hafa sótt. Öll
börn vissu hver hann var og skyndi
lega var hann orðinn heimsfrægur
á Íslandi. Hann segist þó ekki hafa
gert neitt af þessu til að græða pen
inga. „Málið er að þegar maður er
hæfileikaríkur og góður í því sem
maður er að gera þá er fólk reiðu
búið að borga töluvert fyrir það. En
ég er ekki ríkur maður af peningum.
Ég er hamingjusamur.“
Að því sögðu getur blaðamaður
ekki stillt sig um að spyrja hreint út:
„Ertu ekki orðinn ríkur af þessu?“
Hann brosir við spurningunni og
velur orðin af kostgæfni. „Það er
erfitt að mæla hvað það er að vera
ríkur. Það sem ég hef skilið eftir mig
er svo dýrmætt. Ég veit að ég hef
hjálpað mörgum og það skiptir mig
mestu máli. En ég er ekki veraldlega
ríkur. Ég á ekki fullt af húsum eða
sjóð á Tortola. Á tímabili átti ég allt of
mikið af hlutum sem þjónuðu eng
um tilgangi. Ég átti til dæmis fjörutíu
jakkaföt en notaði fimm. Ég hugsaði
með mér að ég hefði ekkert að gera
við svona mörg jakkaföt svo ég gaf
þau öll, nema þessi sem ég notaði.
Það er nefnilega þannig að því meira
sem maður á þá fer meiri orka í að
berjast fyrir því. Eftir því sem lífsstíll
inn verður dýrari verður erfiðara að
viðhalda honum. Þá fer meiri tími í
að vinna fyrir öllum þessum hlutum
og það verður minni tími fyrir mann
sjálfan og til að skapa. Þannig mæli
ég ríkidæmi.“
Ekki nægilegur áhugi á Íslandi
Og nú ætlar Einar Mikael að leggja
land undir fót og flytjast til Danmerk
ur þar sem hann hyggst halda áfram
að skapa og hjálpa öðrum. Hann er
búinn að undirbúa fyrirlestur fyrir
börn sem nefnist Töfraheimur
inn minn, sem gengur út á að hann
kenni börnum að búa til sinn eigin
töfraheim.
„Það sem við lærum í skóla er svo
lítið brot af því sem við þurfum að
kunna í lífinu og svo eigum við að
komast í gegnum lífið með þá þekk
ingu. Mig langar til að segja börnum
frá því hvernig ég sigraðist á öllu því
sem ég þurfti að ganga í gegnum.
Og kenna þeim hvernig það er hægt.
Hvernig maður á að eltast við drauma
sína og hafa trú á sjálfum sér. Ég hef
fengið að vinna þetta verkefni með
tveimur grunnskólum og hef náð
stórkostlegum árangri. Ég trúði varla
umbreytingunni á sumum krökkun
um,“ segir hann stoltur af verkefninu.
En þrátt fyrir góðan árangur hefur
hann ekki skynjað nægilegan áhuga
á verkefninu hér á landi, hvorki hjá
skólayfirvöldum né foreldrum. „Það
er eiginlega búið að stoppa mig af og
ég get ekki haldið áfram með það sem
ég er að gera. Ekki eins og ég hefði vilj
að.“ Það er ástæðan fyrir því að Ein
ar Mikael ætlar að freista gæfunnar í
Skandinavíu. Hann hefur kynnt verk
efnið fyrir skólayfirvöldum víða um
Skandinavíu og vel hefur verið tekið í
hugmyndina. „Ég hef ekki haft undan
að svara fyrirspurnum og eftirspurn
in er mikil. Ég vil því einbeita mér að
þessu núna. Kenna börnum ákveðna
tækni sem þau geta nýtt sér alla ævi.“
Einar Mikael viðurkennir að hann
sé spenntur að halda af landi brott.
Hann hlakkar til að læra dönskuna
betur og vonandi eignast danska
kærustu. „Síðustu sjö ár hef ég ekki
gefið mér tíma til að vera í sam
bandi en nú er ég tilbúinn að verða
yfir mig ástfanginn. Ég vil gera allt
hundrað prósent og nú finn ég að
ég er tilbúinn að vera til staðar fyrir
góða konu.“
Kveðjusýning á heimsmælikvarða
Töframaðurinn ætlar þó ekki að
láta sig hverfa frá Íslandi án þess að
kveðja aðdáendur sína. Hann ætlar
að blása til heilmikillar kveðjusýn
ingar á heimsmælikvarða. „Mér
fannst ég verða að gera eitthvað
stórt. Michael Jackson tók „This
is it“sýningu og ég ætla að gera
eitthvað svipað, taka Einar Mika
el „This is it“,“ segir töframaðurinn
og hlær. „Þetta er ein sýning, sjö ár
af töfrum, allt mitt besta og upplif
un fyrir fólkið. Ég vil gefa fólki tæki
færi til að sjá mig einu sinni enn og
kveðja,“ segir Einar Mikael en sýn
ingin verður í Bæjarbíói í Hafnarf
irði dagana 29. apríl og 1. maí. „Svo
hoppa ég bara út í maí. Það er allt
tilbúið.“ n
Ekki ríkur Einar Mikael segist
ekki vera veraldlega ríkur. Hann
er hamingjusamur og veit að
hann hefur skilið eftir sig mikil-
væga arfleið. Mynd Sigtryggur Ari „Ég man
eftir að
hafa hlaupið
heim og það
blæddi úr mér
SJÓNMÆLINGAR
LINSUR • GLERAUGU
Skólavörðustígur 2 • 101 Reykjavík
Sími: 511 2500 • www.gleraugad.is