Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.2016, Blaðsíða 38
30 Menning Helgarblað 8.–11. apríl 2016
Thealoz inniheldur trehalósa sem er náttúrulegt efni
sem finnst í mörgum jurtum og dýrum sem lifa í mjög
þurru umhverfi.
Trehalósi eykur viðnám þekjufrumna
hornhimnunnar gegn þurrki.
Droparnir eru án rotvarnarefna
og má nota með linsum.
Þurrkur í augum?
Thealoz augndropar
Fæst í öllum helstu apótekum.
Ég hef verið að glíma við augnþurrk. Ég nota
Thealoz gervitár af því mér finnst þau smyrja
augun vel, þau eru með langvarandi virkni, unnin
úr náttúrulegum efnum og þau eru laus við öll
aukaefni sem mér þykir kostur.
Heiðdís Björk Helgadóttir
Hávaðinn er fyrirboði um samfélagslegar breytingar
n Njörður Sigurjónsson dósent rannsakar hljóðmenningu íslenskra mótmæla n Skoðar hljóðhelgi Alþingis og hávaða búsáhaldabyltingarinnar
Í
mótmælunum í kjölfar efna-
hagshrunsins árið 2008 lömdu
tugþúsundir Íslendinga saman
eldhúsáhöldum til að skapa há-
vaða og raska starfsfriði alþingis-
manna, sem þeir sögðu ekki leng-
ur starfa í umboði sínu. Þingmenn
hlustuðu ekki á kröfur mótmæl-
enda og því tóku þeir orðið, börðu á
trommur, blésu í lúðra og öskruðu.
„Að gefa frá sér kröftugt hljóð er
eina tæki hins valdalausa, líkt og
þegar ungabarn gefur frá sér öskur
úr vöggu. Hávaði getur einnig orðið
útrás fyrir orku, raungerving krafts
sem býr undir niðri en hefur enga
aðra staðfestinu,“ skrifar Njörður
Sigurjónsson, dósent við Háskól-
ann á Bifröst og einn aðstandenda
námsleiðar í byltingarfræðum við
skólann, í grein í síðasta hefti Ritsins.
Hann hefur rannsakað hljóð-
menningu og tengsl (ó)hljóða og
valds, meðal annars inni á Alþingi og
í mótmælum fyrir utan það.
Hljóðhelgi þingsins rofin
„Sjónmenning hefur fengið mikla
athygli, það er myndlist, hönnun,
kvikmyndir, sjónvarp og allt það sem
við nemum með sjóninni. Hljóð-
menning er aftur á móti það sem við
nemum með eyrunum, hljóðbylgjur
og allt það sem berst okkur til eyrna.
Þegar hljóðmenning er skoðuð
spyrjum við hvaða áhrif hljóð hefur
á okkur, hvernig það er notað til að
hafa áhrif og stjórna,“ útskýrir Njörð-
ur fyrir blaðamanni.
Hugtökum og hugmyndum
hljóðmenningarfræða hefur hann
meðal annars beitt til að velta fyrir
sér skipulagi Alþingis. Hann segir að
val á fyrsta þingstað landsins megi til
dæmis útskýra með vísan til hljóm-
burðar.
„Á gamla þingstaðnum á Þing-
völlum var góður hljómburður og
hljóðið berst vel. Þegar Alþingishús-
ið var byggt var strax lögð áhersla á
að það yrði úr íslensku grjóti – grá-
grýti. Þannig átti það að kallast á við
Almannagjá og gamla þingstaðinn.
En hlutverk grjótsins breyttist, úr því
að vera til hljóðmögnunar yfir í það
að halda utan um og vera verndandi,
það er orðið að einhvers konar virk-
isveggjum til afmörkunar frá drullu-
svaðinu og hávaðanum fyrir utan.
Það tryggir að þingið hafi frið og sé
út af fyrir sig,“ segir Njörður.
Ástæðuna fyrir hinum ofsafengnu
viðbrögðum við inngöngu nímenn-
inganna svokölluðu í Alþingishúsið
í desember 2008 segir hann með-
al annars skýrast af því að þar voru
hefðir um stýringu hljóðs inni í Al-
þingishúsinu brotnar.
„Það komst einn mótmælandi
upp á þingpalla og náði að öskra þar
yfir þingfundinn: „Drullið ykkur út!“
Stóra innbrotið var í rauninni þetta
rof á hljóðhelgi þingfundarins, ógn-
in sem stafar af hávaðanum,“ segir
hann.
Hávaði sem fyrirboði um sam-
félagslegar breytingar
Í greiningu sinni á búsáhalda-
byltingunni styðst Njörður meðal
annars við hugmyndir franska hag-
fræðingsins Jacques Attali, sem hef-
ur mikið velt fyrir sér virkni hljóðs og
tónlistar.
„Hann hefur í raun sett fram
kenningu um hávaða sem eðli lífs-
ins, og lítur þá á þögnina sem dauða.
Samkvæmt honum eru átök stöðugt
að eiga sér stað í samfélaginu milli
þessara póla. Hávaði er mynd-
hverfing fyrir það sem er óbeislað,
það sem er úr takti, úr samhljómi við
samfélagið. Samhljómurinn er það
sem valdastéttirnar standa fyrir og
þær reyna að halda aftur af hávað-
anum, eða hinu ómstríða sem flæðir
um samfélagið. Þá er hægt að skýra
allt fyrirkomulag vestrænna samfé-
laga út frá tilraunum til að bæla nið-
ur hávaðann,“ segir Njörður.
„Yfirvöld reyna að beisla hávað-
ann og ná samhljómi. Þau aga hljóð-
heiminn, skipta upp og ákveða hver
hefur leyfi til að tala á hverjum tíma.
Attali álítur tónlistina til dæmis vera
eina tilraun til beislunar hávaðans,
hún sé stýringartæki til að draga úr
og aga framsetningu okkar á hljóð-
um. En hann bendir á að stundum
gjósi hið ómstríða upp og þá heyr-
um við einhvers konar misræmi eða
hávaða. Þetta getur líka átt sér stað
í tónlistinni sjálfri, til dæmis þegar
rokkið kom fram og síðar pönkið, en
líka í tilraunum á tuttugustu öldinni
innan þess sem er kallað klassísk
tónlist. Þetta er þá fyrirboði um sam-
félagslegar breytingar sem munu
síðar koma fram. Hávaðinn brýtur
sér leið og svo fylgja hinar eiginlegu
breytingar,“ útskýrir Njörður.
Vörubílstjórar slógu tóninn
Út frá þessum kenningum hefur
Njörður skoðað hvernig hávaðinn
birtist í mótmælum á Íslandi, fyrst
og fremst í kjölfar efnahagshrunsins,
í búsáhaldabyltingunni svokölluðu.
Hann segir að þá hafi Íslendingar
í fyrsta skipti beitt hávaðanum á
markvissan hátt í mótmælum.
„Það má segja að vörubílstjór-
ar hafi slegið tóninn með þessari
markvissu beitingu hávaða, með því
að þeyta flauturnar á bílunum sín-
um fyrir utan Alþingishúsið og úti
um allan bæ. Þeir byrja raunar að
mótmæla 2005 en þeirra stóru mót-
mæli voru á vormánuðum 2008.
Þetta setur mark sitt svolítið á þessi
hávaðamótmæli sem koma í kjöl-
farið og springa sérstaklega út í jan-
úar 2009,“ segir Njörður og bendir
á að tilgangurinn með hávaðanum
sem var skapaður með því að berja
saman eldhúsáhöldum hafi verið að
gera starf Alþingis ómögulegt.
„Þó að margt í þessum mótmæl-
um hafi vísað til gamalla hefða – þar
voru lúðrasveitir, kórar, ræðuhöld
og þögul mótmæli – þá má segja að
þetta sé einstakt, að minnsta kosti á
mínum líftíma, að áslætti hafi verið
beitt á þennan hátt. Klassísk íslensk
mótmæli hafa einkennst af því að
þar er einhver með gjallarhorn, slag-
orð eru hrópuð og mótmælasöngvar
sungnir. Þeir hafa gegnt mikilvægu
hlutverki en vægi þeirra hefur hins
vegar minnkað að undanförnu, mót-
mælasöngurinn var notaður til að
leggja á minnið kröfurnar, dreifa
boðskapnum og koma öllum á sömu
síðuna, hvort sem það var „Ísland
úr Nató!“ eða löng ljóð með öllum
„Stóra innbrotið
var í rauninni
þetta rof á hljóðhelgi
þingfundarins, ógnin sem
stafar af hávaðanum.
Kristján Guðjónsson
kristjan@dv.is
Hljóð og vald Njörður Sigurjónsson hefur
rannsakað hljóðmenningu Alþingis og
búsáhaldabyltingarinnar.
„Þið eruð rekin“ Í mótmælunum undanfarna
daga hefur takturinn orðið suðrænni og synkopt
ískari. Trommur og lúðrar hafa verið áberandi og
söngurinn: „Þið eruð rekin!“ Mynd SiGtryGGur Ari
Andrúmsloftið þarf ekki að vera þrúgandi
Aktívistahljómsveitin Innblástur Arkestra er opin
É
g man árið 2008 þegar allir
voru að grípa í potta og pönnur,
lemja á olíutunnur og allt það,
þá hugsaði ég: Við erum þjóð
sem erum heimsfræg fyrir tónlistar-
fólkið okkar og erum með gott kerfi
þar sem fólki er kennt að spila tón-
list, hvar er allt fólkið sem er að spila
á blásturshljóðfæri? Það vantaði
þessi menningarfræ, og við erum
reyna að vera partur af þessu nýja-
brumi,“ segir Guðlaugur Hávarðar-
son, einn meðlimur götuhljóm-
sveitarinnar Innblástur Arkestra,
sem hefur verið áberandi í mót-
mælum undanfarinna daga með
lúðrablæstri og söng.
„Þetta er samfélagslega með-
vitaður aktívistahópur. Sveitin er
opin öllum og allir geta tekið þátt,
óháð tónlistarkunnáttu. Við erum
að berjast fyrir félagslegu réttlæti
og við viljum gera tónlist aðgengi-
lega fyrir alla. Markmiðið er að veita
fólki sjálfstraust í krafti fjöldans. Þó
að þú gerir mistök og þótt þú kunn-
ir bara eina nótu, þá skiptir það ekki
máli, því það eru tuttugu manneskj-
ur þarna sem eru að spila lagið með
þér og örugglega fimm aðrir að spila
sömu laglínuna,“ segir hann.
Guðlaugur segir að hluti af til-
gangi sveitarinnar sé að spila á
kröfugöngum, mótmælum og öðr-
um viðburðum þar sem samfélags-
leg barátta á sér stað. „Persónulega
finnst mér tónlist mjög mikilvæg í
mótmælasamhengi. Þótt maður sé
að tala um alvarlega hluti og krefj-
ast nauðsynlegra breytinga þá þarf
andrúmsloftið ekki að vera þrúg-
andi, alvarlegt og reitt. Þú getur not-
ið þess – innan gæsalappa.“