Dagblaðið Vísir - DV - 03.08.2016, Side 4
Vikublað 3.–4. ágúst 20164 Fréttir
5 5 2 - 6 0 6 05 5 2 - 6 0 6 0
Ugly. is - smiðjUvegi 2 og l angarima 21
Verum þjóðleg
til hátíðabrigða
Frakkastíg 10 | Sími 551 3160 | gullkistan@vortex.is | www.thjodbuningasilfur.is
Skarta munkaklippingu
eftir frækinn sigur Magna
n Þrír feður hétu á syni sína og liðsfélaga þeirra á Landsmóti UMFÍ n Enduðu sköllóttir
Þ
etta var skemmtilegt meðan
á þessu stóð en síðan þegar
maður stóð á brókinni fyr-
ir framan spegil um kvöldið
þá runnu á mann tvær
grímur,“ segir Gísli Gunnar Odd-
geirsson frá Grenivík. Hann end-
aði, ásamt tveimur öðrum feðrum,
með klippingu sem hvaða munk-
ur á miðöldum hefði verið stoltur af
eftir að synir þeirra höfðu ásamt fé-
lögum sínum staðið uppi sem sigur-
vegar í sínum flokki í knattspyrnu á
Landsmóti UMFÍ um helgina.
Ætluðu að hvetja drengina
áfram
„Þetta eru 15–16 ára drengir sem
ólust saman upp á Grenivík. Einn
þeirra er fluttur suður og annar til
Akureyrar en þeir æskuvinirnir tóku
sig saman og ákváðu að senda lið
til leiks undir merkjum FC Magna.
Markmiðið var nú fyrst og fremst
að vera með en svo unnu þeir fyrsta
leikinn og þá var einn í liðinu búinn
að lofa því að félagar hans mættu
klippa hann eins og þeim sýndist,“
segir Gísli Gunnar kíminn. Ungi
maðurinn, Frosti Brynjólfsson, var
umsvifalaust færður á nærliggj-
andi hárgreiðslustofu þar sem, eft-
ir nokkra rekistefnu, var komist að
þeirri niðurstöðu að munkaklipp-
ing væri eina vitið. „Um kvöldið þá
ákváðum við feðurnir sem fylgd-
um liðinu að hvetja drengina áfram
með því að lofa þeim að við mynd-
um klippa okkur á sama hátt og
Frosti ef liðið
myndi vinna
mótið.“
Klipptir með
runnaklippum
Veðmálið blés
liðsmönnum
FC Magna svo
sannarlega
baráttuanda
í brjóst. „Þeir
spiluðu einfald-
lega fantavel
og unnu sann-
gjarnan sigur á
mótinu,“ seg-
ir Gísli Gunnar.
Feðurnir, sem
ásamt Gísla
Gunnari voru
þeir Þórarinn
Ingi Pétursson
og Ingvar Þór
Ingvarsson,
fengu ekki að
upplifa þann
lúxus að setjast í stól hjá lærðum
hárgreiðslumeistara heldur var
þeim skellt í stól á tjaldstæðinu þar
sem notast var við það verkfæri
sem hendi var næst. Reyndust það
vera runnaklippur. „Við vorum fyrst
klipptir með runnaklippunum en
síðan var það sem eftir stóð rakað
af með lítill vél,“ segir Gísli Gunnar.
Að hans sögn hafa hárgreiðslurnar
vakið nokkra athygli í bæjarfé-
laginu. „Ég ber þessa klippingu
áberandi best og hef verið kallað-
ur Jack Nicholson frá því að þetta
gerðist,“ segir hann hlæjandi. Að
hans sögn hafa þremenningarn-
ir fengið þá áskorun að viðhalda
klippingunni fram yfir Grenivíkur-
gleðina sem fram fer daganna 12–
14. ágúst en Gísli Gunnar vildi
ekki gefa neitt upp um fyrirætlan-
ir þeirra. „Þetta hefur verið sett í
nefnd,“ segir hann og hlær. n
Björn Þorfinnsson
bjornth@dv.is
Munkaklipping Frosti Brynjólfsson, Þórarinn Ingi Pétursson, Gísli Gunnar Oddgeirsson og
Ingvar Þór Ingvarsson.
Rúinn inn að skinni Gísli Gunnar lokar
augunum af hryllingi þegar klippurnar eru
mundaðar.
„Við vorum fyrst
klipptir með
runnaklippunum en síðan
var það sem eftir stóð
rakað af með lítilli vél.