Dagblaðið Vísir - DV - 03.08.2016, Qupperneq 8
Vikublað 3.–4. ágúst 20168 Fréttir
515 7900 | alskil@alskil.is | alskil.is
Allt fyrir raftækni
Yfir 500.000 vörunúmer
Miðbæjarradíó ehf. - Ármúla 17, Reykjavík - www.mbr.is - S: 552-8636
Þurfum að standa saman
Guðni Th. Jóhannesson er nýr forseti Íslands
Þ
að var milt og gott veður
á Austurvelli þegar Guðni
Thorlacius Jóhannesson
var settur í embætti forseta
Íslands þann 1. ágúst.
Ljósmyndari DV smellti af nokkrum
myndum frá deginum.
Viðstaddir voru meðal annarra
handhafar forsetavalds, þeir Markús
Sigurbjörnsson, forseti Hæstaréttar,
Einar Kr. Guðfinnsson, forseti
Alþingis, og Sigurður Ingi Jóhannsson
forsætisráðherra en Ólafur Ragnar
Grímsson lét af embætti á miðnætti
þann 31. júlí 2016.
Guðni gekk til helgistundar í
Dómkirkjunni ásamt eiginkonu sinni,
Elizu Reid. Agnes M. Sigurðardóttir,
biskup Íslands, stýrði athöfninni.
Þaðan fóru þau, ásamt þingmönnum,
ráðherrum, sendiherrum erlendra
ríkja og öðrum gestum yfir í
Alþingishúsið við Austur völl þar
sem innsetningarathöfnin fór fram.
Undirritaði Guðni þar drengskapareið
og fór svo ásamt eiginkonu sinni á
svalir hússins þar sem þau heilsuðu
áhorfendum og hrópuðu ferfalt húrra
fyrir landi og þjóð. Því næst hélt
Guðni inn-setningarræðu þar sem
hann ræddi meðal annars mikilvægi
fjölmenningar og stjórnarskrármálin.
„Ég end ur tek að lokum þá ósk mína
að við stöndum saman um fjöl breytn i
og frelsi, sam hjálp og jafn rétti, virð-
ingu fyrir lögum og rétti. Stöndum
saman um þessi grunn gildi góðs sam-
félags, von góð og full sjálfs trausts.
Megi sú verða gæfa okkar um alla
framtíð,“ sagði Guðni. n
Skemmtilegur dagur Mannfjöldi
fylgdist með embættistökunni frá
Austurvelli, en hægt var að horfa á hana á stórum skjá. Erlendir ferðamenn fylgdust einnig
með athöfninni, voru áhugasamir og tóku myndir.
Ásta Sigrún Magnúsdóttir
astasigrun@dv.is
Vinkuðu börnunum
Börn þeirra hjóna fylgd
ust með frá Austurvelli
og brostu forsetahjónin
blíðlega til þeirra, sem
og allra þeirra sem
komu til að hylla þau.
Spenntur Guðni sendir kveðjur
á áhorfendur á Austurvelli sem
fylgdust með og biðu eftir að
hylla nýkjörinn forseta.
Drengskapareiður
Guðni Th. Jóhannes
son undirritaði
drengskapar eið á
mánudaginn.