Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 03.08.2016, Qupperneq 10

Dagblaðið Vísir - DV - 03.08.2016, Qupperneq 10
Vikublað 3.–4. ágúst 201610 Fréttir ÞITT BESTA VAL Í LITUM HANNAH NOTAR LIT 3-65 PALETTE DELUXE NÚ MEÐ LÚXUS OLEO-GOLD ELIXIR GERÐU LIT AÐ LÚXUS FYRIR ALLT AÐ 30% MEIRI GLJÁ* NR. 1 Í EVRÓPU NÝTT Sími: 562 5900 www.fotomax.is Yfirfærum yfir 30 gerðir myndbanda, slides og fleira Björgum minningum Persónulegar gjafir við öll tækifæri Allt til að merkja vinnustaðinn Milljónagreiðslu Thorsil seinkað í sjöunda sinn Aftur samið um frestun á 140 milljóna greiðslu vegna lóðar undir kísilver í Helguvík S tjórn Reykjaneshafnar sam- þykkti nýverið að fresta í sjö- unda sinn gjalddaga fyrstu greiðslu Thorsil ehf. á gatna- gerðargjöldum. Greiðslan nemur 140 milljónum króna og var á gjalddaga í lok júlí. Fyrirtækið, sem vill byggja og reka kísilmálmverk- smiðju í Helguvík á lóð sem það fékk úthlutað í apríl 2014, átti upphaflega að ganga frá greiðslunni í desem- ber sama ár en hefur nú fengið fram- lengdan frest til 30. september næst- komandi. „Fyrirtækið telur að fjármögnun verkefnisins ljúki í ágúst en það hitt- ist þannig á að þjóðfélagið er dautt í júlí enda allir í sumarfríi. Því var ákveðið að gefa lengri frest,“ segir Halldór Karl Hermannsson, hafnar- stjóri Reykjaneshafnar sem er í eigu Reykjanesbæjar. Tímafrekt Reykjaneshöfn sendi Kauphöll Ís- lands tilkynningu þann 22. júlí síð- astliðinn þar sem kom fram að stjórn hafnarinnar hefði deginum áður komist að áðurnefndu samkomulagi við Thorsil. Var þar vísað í samkomu- lag fyrirtækjanna tveggja frá 15. mars síðastliðnum en samkvæmt því átti Thorsil að ganga frá fyrstu greiðsl- unni fyrir 15. maí. Líkt og DV greindi frá barst hún ekki og var fyrirtækinu þá aftur gefinn frestur, í sjötta skiptið, til 31. júlí. Halldór Karl Hermannsson benti í samtali við DV í maí á að seinkun greiðslunnar hefði áhrif á tekjuhlið hafnarinnar. Dagsetningar fyrir aðr- ar greiðslur Thorsil vegna lóðarinnar verði ekki ákveðnar fyrr en sú fyrsta hafi verið greidd. „Þetta er fyrst og fremst vegna þess að við vorum í samskiptum við banka þar sem margt fólk var farið í sumar- frí og því voru þeir ekki til staðar sem þurfti til að halda áfram þeirri vinnu sem við vorum í með bönkunum. Það var ákveðið að það yrði hlé þangað til það kæmi til baka úr sumarfríi. Þetta er tímafrekt og miklir pappírar,“ segir Hákon Björnsson, forstjóri Thorsil. Aðspurður segist Hákon gera ráð fyrir að fjármögnun verksmiðjunnar ljúki fyrir septemberlok. Heildarkostnaður við kísilver Thorsil er áætlaður um 275 millj- ónir dollara eða tæpir 34 milljarðar króna. Fyrirtækið sendi frá sér frétta- tilkynningu í maí síðastliðnum, eftir að Reykjaneshöfn hafði samþykkt seinkunina til 31. júlí, þar sem sagði að gatnagerðargjöldin yrðu ekki greidd fyrr en allir fyrirvarar yrðu uppfylltir. Var þar nefnt samþykkti Eftirlitsstofnunar EFTA, ESA, fyrir orkusamningi Thorsil og Landsvirkj- unar sem fékkst svo um mánuði síðar. Ætla að bjóða sérkjör Líkt og DV greindi frá í febrúar þá hef- ur Reykjaneshöfn ekki heldur borist Seinkað sjö sinnum Reykjaneshöfn samþykkti í desember 2014 beiðni Thorsil um að gjalddaga gatna- gerðargjaldanna yrði seinkað til 28. maí 2015. Þann 25. júní sama ár sendi fyrirtækið stjórninni bréf þar sem óskað var eftir frekari seinkun hans eða til 30. september 2015. Í októberbyrjun samþykkti stjórnin svo að gefa Thorsil lengri frest í þriðja sinn og þá til 15. desember. Engin greiðsla barst fyrir þann dag og ákvað stjórnin þá að seinka fyrsta gjalddaganum til 15. mars. Eftir það fékk fyrirtækið frest til 15. maí og svo til 31. júlí. Nú á Thorsil að greiða fyrir 30. september næstkomandi. Helguvík Thorsil gerði lóðarleigusamning við Reykjaneshöfn í apríl 2014. Mynd SigTryggur Ari Haraldur guðmundsson haraldur@dv.is Engin draggkeppni „En eins sárt og það er að segja það þá höfum við ákveðið að keppnin fái frí í ár. Við komum sterk og fersk aftur til leiks á næsta ári á 20 ára afmæli keppn- innar,“ segja forsvarsmenn Draggkeppni Íslands í tilkynn- ingu, en keppnin verður ekki haldin í ár. Hún var fyrst haldin árið 1997. Síðan þá hefur það verið fastur liður á Hinsegin dög- um í Reykjavík að keppt sé um titlana Draggkóngur og Dragg- drottning Íslands. Áætlað var að keppnin færi fram miðvikudaginn 3. ágúst en af því verður ekki.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.