Dagblaðið Vísir - DV - 03.08.2016, Síða 11
Vikublað 3.–4. ágúst 2016 Fréttir 11
Vinnum fyrir öll
tryggingafélög
Skútuvogi 12h, Reykjavík
S: 568-9620 - bilaretting.is
Útvegum
bifreið
meðan á
viðgerð
stendur
Ný námskeið
Hringsjá
Náms- og starfsendurhæfing
Frekari upplýsingar og skráning í síma 510 9380 eða á hringsja.is
Námskeið í ágúst og september 2016
• STYRKLEIKAR - hefst 15. ágúst
• TÖLVUR I - hefst 15. ágúst
• STYRKLEIKAR OG NÚVITUND
- hefst 30. ágúst
• ÚFF! ÚR FRESTUN Í FRAMKVÆMD
- hefst 30. ágúst
• MARKÞJÁLFUN - hefst 5. sept
• SJÁLFSUMHYGGJA lærðu að þykja
vænt um sjálfan þig - hefst 12. sept
MINNISTÆKNI - hefst 19. sept
Er ekki kominn tími til að gera eitthvað
Milljónagreiðslu Thorsil
seinkað í sjöunda sinn
100 milljóna króna greiðsla sem eig-
andi lóðarinnar undir kísilmálmverk-
smiðju United Silicon í Helguvík átti
að borga í lok nóvember 2014. Stjórn-
endum hafnarinnar og eigendum
einkahlutafélagsins Geysis Capital
greinir á um ákvæði lóðarsamnings
þeirra og eru vanskilin í innheimtu.
Víkurfréttir fjölluðu í síðustu viku
um ákvörðun forsvarsmanna kísilvers
United Silicon, sem stendur nú nán-
ast fullklárað skammt frá lóð Thorsil,
um að þeir ætli ekki að gera sérkjara-
samninga við starfsfólk fyrirtækisins.
Verksmiðjan verði keyrð á almennum
kjarasamningum og gagnrýnir Krist-
ján Gunnarsson, formaður Verka-
lýðs- og sjómannafélags Keflavíkur
og nágrennis, ákvörðunina harðlega
í samtali við fjölmiðilinn. Fullyrðir
hann að United Silicon komi til með
að reka einu stóriðju landsins án sér-
kjarasamninga.
„Okkar áform hafa alltaf verið
þau að við myndum gera sérkjara-
samninga sem tækju þá mið af sam-
bærilegum samningum sem eru í
sambærilegri starfsemi,“ segir Há-
kon Björnsson, forstjóri Thorsil, að-
spurður hvort verksmiðja fyrirtækis-
ins verði rekin samkvæmt almennum
kjarasamningum. n
Hafnarstjórinn Halldór
Karl Hermannsson.
Ánægja með Ólaf Ragnar
62,4 prósent ánægð með fyrrverandi forseta
A
lmenn ánægja ríkir með störf
Ólafs Ragnars Grímssonar,
fyrrverandi forseta, sam-
kvæmt nýrri könnun MMR.
Helstu niðurstöður: Könnunin
var framkvæmd dagana 15. til 22. júlí
2016 og var heildarfjöldi svarenda
907 manns, 18 ára og eldri. Í henni
kemur fram að 62,4 prósent þátttak-
enda kváðust vera ánægð með störf
Ólafs Ragnars Grímssonar sem for-
seta Íslands. Í síðustu könnun þar
á undan (sem lauk 4. júlí), sögðust
64,7% vera ánægð með störf forset-
ans. Tölur MMR gefa til kynna að
ekki hafi jafn margir kvaðst ánægðir
með störf forsetans síðan í byrjun árs
2013. Þá eru þeir sem styðja núver-
andi ríkisstjórn mun ánægðari með
störf forsetans fráfarandi en aðr-
ir. Sögðust 87,9% þeirra sem studdu
Framsóknarflokkinn og 81,4% þeirra
sem studdu Sjálfstæðisflokkinn vera
ánægð með störf Ólafs. Sömu ánægju
var ekki að merkja hjá liðsmönnum
Samfylkingar, Viðreisnar og Vinstri
grænna, en sögðust 38,4% þeirra
sem studdu Samfylkinguna, 43,7%
þeirra sem studdu Viðreisn og 48,3%
þeirra sem studdu Vinstri græn vera
ánægð með störf Ólafs. n
Hættur Ólafur lét af störfum þann 31.júlí
síðastliðinn. Mynd Sigtryggur Ari
Rannsaka kynferðisbrot
Hinn grunaði handtekinn skömmu eftir tilkynningu
E
itt kynferðisbrot er nú til rann-
sóknar hjá lögreglunni í Vest-
mannaeyjum eftir helgina.
Það var kært aðfaranótt
mánudags og átti sér stað skömmu
eftir miðnætti.
Í tilkynningu frá lögreglunni
í Vestmannaeyjum kemur fram
að um tengda aðila hafi verið að
ræða. Fékk þolandi viðeigandi að-
stoð. Sakborningur var handtekinn
skömmu eftir að tilkynning barst
lögreglu. Málið telst upplýst og
rannsókn vel á veg komin.
Þá kemur einnig fram að í tilefni
af fréttaumfjöllun um kynferðis-
brot á hátíðinni upplýsist að ekki
var um kynferðisbrot að ræða í því
tilviki þar sem maður var sleginn
illa í andlit og höfuð heldur ótta við
mögulegt brot.
Tíu líkamsárásir komu inn á
borð lögreglu og þar af fimm alvar-
legar þar sem um beinbrot í andliti
er að ræða. Tvö heimilisofbeldismál
komu upp og eitt brot gegn vald-
stjórn þar sem slegið var til lögreglu-
manna. Málin eru öll í rannsókn. Eitt
mál kom upp er varðar eignaspjöll
á bifreið og fjögur þjófnaðarbrot er
tengdust þjófnuðum á gsm-símum.
Heildarfjöldi fíkniefnamála var
30 að þessu sinni sem er svipað og
undanfarin ár að árinu 2015 undan-
skildu þegar upp komu 72 mál.
Grunur er um sölu- og dreifingu í um
fimm þessara mála.
Þá kemur einnig fram að lög-
regla hafi sinnt fjölmörgum verkefn-
um yfir hátíðina og leyst vel úr öll-
um verk efnum sem komu inn á borð
hennar. Í kringum 15 þúsund manns
sóttu Þjóðhátíð Vestmannaeyja í ár
og er hátíðin með þeim allra stærstu
sem haldin hefur verið. n