Dagblaðið Vísir - DV - 03.08.2016, Qupperneq 14
Vikublað 3.–4. ágúst 201614 Skrýtið
S
amkennd er tilfinning sem
við mennirnir eignum okkar
tegund og erum furðulostnir
þegar dýr sýna merki um
slíkar tilfinningar. Þrátt fyrir
það eru þess mýmörg dæmi meðal
annarra spendýra að slíkar tilfinn-
ingar bærist innra með þeim. Yfir-
leitt beinist þessi samkennd þó að
einstaklingum af sömu tegund en
árið 2009 varð sjávarlíffræðingurinn
Robert Pitman vitni að stórkostlegu
atviki.
Weddel-selur barðist fyrir lífi
sínu við Suðurskautslandið. Vaða
af háhyrningum hafði gert árás og
tekist að velta selnum af öruggum
ísnum og í hafið þar sem dauðinn
blasti við. Allt í einu kom hnúfubak-
ur einn askvaðandi og ruddist inn
í hóp háhyrninganna. Hann synti
undir selinn, sneri sér yfir á bakið og
synti upp þannig að selurinn hvíldi
í öryggi á kviði hvalsins. Því næst
synti hnúfubakurinn að næstu ís-
rönd og leyfði selnum að príla yfir í
öruggt skjól.
Pitman og samstarfsmenn urðu
forviða yfir þessu athæfi hnúfubaks-
ins. Ekkert nema fórnfýsi virtist vaka
fyrir spendýrinu ógnarstóra. Full-
orðnum hnúfubökum stafar ekki,
svo vitað sé, hætta af háhyrninga-
vöðu en oft má finna sár og áverka
á dýrunum sem greinilega eru eftir
hina grimmu ættingja Keikós. Ekki
fylgir sögunni hvort hetjan sem Pit-
man fylgdist með hafi orðið fyrir
barðinu á svekktum drápshvölum.
Annt um líf annarra tegunda
Eftir að hafa fylgst með þessu ótrúlega
athæfi hvalsins fóru Pitman og sam-
starfsmenn hans að safna gögnum
um samskipti hnúfubaka og háhyrn-
inga. Fimmtíu og fjórir sjónarvottar
höfðu orðið varir við slík samskipti á
árunum 1951 til 2012. Alls voru 115
tilvik skráð en greint var frá niðurstöð-
um Pitmans og félaga í nýjasta hefti
Marine Mammal Science. Af þessum
115 tilvikum áttu 57 prósent sér stað
að frumkvæði hnúfubakanna sem
bendir til þess að þeir leiti sérstak-
lega uppi aðstæður þar sem þeir geta
tekist á við háhyrningana. Í yfirgnæf-
andi fjölda þessari tilvika voru há-
hyrningarnir að veiða sér til matar og
yfirleitt var um að ræða aðra tegund
en hnúfubaka. Það bendir til þess að
hnúfubökum sé annt um líf annarra
tegunda en sína eigin. Hvalirnir hafa
sést bjarga sæljónum, tunglfiskum,
selum og gráhvölum. Þá hafa hnúfu-
bakarnir sést beita fjölbreyttum að-
ferðum við að berjast gegn háhyrn-
ingunum. Fyrir utan björgunina sem
Pitman varð vitni að hafa hnúfubakar
sést berja háhyrningana með bægsl-
um sínum, elta þá uppi á ógnandi
hátt og fæla þá í burtu með hávaða.
Niðurstaða vísindamannanna er
sú að hnúfubakar séu varir um sig
í kringum háhyrninga vegna þess
að rándýrin ráðast gjarnan á kálfa
hnúfubaka. Því sé það í eðli þeirra að
ráðast til atlögu þegar háhyrningar
gera sig líklega til þess að veiða sér
til matar. Hvað rekur þá áfram þegar
þeir átta sig á því að um sé að ræða
aðra tegund en þeirra eigin er enn
ráðgáta. n
Björn Þorfinnsson
bjornth@dv.is
Tilboð á Lappset
útileiktækjum 2016
Leitið til sölumanna í síma 565 1048
HEILDARLAUSNIR FYRIR LEIKSVÆÐI
- Leiðandi á leiksvæðum
jh@johannhelgi.is • johannhelgi.is
Uppsetningar, viðhald og þjónusta
• Útileiktæki
• Girðingar
• Gervigras
• Hjólabrettarampar
• Gúmmíhellur
• Fallvarnarefni
Fylgist með okkur á Facebook.com/Lyfsalinn
Uppakomur • Leikir • Tilboð
Sjálfstætt starfandi
apótek í Glæsibæ
Okkar markmið er að veita þér og þínum framúrskarandi þjónustu og ráðgjöf
Fylgist með okkur á Facebook.com/Lyfsalinn
Uppakomur • Leikir • Tilboð
Opnunartími: Virka daga 8.30-18
Laugardaga 10.00-14.00
Fórnfýsi hnúfubakanna
Sjónarvottar hafa séð hvalina bjarga selum frá háhyrningum