Dagblaðið Vísir - DV - 03.08.2016, Qupperneq 20
Vikublað 3.–4. ágúst 201620 Menning
Prufuþáttur (e. pilot) af banda-rískri útgáfu af sjónvarps-þáttaröðinni Heimsendir,
eftir Ragnar Bragason, verður
framleiddur fyrir bandarísku
áskriftarstöðina TBS. Jonathan
Ames, höfundur sjónvarpsþáttar-
aðarinnar Bored to Death, mun
skrifa þættina sem munu nefn-
ast World's end,
en Hamish
Linklater og
grínleikkon-
an Wanda
Sykes fara
með aðal-
hlutverkin.
Í október verður haldinn nokk-uð sérstæður viðburður þegar þekktasti ljósmyndari landsins,
Ragnar Axelsson, einnig þekkt-
ur sem RAX, mun segja sögur af
ljósmyndum sínum með hjálp
tóna og mynda. Myndakonsert-
inn sem fer fram í Kaldalóni í
Hörpu er haldinn í tilefni af nýrri
hátíðarútgáfu af Andlitum norð-
ursins sem kemur út á vegum
Crymogeu.
Hljómsveitin Kaleo er enn á mikilli siglingu eftir að fyrsta breiðskífa blúsuðu Mos-
fellsbæinganna sló í gegn fyrr í
sumar. Hæst komst platan A/B í
sextánda sæti á bandaríska vin-
sældalistanum
Billboard. Á
dögunum
tók sveitin
svo við gull-
plötu, fyrir
40 þúsund
seldar plötur,
í Kanada.
Um þessar mundir eru tvö ís-lensk sviðsverk sýnd á al-þjóðlegu sviðslistahátíðinni
í Tampere í Finnlandi, stærstu
sviðslistahátíð Norðurlanda.
Annars vegar er það Mávurinn
sem settur var upp í Borgarleik-
húsinu í fyrra og hins vegar er
það einleikurinn Retrospective
eftir listahópinn Rebel Rebel sem
sýndur var á Reykjavík Dance
Festival undir lok síðasta árs. Rit-
höfundurinn og sviðlistamaður-
inn Snæbjörn Brynjarsson sem
flytur einleikinn er einmitt að
taka þátt í prófkjöri Pírata sem fer
fram á sama tíma og hátíðin.
Laugavegur 24
Sími 555 7333
publichouse@publichouse.is
publichouse.is
BENTO BOX
11.30–14.00 virka daga / LUNCH
11.30–15.00 um helgar / BRUNCH
1.990 kr.
Hommar og hinsegin tónverk
n Spila verk eftir hinsegin tónskáld í Hörpu n Mikilvægt að samkynhneigðir
Þ
angað til fyrir svona 20 árum
var þessi hlið á lífi tónskáld-
anna bara þögguð niður. Það
þótti í lagi að tala um ásta-
líf Schumanns eða Mozarts
af því að þeir voru gagnkynhneigðir
og áttu konur en það mátti ekki tala
um ástarlíf hinsegin tónskálda,“ segir
Árni Heimir Ingólfsson, píanóleikari
og doktor í tónlistarfræðum, sem
stendur fyrir tónleikunum Á hinsegin
nótum á miðvikudagskvöld í Hörpu.
Þar verða leikin verk hinsegin
tónskálda, allt frá 17. aldar frönsk-
um barokkhöfundi til bandarískra
söngleikjaskálda. Á efnisskránni verða
meðal annars verk eftir Pjotr Tsjajkov-
skíj, Benjamin Britten, Leonard Bern-
stein, Stephen Sondheim, Reynaldo
Hahn, Jean-Baptiste Lully og Henry
Cowell. Á milli verka mun Árni Heimir
kynna verkin, tónskáldin og „kannski
slúðra svolítið líka.“
Valdefling og innblástur
„Á Hinsegin dögum árið 2011 héldum
við tónleika með svipað „konsept,“
tónleika fyrir klassísk hinsegin tón-
skáld. Það gekk svo vel að ég hef varla
lent í öðru eins – það var hrikalega
skemmtilegt. Síðan hef ég eiginlega
árlega verið beðinn um að endurtaka
þetta, en aldrei fundist það rétti tím-
inn – þar til núna,“ segir Árni Heim-
ir sem mun leika á píanóið og kynna
tónskáldin á milli verka. Auk hans
leika Ari Þór Vilhjálmsson á fiðlu og
Júlía Mogensen á selló á tónleikun-
um, en Eyjólfur Eyjólfsson tenór og
Hallveig Rúnarsdóttir sópran syngja.
„Fyrir utan það að halda góða tón-
leika er tilgangurinn að sýna hinseg-
in samfélaginu að slíkt fólk var til og
hefur afrekað ýmislegt í listum – þetta
er í raun valdefling fyrir ákveðið sam-
félag sem hefur verið þaggað nið-
ur. Mér finnst mikilvægast fyrir unga
krakka sem eru að koma út úr skápn-
um í dag að þeir sjái að þeir geti sótt
sér fyrirmyndir og innblástur svo víða,
það er ekki bara í poppmenninguna –
með fullri virðingu fyrir diskóstjörn-
unum og öllu því,“ segir hann.
Var Schubert hommi?
„Fram undir 1980 var ekkert af
þessum tónskáldum opinberlega
samkynhneigt. En við vitum núna
að þau voru annað hvort sam- eða
tvíkynhneigð – það er alveg á hreinu.
Það eru líka nokkur mjög fræg tón-
skáld í viðbót sem er hægt að setja
mjög stórt spurningarmerki við. Það
er til dæmis ennþá rifist mikið um
„Það þótti í lagi að tala um ástalíf
Schumanns eða Mozarts af því að þeir
voru gagnkynhneigðir og áttu konur en það
mátti ekki tala um ástarlíf hinsegin tónskálda.
Jean-Baptiste Lully
(1632–1687)
Eitt helsta tónskáld barokktímans og talinn upphafsmaður franskrar
óperu. Hann vann mestan hluta ævi sinnar við hirð Loðvíks 14. Frakkakon-
ungs. Hann datt hins vegar úr náðinni eftir að hafa verið tekinn í bólinu með
ungum karlkyns nemanda sínum.
Leonard Bernstein
(1918–1990)
Tónskáld og hljómsveitarstjóri sem er goðsögn í
bandarískri tónlistarsögu, samdi til að mynda tónlistina
við söngleikinn West Side Story. Hann var kvæntur en
eiginkona hans vissi um samkynhneigð hans.
Á hinsegin
nótum Árni Heim-
ir Ingólfsson mun
segja frá hinsegin
tónskáldum og
slúðra um ævi
þeirra á milli verka
á tónleikunum.
Mynd ÞorMar Vignir
gunnarSSon
Kristján guðjónsson
kristjan@dv.is
Enn meira stjörnustríð
Á
ður en leikstjórinn J.J. Abrams
tók við Star Wars gerði hann
sitt besta til að breyta Star
Trek í Star Wars. Og sú arfleifð
heldur áfram án hans. Til-
vistarvangavelturnar eru horfnar út í
geiminn og í staðinn fáum við geisla-
byssuhasar. Góðu fréttirnar eru þær
að þetta er nokkuð góður hasar.
Myndin byrjar á atriði sem á að
sýna þau leiðindi sem fylgja löngum
geimferðum og er nokkuð frumlegt,
en geimferðunum fylgir líka drama
þar sem allir starfsmenn eru ungir og
fallegir. Síðan fer hasarinn í gang og
Valur gunnarsson
valurgunnars@gmail.com
Kvikmyndir
Star Trek Beyond
iMdb 7,5 rottenTomatoes 83% Metacritic 68
Leikstjóri: Justin Lin
Handrit: Simon Pegg og Doug Jung
aðalhlutverk: Chris Pine, Zachary Quinto
og Karl Urban
122 mínútur
Úr listheiminum