Dagblaðið Vísir - DV - 03.08.2016, Side 22

Dagblaðið Vísir - DV - 03.08.2016, Side 22
Vikublað 3.–4. ágúst 201622 Lífsstíll Fallegir að innan sem utan Gluggagerðin framleiðir fyrsta flokks tréglugga og hurðir þar sem saman fer fallegt útlit, góð ending og vandaður frágangur. Gluggagerðin | Súðarvogi 3–5 | 104 Reykjavík | Sími 566 6630 | gluggagerdin.is SÉRSMÍÐAÐIR ÍSLENSKIR GLUGGAR Vandaðir gluggar sem hannaðir eru til að þola íslenska veðráttu Dásamleg ostabaka með rauðlaukssultu n Sölt, sæt og súr n Hentar við flest tækifæri Þ essi dásamlega baka er frábær sem léttur sumar- kvöldverður, hádegisverð- ur með salati, dögurður með sneiddum reyktum laxi, forréttur ein og sér, á hlað- borði eða í lautarferð. Tilvalið er að nota þann ost sem er í uppáhaldi hjá fjölskyldunni. Hér er osturinn ekki sparaður, enda er þetta alvöru ostabaka. Ostabaka – botn n 3 dl hveiti n Fíngurklípa af salti n 125 g smjör, nýtekið úr kæli n 2 tsk. kúmínfræ n 1–2 msk. vatn Blandið saman hveiti, salti og kúmín- fræjum í skál. Skerið smjörið í nokkra bita og bætið í skálina. Myljið saman smjör- ið og þurrefnin svo úr verði deig. Bætið við einni matskeið af köldu vatni, svo deigið verði mótanlegt. Magnið sem þarf af vatni fer eftir því hversu vel deig- ið tekur við og hitastiginu þar sem þið eruð að hnoða, mögulega þarf aðra matskeið af vatni. Nú er tekið fram bökuform eða kökuform með hringlaga kanti sem má taka af. Ef slíkt er notað er ágætt að setja bökunarpappír í botninn svo auðveldara sé að ná bökunni úr eftir bakstur. Deiginu er svo þrýst í botn og hliðar formsins og sett inn í frysti í 10 mínútur. Hitið ofn í 200 gráður á meðan. Að 10 mínútum liðnum er deigklætt formið tekið úr frysti og gafall notaður til að búa til nokkur göt í botninn. Bakað í ofni í 10 mín- útur. Fylling Blandið eftirfarandi saman: n 3 egg n 2 dl rjómi n 2 dl ab-mjólk, súrmjólk eða sýrður rjómi n 6 dl rifinn, harður ostur (Västerbotten- ostur, Tindur eða annar áþekkur) Blöndunni er hellt í forbakaða deigformið og bakað áfram við sama hitastig í 30–40 mínútur til viðbótar. Bakan bragðast dásamlega heit, volg eða köld. En það sem topp- ar hana algjörlega er rauðlauks- sultan sem er löguð samhliða bakstrinum. Rauðlaukssulta n 2–3 rauðlaukar, afhýddir og skornir í ræmur n ½ dl sykur n ½ dl hunang n ½ dl rauðvínsedik n ½ dl rauðvín 1 tsk. krydd að eigin vali, rós- marín, lambakryddblanda eða annað sem til er í kryddskápnum. Blandið öllu saman í pott og leyfið að ná hægri suðu. Látið malla í um 10–20 mínútur og kælið áður en sultan er borin fram með osta- bökunni. n Fjölbreytt Hægt er að borða bökuna sem létta sumarböku , til dæmis í lautarferð. Uppáhaldi Það er tilvalið að nota ost sem er í uppáhaldi hjá fjölskyldumeðlimum í þessa böku. myndiR sigtRyggUR aRi Bergljót Björk begga@pressan.is Sælkera preSSan

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.