Dagblaðið Vísir - DV - 03.08.2016, Qupperneq 22
Vikublað 3.–4. ágúst 201622 Lífsstíll
Fallegir að innan sem utan
Gluggagerðin framleiðir fyrsta flokks tréglugga og hurðir þar sem
saman fer fallegt útlit, góð ending og vandaður frágangur.
Gluggagerðin | Súðarvogi 3–5 | 104 Reykjavík | Sími 566 6630 | gluggagerdin.is
SÉRSMÍÐAÐIR ÍSLENSKIR GLUGGAR
Vandaðir
gluggar sem hannaðir
eru til að þola
íslenska veðráttu
Dásamleg ostabaka
með rauðlaukssultu
n Sölt, sæt og súr n Hentar við flest tækifæri
Þ
essi dásamlega baka er
frábær sem léttur sumar-
kvöldverður, hádegisverð-
ur með salati, dögurður
með sneiddum reyktum
laxi, forréttur ein og sér, á hlað-
borði eða í lautarferð.
Tilvalið er að nota þann ost sem
er í uppáhaldi hjá fjölskyldunni.
Hér er osturinn ekki sparaður,
enda er þetta alvöru ostabaka.
Ostabaka – botn
n 3 dl hveiti
n Fíngurklípa af salti
n 125 g smjör, nýtekið
úr kæli
n 2 tsk. kúmínfræ
n 1–2 msk. vatn
Blandið
saman hveiti,
salti og kúmín-
fræjum í skál.
Skerið smjörið
í nokkra bita og
bætið í skálina.
Myljið saman smjör-
ið og þurrefnin svo úr
verði deig. Bætið við einni
matskeið af köldu vatni, svo deigið
verði mótanlegt. Magnið sem þarf
af vatni fer eftir því hversu vel deig-
ið tekur við og hitastiginu þar sem
þið eruð að hnoða, mögulega þarf
aðra matskeið af vatni.
Nú er tekið fram bökuform eða
kökuform með hringlaga kanti sem
má taka af. Ef slíkt er notað er ágætt
að setja bökunarpappír í botninn
svo auðveldara sé að ná bökunni úr
eftir bakstur.
Deiginu er svo þrýst í botn og
hliðar formsins og sett inn í frysti í
10 mínútur. Hitið ofn í 200 gráður á
meðan. Að 10 mínútum liðnum er
deigklætt formið tekið úr frysti og
gafall notaður til að búa til nokkur
göt í botninn. Bakað í ofni í 10 mín-
útur.
Fylling
Blandið eftirfarandi saman:
n 3 egg
n 2 dl rjómi
n 2 dl ab-mjólk, súrmjólk eða sýrður rjómi
n 6 dl rifinn, harður ostur (Västerbotten-
ostur, Tindur eða annar áþekkur)
Blöndunni er hellt í forbakaða
deigformið og bakað áfram við
sama hitastig í 30–40 mínútur til
viðbótar.
Bakan bragðast dásamlega heit,
volg eða köld. En það sem topp-
ar hana algjörlega er rauðlauks-
sultan sem er löguð samhliða
bakstrinum.
Rauðlaukssulta
n 2–3 rauðlaukar, afhýddir og skornir í
ræmur
n ½ dl sykur
n ½ dl hunang
n ½ dl rauðvínsedik
n ½ dl rauðvín
1 tsk. krydd að eigin vali, rós-
marín, lambakryddblanda eða
annað sem til er í kryddskápnum.
Blandið öllu saman í pott og
leyfið að ná hægri suðu. Látið malla
í um 10–20 mínútur og kælið áður
en sultan er borin fram með osta-
bökunni. n
Fjölbreytt Hægt er að borða bökuna sem létta sumarböku , til dæmis í lautarferð.
Uppáhaldi Það er tilvalið að nota ost sem
er í uppáhaldi hjá fjölskyldumeðlimum í
þessa böku. myndiR sigtRyggUR aRi
Bergljót Björk
begga@pressan.is
Sælkera
preSSan