Dagblaðið Vísir - DV - 03.08.2016, Blaðsíða 24
Vikublað 3.–4. ágúst 201624 Fólk
Ótrúleg augnablik
Ljósmyndirnar segja meira en nokkur orð
1957
Það getur verið erfitt
að skilgreina og festa
hendur á hvað einelti
er nákvæmlega, en
þessi mynd gerir
því vel skil. Dorothy
Counts er hér fremst
á myndinni. Hún var
fyrsta svarta konan
til þess að fara í skóla
sem hafði fram að
því aðeins verið fyrir
hvíta nemendur. Hér
sést vel hvernig aðrir
nemendur hæðast
að henni, en hún situr
keik.
Mynd don Sturkey report
1967
Skipuleggjendur Boston-
maraþonsins reyna að stöðva
Katherine Switzer í miðju hlaupi.
Henni var óheimilt að taka þátt
því konum var bannað að hlaupa
svo langar vegalengdir. Hún varð
fyrsta kona heims til að ljúka
hlaupinu.
1961
Íbúar Vestur-Berlínar
sýna nýbökuðum ömm-
um og öfum barnabörn-
in sín, yfir vegginn til
austurs.
Mynd rarehiStoricalphotoS report
1967
Það er ekki hlaupið að
því að breyta gatna-
kerfum, eins og sést
vel á þessari mynd.
Hún sýnir vel það
ástand sem skapaðist
þegar Svíar skiptu úr
vinstri í hægri umferð
með tilheyrandi ringul-
reið. Morguntraffíkin
hefur átt betri daga.
FÁKASEL - FYRIR ALLA
Ingolfshvoll, 816 Ölfus | fakasel@fakasel.is | símI: 483 5050
matur, drykkur
og skemmtun
Gerum við Apple vörur
iP
one í úrvali
Sérhæfum okkur í Apple
Allskyns
aukahlutir s: 534 1400