Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.2016, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.2016, Blaðsíða 22
Helgarblað 16.–19. desember 20162 Flutningaþjónusta - Kynningarblað Vöruflutningar eru valkostur við flutningarisana tvo Jón Tómas og Vöruflutningar.is É g er valkostur við Eimskip og Samskip um búslóðaflutninga milli Íslands og Skandinavíu og vöruflutninga innanlands. Stundum er ég allt að 40% ódýrari, stundum næ ég ekki að vera ódýrari, það fer allt eftir eðli verk­ efnanna hverju sinni. Hér er engin yfirbygging og þjónustan er hurð í hurð, það eru engin vöruhús, lyft­ arar eða starfsfólk á milli, sem sagt engir milliliðir, heldur flyt ég vöruna eða búslóðina upp að dyrum í hvert einasta skipti.“ Þetta segir Jón Tómas Ásmundsson, sem rekur flutninga­ þjónustu undir heitinu Vöruflutn­ ingar.is. Hann hefur starfað við vöru­ flutninga frá árinu 1993 og kveður þar mest að reglulegum vöruflutn­ ingum milli Reykjavíkur og Akureyr­ ar sem fara fram tvisvar í hverri viku. En síðustu fimm ár hafa búslóða­ flutningar milli Íslands og hinna Norðurlandanna verið mjög fyrir­ ferðarmiklir. Jón segist raunar líka hafa flutt búslóðir til Spánar og er hann opinn fyrir flutningum hvert sem er, en langmest kveður að Skandinavíu­flutningunum. Flutn­ ingabílunum er þá ekið til Seyðis­ fjarðar þar sem þeir fara um borð í Norrænu. Túrinn tekur allt í allt tvær vikur. Jón Tómas segir marga veigra sér við að nýta sér þjónustu hans þar sem þeir finni meira öryggi í því að skipta við þekkt fyrirtæki eins og Eimskip og Samskip. Reynslan og orðsporið vinni hins vegar alltaf með honum og þeir sem hafi einu sinni átt við­ skipti við hann mæli nær alltaf með honum við aðra. Einfaldur rekstur og engin yfirbygging gera honum kleift að bjóða oft mun betra verð en stóru flutningafélögin. „Ég er með þrjá flutningabíla í eigin eigu en ég kalla alltaf til mín samstarfsaðila fyrir stærri verk­ efni. Ég er í samstarfi við nokkra fé­ laga sem sinna vöruflutningum eins og ég en ég er sá eini þeirra sem er í búslóðaflutningum milli Íslands og hinna Norðurlandanna. En ég get einfaldlega tekið það með mér sem hentar hverju sinni og ef ég er búinn að fylla mína bíla hef ég einfaldlega samband við félagana.“ Að sjálfsögðu er Jón Tómas ávallt opinn fyrir alls konar verkefnum og gerir sér far um að bjóða mjög samkeppnisfært og hagstætt verð. Nánari upplýsingar um þjón­ ustuna veitir Jón Tómas í síma 896­ 2063 en einnig er áhugavert að skoða heimasíðuna voruflutningar. is og Facebook­hópinn Jón Tómas Flutningar­ Ísland Noregur­ Noreg­ ur Ísland, til að fá upplýsingar um þjónustuna. n

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.