Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.2016, Blaðsíða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.2016, Blaðsíða 27
Helgarblað 16.–19. desember 2016 Kynningarblað - Flutningaþjónusta 7 Búslóðaflutningar flytja allt Glænýtt fjölskyldufyrirtæki í örum vexti B úslóðaflutningar ehf. er sannkallað fjölskyldufyrir- tæki enda rekið af systkinun- um Söru Sigurvins- dóttur og Axel Þorsteinssyni. Nýlega bættist litla systir þeirra inn í hópinn, Edda Sigurvinsdótt- ir, en hún er meira- prófsbílstjóri. Einnig er faðir þeirra, Ómar, þeim til halds og trausts en hann hefur áralanga reynslu í sendibílaakstrinum. „Við leggjum upp úr persónulegri og skjótri þjón- ustu,“ segir Sara og bætir við að bíl- stjórar sinni útköllum hvar sem er á höfuðborgarsvæðinu og skutli hvert á land sem er, alveg heim að dyrum. Ævintýrið byrjaði í nóvember 2015 með grænum tíu tonna sendi- ferðabíl. Í desember í fyrra bættist svo við tólf rúmmetra Ford Transit sem er mjög hentugur í alls kyns dreifingu og minni flutninga. Fyrir- tækið er í stöðugum uppvexti og nú í apríl stækkaði flotinn enn og aftur. Um er að ræða tólf tonna Benz Atego með kælivél og er hann tilvalinn í stórar búslóðir og fyrirtækjaflutn- inga. Bílafloti Búslóðaflutninga ehf. er staðsettur í Hraunbæ í Reykja- vík og flytur fyrirtækið hvert á land sem er. „Það hefur verið mjög mik- ið að gera hjá okkur í vor og sumar en með haustinu hefur hægt aðeins á, enda kemur þetta í bylgjum. Við erum þó starfandi allt árið og óski viðskiptavinur eftir því, þá flytjum við á nóttunni. Við erum náttúrlega þjónustufyrirtæki,“ segir Sara. Þrátt fyrir nafnið sér Búslóðaflutningar ehf. um alhliða flutninga svo sem búslóðaflutninga, píanóflutninga og fyrirtækjaflutninga. „Ef það kemst fyrir í bílunum hjá okkur þá flytjum við það,“ segir Sara. Búslóðaflutningar ehf. er stað- sett í Hraunbæ 182 í Reykjavík og með lögheimili í Laxatungu 23, Mos- fellsbæ. Viðskiptavinir geta pantað þjónustu fyrirtækisins með því að hafa samband í síma 893-5888 eða með því að senda vefpóst á busloda- flutningar@simnet.is. Nánari upp- lýsingar má svo nálgast á Facebook- síðu Búslóðaflutninga ehf. n

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.