Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.2016, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.2016, Blaðsíða 20
Helgarblað 16.–19. desember 201620 Fólk Viðtal Þ orgerður er fædd árið 1965, dóttir hjónanna Gunnars Eyjólfssonar leikara og Katrínar Arason deildar- stjóra. Hún ólst upp fyrstu æviárin í Vesturbænum en flutti sjö ára gömul með foreldrum sínum og eldri systur í Breiðholtið. „Ég er Breiðhyltingur að upplagi og naut þess frelsis sem börn í Breiðholti nutu á þeim tíma, sem voru ómalbikaðar götur, frelsið niðri í Elliðaárdal, fullt af leikfélögum í hverfi í uppbyggingu. Margar af mín- um bestu vinkonum enn í dag eru stelpur sem ég kynntist sem barn í Breiðholtinu. Það voru bara átta hús í götunni og í næsta húsi við mig bjó Hanna Kata sem nú er þingflokksfor- maður Viðreisnar. Við urðum góðar vinkonur, vorum saman í handbolt- anum í ÍR eins og fleiri góðar stelp- ur. Það einkenndi Breiðholtið á þess- um tíma að það voru sterkar stelpur þarna, í minni götu sem víðar.“ Hefði verið óbærilegt að verða KR-ingur Þurfti að vera töggur í stelpunum, vegna umhverfisins? „Ég veit það svo sem ekki, en um- hverfið mótar mann. Þetta var dá- lítið hrátt allt saman og það voru mikil umskipti að flytja úr tiltölu- lega vernduðu umhverfi úr leik- arablokkinni í Vesturbænum. Ég var til dæmis á góðri leið með að verða KR-ingur, sem hefðu auðvitað verið alveg óbærileg örlög, þótt það hafi alltaf verið sætir strákar í KR. Þetta ómótaða frelsi sem við nutum þarna uppi í Breiðholtinu á frumbýlisárum þess var nýtt og skilaði sér í skapandi hugsun og þroska.“ Að þið flytjið upp í Breiðholtið, úr því sem kallað hefur verið menn- ingarsinnað hverfi, Vesturbænum, þóttu það tíðindi? „Mér fannst það æðislegt og mikið ævintýri. Sumum þótti það hins vegar ekkert rosalega fínt þá, að flytja í Breiðholtið, og fannst frekar að mamma og pabbi ættu bara að búa niðri í bæ. En það var þeirra stíll, að og gera það sem stendur hjart- anu næst. Ég hef alltaf verið þakk- lát fyrir að alast upp í Breiðholtinu. Stundum þegar ég segi að ég sé Breiðhyltingur þá horfir fólk á mig og segir: Já, nú skil ég margt – ertu sem sagt Breiðholtsvillingur? Ég er reyndar bara stolt af því og vona að „Vona að ég sé ennþá villingur“ Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir er snúin aftur á svið íslenskra stjórnmála og það með miklum gusti. Þorgerður yfirgaf sviðið árið 2013 en hafði fyrir þann tíma verið ein helsta vonarstjarna Sjálfstæðis­ flokksins, ráðherra og varaformaður hans. Hrunið og eftirmálar þess ollu því að Þorgerður leit svo á að tíma sínum í stjórnmálum væri lokið en heillaðist af stefnu nýs framboðs, Viðreisnar, og ákvað að taka slaginn. Viðreisn náði miklum árangri í kosningunum, ekki síst Þorgerður sem kjörin var 4. þingmaður Suðvesturkjördæmis. Hún boðar ný stjórnmál, aukið frjálslyndi og samvinnu og segir að við lifum ótrúlega áhugaverða tíma í íslenskri pólitík. Vill meira frjálslyndi Þorgerður Katrín Gunnars- dóttir er snúin aftur í stjórnmálin og hyggst berjast fyrir opnara og frjálslyndara samfélagi. Mynd SiGtRyGGuR ARi Freyr Rögnvaldsson freyr@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.