Fréttablaðið - 20.06.2017, Page 26
Það er frábært að fá tilnefningu til þessara verðlauna og viðurkenning. Þau verða veitt
í nóvember við hátíðlega athöfn í
Finnlandi og er verðlaunaféð fimm
milljónir,“ segir Rakel Garðarsdóttir
en þær Elva Björk Barkardóttir hafa
verið tilnefndar til umhverfisverð-
launa Norðurlandaráðs.
Tilnefninguna hljóta þær fyrir
líkamsskrúbb sem þær framleiða
úr endurnýttum kaffikorgi, þara,
sjávarsalti og olíum. Skrúbburinn
er fyrsta varan í snyrtivörulínunni
Verandi og byggir á hugmynda-
fræði um minni sóun og umhverfis-
vitund.
„Það er miklu sóað í heiminum
í dag, af öllu. Ísland er þar engin
undantekning. Almennt finnst mér
hráefni og afurðir illa nýtt,“ segir
Rakel. Hún hafi því stofnað sam-
tökin Vakandi til að vekja athygli á
matarsóun og í spjalli yfir kaffibolla
hafi þær Elva fengið hugmyndina
að Verandi líkamsskrúbbnum.
Mikil virkni í korginum
„Kaffi kemur langa vegalend til
Íslands og þegar búið er að hella
einu sinni upp á espresso er
korginum hent. Samt er um það bil
90 prósent virkni enn þá í kaffi-
korginum. Ég tók einnig eftir því að
korgurinn fer ekki alls staðar í líf-
rænan úrgang. Á mörgum stöðum
er honum hent og endar í landfyll-
ingu. Það tekur bæði upp land og
breytist þar í metangas. Ég hafði
sjálf notað kaffikorginn heima,
bæði í beðin og sem sturtuskrúbb.
Þurrkaði hann einfaldlega og
notaði án olía. Okkur Elvu langaði
hins vegar að gera þetta dálítið
fínt og notum þara, sjávarsalt og
olíur í skrúbbinn. Við fengum inni
hjá Matís og helltum okkur út í
þróunarvinnu,“ útskýrir Rakel.
Lífrænt ræktað
Korginn fá þær frá veitingastað
IKEA, þar sem mikið fellur til dag-
lega. Umhverfissjónarmið fyrir-
tækisins höfðu einnig sitt að segja.
„Við völdum að nota kaffið
frá IKEA þar sem þar er einungis
notað lífrænt ræktað kaffi og IKEA
stundar einnig sanngjarna við-
skiptahætti (Fair trade). Samstarfið
við IKEA er frábært og í raun kom
mér á óvart hvað kaffið er mikil
gæðavara frá þeim,“ segir Rakel.
Skaðlaust umhverfinu
„Við gerum einnig kröfu um að olí-
urnar sem við notum í skrúbbinn
séu hreinar og komi frá heiðar-
legum stöðum. Önnur innihalds-
efni eru þari og sjávarsalt en við
vinnum út frá þeirri hugmyndafræð
að afurðin geti runnið skaðlaust út
í sjó. Fjöldi snyrtivara inniheldur
mikið magn eiturefna, paraben og
plastefni svo dæmi séu tekin og allt
rennur þetta út í sjóinn á endanum.
Sérstaklega geta skrúbbar inni-
haldið plastagnir og það eru þá þær
sem skrúbba húðina. Fiskar éta
plastagnirnar og svo borðum við
fiskinn. Það er ekki góð hringrás.
Náttúrulegar snyrtivörur verða
þó alltaf vinsælli og vinsælli en þá
þarf einnig að hafa í huga að ekki sé
gengið á auðlindir við framleiðslu
þeirra. Það er að mörgu að huga í
þessum efnum og ég er viss um að
endurnýting á hráefni sem fellur til
við aðra framleiðslu, verði þróunin
með snyrtivörur, þar sem það er
hægt,“ segir Rakel.
Þær Elva hafi þegar hafið frekari
þróun á fleiri vörum.
„Við erum að skoða byggsag
frá Vallanesi og erum að þróa úr
afgöngum frá Omnom súkkulaði.
Þá erum við einnig að skoða þróun
á vörum úr bláberja- og krækiberja-
hrati sem verður til við saftgerð.
Þetta gengur allt mjög vel og er
ótrúlega gaman. Mjög krefjandi
auðvitað, við viljum ekki stytta
okkur leið. Þetta snýst um hugsjón,
að gera heiminn aðeins betri en
hann er og sóa minna.“
Þá erum við einnig
að skoða þróun á
vörum úr bláberja og
krækiberjahrati sem
verður til við saftgerð.
Ragnheiður
Tryggvadóttir
heida@365.is
Þvottaefnið MILT
fyrir barnið er
umhverfisvottað og
hentar ákaflega vel fyrir
ungbörn og þá sem eru
með viðkvæma húð.
MILT þvottaefnið er umhverfisvænt og án ofnæmisvaldandi efna.
Það inniheldur hvorki ilm- eða
litarefni. MILT þvottaefnið hefur
verið þróað til að draga úr líkum á
ofnæmisviðbrögðum. Þvottaefnið
er með Svansvottun en Svanurinn
er opinbert umhverfismerki Norð-
urlandanna. MILT fyrir barnið er
einnig með bláa kransinn en hann
er staðfesting frá dönsku astma- og
ofnæmissamtökunum um að varan
hafi verið þróuð til þess að minnka
líkur á ofnæmisviðbrögðum.
Húð ungra barna er þunn
og viðkvæm. Ónæmiskerfið er
sömuleiðis óþroskað. Þess vegna
skiptir miklu máli að erta ekki húð
barnanna að óþörfu. Þvottaefnið
MILT fyrir barnið þvær barna-
fötin með góðum árangri án þess
að valda ertingu. MILT framleiðir
einnig MILT fyrir allan þvott en
það hentar öllum hinum í fjöl-
skyldunni.
Mikilvægt er að þvo barnaföt
fyrir fyrstu notkun en það er gert
til að minnka líkurnar á því að
framleiðsluefni í fötunum erti
húðina og valdi jafnvel ofnæmis-
viðbrögðum. Einnig er gott að
skola þvottinn aukalega í lokin
en flestar þvottavélar bjóða upp á
slíka stillingu.
Verðandi eða nýbakaðir for-
eldrar geta skráð sig á MILT.is og fá
þá senda gjöf frá MILT. Í versl-
unum er einnig hægt að taka þátt
í skemmtilegum sumarleik. Glæsi-
legir vinningar eru í boði.
Án ofnæmisvaldandi efna
Neytendur reyna að vera meðvitaðir um þá
kosti sem valdir eru fyrir börnin þeirra. Þess
vegna hefur Mjöll Frigg ákveðið að endur-
kynna þvottaefnið MILT fyrir barnið.
Rakel og Elva
Björk hyggja á
frekari vöru-
þróun úr hráefni
sem fellur til
við aðra fram-
leiðslu, svo sem
úr súkkulaði,
byggi og berja-
hrati. FRétta-
BLaðið/anton
BRink
tilnefndar til verðlauna
Þær Rakel Garðarsdóttir og Elva Björk Barkardóttir hafa verið tilnefndar til
umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs fyrir líkamsskrúbb úr kaffikorgi.
8 kYnninGaRBLað 2 0 . j ú N í 2 0 1 7 Þ R i ðJ U DaG U R
2
0
-0
6
-2
0
1
7
0
4
:3
7
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
1
F
-9
7
5
C
1
D
1
F
-9
6
2
0
1
D
1
F
-9
4
E
4
1
D
1
F
-9
3
A
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
4
8
s
_
1
9
_
6
_
2
0
1
7
C
M
Y
K