Fréttablaðið - 20.06.2017, Blaðsíða 30
Notaðu stutt
þvottakerfi í þvotta-
vélinni til að vernda
umhverfið, spara orku og
peninga.
Það er minna mál að hvíla einkabíl-
inn og nota hjólið en margir halda.
Á vef Umhverfisstofnunar kemur
fram að stór hluti þeirra ferða sem
farnar eru á einkabíl innan höfuð-
borgarsvæðisins eru innan við þrír
kílómetrar. Því eru miklar vega-
lengdir alls engin fyrirstaða til að
taka fram hjólið.
Á vefnum eru gefin nokkur
gagnleg ráð til þeirra sem vilja kjósa
bíllausan lífsstíl og nota hjólið. Bent
er á að gott sé að skoða leiðina vel
áður en lagt er af stað. Göngu- og
hjólastígakerfi á höfuðborgarsvæð-
inu má finna á www.borgarvefsja.
is og þar er hægt að nota stiku til að
mæla vegalengdir milli staða. Einn-
ig er bent á að gott sé að setja sér
markmið, til dæmis að hjóla tvisvar
í viku í vinnuna til að byrja með og
auka síðan smátt og smátt.
Á vef Hjólafærni (www.hjolafa-
erni.is) má finna fjölda svokallaðra
korterskorta og sex mínútna korta
af nokkrum sveitarfélögum lands-
ins. Kortin sýna þann radíus sem
má hjóla út frá á sex eða fimmtán
mínútum á hverjum stað. Vefurinn
hjolreidar.is inniheldur líka hafsjó
af fróðleik um flest sem tengist hjól-
reiðum.
Heimild: www.ust.is.
Notaðu hjólið
Ný rannsókn bandarískra vísinda-
manna bendir til þess að hand-
þvottur upp úr köldu vatni drepi
jafn margar bakteríur og ef notað
er heitt vatn. Frá rannsókninni var
greint í tímaritinu Journal of Food
Protection.
Vísindamenn við Rutgers háskól-
ann í New Brunswick vildu kanna
hvort þær leiðbeiningar sem eru
í gangi í matvælageira Bandaríkj-
anna um að nota þurfi heitt vatn
við handþvott stæðist skoðun.
Rannsóknin var gerð á 20 manns.
Hendur þeirra voru þaktar bakt-
eríum. Kom í ljós að þvottur upp
úr 15 gráðu heitu vatni skilaði jafn
hreinum höndum og þegar notað
var 38 gráðu heitt vatn. Einnig kom
í ljós að magn sápu hafði lítið að
segja.
Rannsakendur telja að þessar
niðurstöður geti leitt til sparnaðar
í matvælageiranum enda ódýrara
að nota kalt vatn en heitt.
Kaldur þvottur
jafn góður
Vatn er ekki óendanleg uppspretta
á jörðu vorri en þeim mun dýr-
mætara. Til að verða græn í vatns-
notkun er gott að hafa eftirfarandi
til hliðsjónar:
l Notaðu stutt þvottakerfi í
þvottavélinni til að vernda
umhverfið, spara orku og
peninga.
l Láttu laga hvers kyns leka á
heimilinu, hvort sem það er
í pípulögnum, krönum eða í
salerninu.
l Farðu í stutt steypibað í stað
langra sturtuferða.
l Skrúfaðu fyrir vatnið þegar
þú burstar tennurnar. Þeir eru
fljótir að renna lítrarnir.
l Skiptu yfir í minni sturtuhaus í
stað stórs sem er með miklum
vatnsþrýstingi.
l Sjóddu bara það vatn sem þig
vantar í te- eða kakóbollann.
Verum græn í vatnsnotkun
VELJUM MEÐ
HJARTANU
svanurinn.is @svanurinn
Veljum Svansmerkta þjónustu og vörur sem eru framleiddar
í sátt við umhverfið. Það er það minnsta sem við getum gert.
12 KYNNINGARBLAÐ 2 0 . j ú n í 2 0 1 7 ÞRIÐJUDAGUR
2
0
-0
6
-2
0
1
7
0
4
:3
7
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
1
F
-B
E
D
C
1
D
1
F
-B
D
A
0
1
D
1
F
-B
C
6
4
1
D
1
F
-B
B
2
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
4
8
s
_
1
9
_
6
_
2
0
1
7
C
M
Y
K