Fréttablaðið - 20.06.2017, Blaðsíða 46

Fréttablaðið - 20.06.2017, Blaðsíða 46
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is, Hafsteinn Hafsteinsson hafsteinn@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Jóhann Waage johannwaage@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Ólafur H. Hákonarson olafurh@365.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is Hu g m y n d i n um að fara í langt ferða-lag kviknaði hjá Helgu Björk Árna- dóttur í kringum jólin árið 2015 og hlutirnir þróuðust svo þannig að kærastinn, Hlynur Kristjánsson, fór með. „Mig hafði alltaf dreymt um að fara til Suður-Ameríku, en aldrei fundist vera rétti tíminn, eða haft neinn til að fara með. Eftir að hafa fleytt hugmynd- inni við nokkra nána vini ræddi ég við stelpu hjá Kilroy sem kom með nokkrar hugmyndir og í lok mars 2016 lagði ég upp með að bóka flug og gistingu til Kúbu, þar sem ég myndi vera í mánuð að læra spænsku. Við Hlynur fórum svo að hittast í lok júní og eftir samtal einhvern tímann um miðjan ágúst ákvað hann að koma með mér,“ útskýrir Helga. Ferðalagið byrjaði á Kúbu og eftir dvölina þar tók við meira ævintýri. „Við byrjuðum á Kúbu, flugum því næst til Mexíkó og höfum unnið okkur áfram þaðan. Við tókum bát frá suðurhluta Mexíkó yfir til Belís, rútu þaðan til Gvatemala og svo fórum við til Hondúras, þar sem við vörðum tveimur mánuðum á eyju sem heitir Utila. Ég var þar að læra köfun og kláraði að læra „PADI Dive- master“ þar.“ „Eftir það fórum við svo til Níka- ragva, Kosta Ríka, Panama og flug um þaðan til Bogotá í Kólumbíu. Við vörðum þremur vikum í að ferðast innan Kólumbíu og fórum eftir það til Ekvador, Galapagos, Perú, Bólivíu, Síle og núna erum við í Argentínu,“ segir Helga, sem hefur núna verið á flakki í um það bil átta mánuði. Helga og Hlynur eru hvergi nærri hætt að kanna nýjar slóðir. „Við áætl- um að koma heim í júlílok. Ferðin verður því rúmlega níu mánuðir í heildina.“ Erfiðast að hitta ekki vini og fjölskyldu Það er eflaust marga Íslendinga sem dreymir um að fara í sams konar ævintýraferð og Helga og Hlynur létu verða að veruleika. Spurð út í hvað það erfiðasta við að láta til skara skríða hafi verið segir Helga: „Það hitti þannig á að hvorugt okkar átti eignir og vinnuveitandinn okkar sýndi okkur mjög mikinn stuðning þegar við ræddum við hann að fara í langtímaleyfi. Áhættan var því frekar lítil og við höfðum nægan tíma til að undirbúa okkur. Erfiðast var að vita að við myndum ekki hitta fjölskyldu og vini í einhverja mánuði, en allir sýndu okkur mikinn stuðning og með internetinu getur maður alltaf spjallað þegar söknuður grípur mann, að því gefnu að netið virki!“ Helga sér ekki eftir ákvörðun sinni um að fara í þetta langa ferðalag enda hefur það gengið vel. „Ég var á þeim stað í lífinu að ég hugsaði með mér: „Ef ég geri þetta ekki núna, þá mun ég aldrei láta verða af svona ferðalagi. Hvernig myndi mér líða að hugsa til baka, vit- andi það að ég hafði fullkomið tæki- færi og lét ekki verða af því?“ Eftir að hafa spurt Hlyn að sömu spurningu nokkrum mánuðum seinna hugs- aði hann málið aðeins og endaði á því að vera sammála. Það eina sem við höfðum planað áður en við fórum út var að fara til Kúbu og fljúga svo til Mexíkó. Það hefur tekið á að þurfa að plana hvern dag fyrir sig og vita stundum ekki hvar maður myndi gista það kvöldið, en þetta hefur gengið ótrú- lega vel.“ En hvað er það besta við að hafa látið drauminn rætast? „Það besta er hvað við höfum séð mikið af stöðum sem okkur bæði er búið að dreyma um síðan við vorum krakkar. Meðal hápunktanna í ferðinni hefur verið að horfa á sólarupprás- ina yfir Tikal, að læra að kafa í Utila, skoða eldfjöllin í Níkaragva, skoða dýralífið á Kosta Ríka, ganga 50 km á fjórum dögum í gegnum frum- skóginn til að sjá Ciudad Perdida í Kólumbíu og margt fleira!“ „Ég held að marga dreymi um svona ferðlagað að einhverju leyti, en geta ekki látið verða af því, hver svo sem ástæðan er – peningar, skuldbindingar heima fyrir eða aðrar ástæður. Ég ætla ekki að segja að þetta hafi verið „auðvelt“, en þegar skrefið er tekið og ákvörðunin er komin, þá er þetta auðveldara en margur heldur,“ segir Helga sem vonar að þessi lesning muni veita fólki innblástur til að láta sína draumaferð rætast. gudnyhronn@365.is Settu lífið á Íslandi í bið til að fara á flakk Parið Helga Björk Árnadóttir og Hlynur Kristjánsson tóku sér frí frá vinnunni og sögðu skilið við lífið á Íslandi fyrir átta mánuðum. Síðan þá hafa þau ferðast um Suður-Ameríku og sjá ekki eftir neinu. Helga og Hlynur hafa komið víða við á ferðalagi sínu. Þessi mynd var tekin í Machu Picchu. BÍLALAND BÝÐUR BÍLA Á FRÁBÆRUM KJÖRUM! KOMDU STRAX Í DAG OG TRYGGÐU ÞÉR GÓÐAN BÍL FRÁ BÍLALANDI ÚRVAL NOTAÐRA BÍLA HYUNDAI I40 Wagon Style Nýskr. 06/13, ekinn 55 þ.km, dísil, sjálfskiptur. VERÐ 2.890 þús. kr. Range Rover Evoque SE Nýskr. 05/16, ekinn 10 þ.km, dísil, sjálfskiptur. VERÐ 6.970 þús. kr. LAND ROVER Discovery 4 S Nýskr. 06/15, ekinn 65 þ.km, dísil, sjálfskiptur. VERÐ 7.590 þús. kr. TOYOTA Auris Terra Nýskr. 12/14, ekinn 22 þ.km, bensín, beinskiptur. VERÐ 2.390 þús. kr. RENAULT Captur Dynamic Nýskr. 04/15, ekinn 34 þ.km, dísil, beinskiptur. VERÐ 2.290 þús. kr. KIA Rio EX. Nýskr 12/13, ekinn 50 þ.km, bensín, sjálfskiptur. VERÐ 1.990 þús. kr. Rnr. 152852 Rnr. 330795 Rnr. 192268 Rnr. 370593 Rnr. 320958 Rnr. 390071 www.bilaland.is Kletthálsi 11 - 110 Reykjavík og Hyundai notaðir bílar - Kauptúni 1 - 210 Garðabæ Sími: 525 8000 - bilaland@bilaland.is Opið frá kl. 9–18 og á laugardögum frá kl. 12–16. www.facebook.com/bilaland.is E N N E M M / S ÍA / N M 8 2 7 1 0 B íl a la n d A lm e n n 2 x 3 8 2 0 jú n í Þau hafa m.a. heimsótt Páskaeyjuna og Salar de Uyuni í Bólivíu. 2 0 . j ú n í 2 0 1 7 Þ R I Ð j U D A G U R26 l í f I Ð ∙ f R É T T A B l A Ð I Ð 2 0 -0 6 -2 0 1 7 0 4 :3 7 F B 0 4 8 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 D 1 F -9 C 4 C 1 D 1 F -9 B 1 0 1 D 1 F -9 9 D 4 1 D 1 F -9 8 9 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 4 8 s _ 1 9 _ 6 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.