Fréttablaðið - 20.06.2017, Side 46
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is,
Hafsteinn Hafsteinsson hafsteinn@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI
512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Jóhann Waage johannwaage@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Ólafur H. Hákonarson olafurh@365.is, FÓLK OG
SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is,
Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
Hu g m y n d i n um að fara í langt ferða-lag kviknaði hjá Helgu Björk Árna-
dóttur í kringum jólin árið
2015 og hlutirnir þróuðust
svo þannig að kærastinn,
Hlynur Kristjánsson, fór með.
„Mig hafði alltaf dreymt um
að fara til Suður-Ameríku, en
aldrei fundist vera rétti tíminn,
eða haft neinn til að fara með.
Eftir að hafa fleytt hugmynd-
inni við nokkra nána vini ræddi
ég við stelpu hjá Kilroy sem kom
með nokkrar hugmyndir og í lok
mars 2016 lagði ég upp með að
bóka flug og gistingu til Kúbu,
þar sem ég myndi vera í mánuð að
læra spænsku. Við Hlynur fórum
svo að hittast í lok júní og eftir
samtal einhvern tímann um
miðjan ágúst ákvað hann að
koma með mér,“ útskýrir Helga.
Ferðalagið byrjaði á Kúbu og eftir
dvölina þar tók við meira ævintýri.
„Við byrjuðum á Kúbu, flugum því
næst til Mexíkó og höfum unnið
okkur áfram þaðan. Við tókum bát
frá suðurhluta Mexíkó yfir til Belís,
rútu þaðan til Gvatemala og svo
fórum við til Hondúras, þar sem við
vörðum tveimur mánuðum á eyju
sem heitir Utila. Ég var þar að læra
köfun og kláraði að læra „PADI Dive-
master“ þar.“
„Eftir það fórum við svo til Níka-
ragva, Kosta Ríka, Panama og flug um
þaðan til Bogotá í Kólumbíu.
Við vörðum þremur vikum í að
ferðast innan Kólumbíu og fórum
eftir það til Ekvador, Galapagos,
Perú, Bólivíu, Síle og núna erum við
í Argentínu,“ segir Helga, sem hefur
núna verið á flakki í um það bil átta
mánuði.
Helga og Hlynur eru hvergi nærri
hætt að kanna nýjar slóðir. „Við áætl-
um að koma heim í júlílok. Ferðin
verður því rúmlega níu mánuðir í
heildina.“
Erfiðast
að hitta ekki vini og
fjölskyldu
Það er eflaust marga Íslendinga sem
dreymir um að fara í sams konar
ævintýraferð og Helga og Hlynur
létu verða að veruleika. Spurð út
í hvað það erfiðasta við að láta til
skara skríða hafi verið segir Helga:
„Það hitti þannig á að hvorugt okkar
átti eignir og vinnuveitandinn okkar
sýndi okkur mjög mikinn stuðning
þegar við ræddum við hann að fara í
langtímaleyfi. Áhættan var því frekar
lítil og við höfðum nægan tíma til að
undirbúa okkur. Erfiðast var að vita
að við myndum ekki hitta fjölskyldu
og vini í einhverja mánuði, en allir
sýndu okkur mikinn stuðning og
með internetinu getur maður alltaf
spjallað þegar söknuður grípur
mann, að því gefnu að netið virki!“
Helga sér ekki eftir ákvörðun sinni
um að fara í þetta langa ferðalag
enda hefur það gengið vel.
„Ég var á þeim stað í lífinu að ég
hugsaði með mér: „Ef ég geri þetta
ekki núna, þá mun ég aldrei láta
verða af svona ferðalagi. Hvernig
myndi mér líða að hugsa til baka, vit-
andi það að ég hafði fullkomið tæki-
færi og lét ekki verða af því?“ Eftir að
hafa spurt Hlyn að sömu spurningu
nokkrum mánuðum seinna hugs-
aði hann málið aðeins og endaði á
því að vera sammála. Það eina sem
við höfðum planað áður
en við fórum út var að
fara til Kúbu og fljúga
svo til Mexíkó. Það hefur
tekið á að þurfa að plana
hvern dag fyrir sig og vita
stundum ekki hvar maður
myndi gista það kvöldið,
en þetta hefur gengið ótrú-
lega vel.“
En hvað er það besta
við að hafa látið drauminn
rætast? „Það besta er hvað
við höfum séð mikið af
stöðum sem okkur bæði er
búið að dreyma um síðan
við vorum krakkar. Meðal
hápunktanna í ferðinni hefur
verið að horfa á sólarupprás-
ina yfir Tikal, að læra að kafa í Utila,
skoða eldfjöllin í Níkaragva, skoða
dýralífið á Kosta Ríka, ganga 50 km
á fjórum dögum í gegnum frum-
skóginn til að sjá Ciudad Perdida í
Kólumbíu og margt fleira!“
„Ég held að marga dreymi um
svona ferðlagað að einhverju leyti,
en geta ekki látið verða af því, hver
svo sem ástæðan er – peningar,
skuldbindingar heima fyrir eða aðrar
ástæður. Ég ætla ekki að segja að
þetta hafi verið „auðvelt“, en þegar
skrefið er tekið og ákvörðunin er
komin, þá er þetta auðveldara en
margur heldur,“ segir Helga sem
vonar að þessi lesning muni veita
fólki innblástur til að láta sína
draumaferð rætast.
gudnyhronn@365.is
Settu lífið á Íslandi í
bið til að fara á flakk
Parið Helga Björk Árnadóttir og Hlynur Kristjánsson tóku sér frí frá
vinnunni og sögðu skilið við lífið á Íslandi fyrir átta mánuðum. Síðan
þá hafa þau ferðast um Suður-Ameríku og sjá ekki eftir neinu.
Helga og Hlynur hafa komið víða við á ferðalagi sínu. Þessi mynd var tekin í Machu Picchu.
BÍLALAND BÝÐUR BÍLA Á FRÁBÆRUM
KJÖRUM! KOMDU STRAX Í DAG OG TRYGGÐU
ÞÉR GÓÐAN BÍL FRÁ BÍLALANDI
ÚRVAL
NOTAÐRA BÍLA
HYUNDAI I40 Wagon Style
Nýskr. 06/13, ekinn 55 þ.km,
dísil, sjálfskiptur.
VERÐ 2.890 þús. kr.
Range Rover Evoque SE
Nýskr. 05/16, ekinn 10 þ.km,
dísil, sjálfskiptur.
VERÐ 6.970 þús. kr.
LAND ROVER Discovery 4 S
Nýskr. 06/15, ekinn 65 þ.km,
dísil, sjálfskiptur.
VERÐ 7.590 þús. kr.
TOYOTA Auris Terra
Nýskr. 12/14, ekinn 22 þ.km,
bensín, beinskiptur.
VERÐ 2.390 þús. kr.
RENAULT Captur Dynamic
Nýskr. 04/15, ekinn 34 þ.km,
dísil, beinskiptur.
VERÐ 2.290 þús. kr.
KIA Rio EX. Nýskr
12/13, ekinn 50 þ.km,
bensín, sjálfskiptur.
VERÐ 1.990 þús. kr.
Rnr. 152852
Rnr. 330795
Rnr. 192268
Rnr. 370593
Rnr. 320958
Rnr. 390071
www.bilaland.is
Kletthálsi 11 - 110 Reykjavík og
Hyundai notaðir bílar - Kauptúni 1 - 210 Garðabæ
Sími: 525 8000 - bilaland@bilaland.is
Opið frá kl. 9–18 og á laugardögum frá kl. 12–16.
www.facebook.com/bilaland.is
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
8
2
7
1
0
B
íl
a
la
n
d
A
lm
e
n
n
2
x
3
8
2
0
jú
n
í
Þau hafa m.a.
heimsótt
Páskaeyjuna og
Salar de Uyuni í
Bólivíu.
2 0 . j ú n í 2 0 1 7 Þ R I Ð j U D A G U R26 l í f I Ð ∙ f R É T T A B l A Ð I Ð
2
0
-0
6
-2
0
1
7
0
4
:3
7
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
1
F
-9
C
4
C
1
D
1
F
-9
B
1
0
1
D
1
F
-9
9
D
4
1
D
1
F
-9
8
9
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
4
8
s
_
1
9
_
6
_
2
0
1
7
C
M
Y
K