Fréttablaðið - 06.07.2017, Síða 10

Fréttablaðið - 06.07.2017, Síða 10
GÓÐUR FERÐAFÉLAGI Volkswagen Caddy Beach www.volkswagen.is HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · sími 590 5000 · hekla.is · umboðsmenn um land allt: Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ Fimm manna fjölskyldubíllinn Volkswagen Caddy Beach býður upp á allt sem þarf fyrir ferðalagið. Caddy Beach verður að litlu sumarhúsi með 2,3 m x 2,9 m fortjaldi sem fest er á afturhlerann, klappstólum, borði og loftunaropi á rennihurð. Hver einasti dagur er dásamleg upplifun, hvar sem þú ert. Kynningarverð 3.990.000 kr. Verðlistaverð 4.670.000 kr. - Svefnaðstaða fyrir 2 - Fellanleg borð og stólar - Geymsluhólf - Fortjald og gluggatjöld - Kælir og vasaljós - Leðurklætt aðgerðastýri - Margmiðlunartæki m. snertiskjá - Bluetooth - Hraðastillir Til afhendingar strax! Við látum framtíðina rætast. Volkswagen Bandaríkin Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, er bálreiður út í kín- versk stjórnvöld. Í gær gagnrýndi forsetinn Kínverja harðlega fyrir að beita sér ekki gegn Norður-Kóreu- mönnum af meiri hörku og sagði að Kínverjar væru að auka viðskipti sín við einræðisríkið. Gagnrýni Trumps kemur í kjölfar eldflaugatilraunar norðurkóreska hersins. Prófaði hann í vikunni eldflaug sem talið er að geti flogið nærri 7.000 kílómetra. Dregur hún því til Alaska í Bandaríkjunum. Kröfðust Bandaríkin, Suður-Kórea, Kína, Rússland og fleiri ríki þess að Norður- Kórea hætti öllum eld- flaugatilraunum samstundis en slík- ar tilraunir hafa verið tíðar nýverið. Eldflaugaskotið var sérstaklega ætlað til að ögra Bandaríkjamönn- um. Var það haft eftir Kim Jong-un, einræðisherra Norður-Kóreu, í ríkis- útvarpinu KCNA, að eldflaugaskot- ið hefði verið gjöf til Bandaríkjanna á þjóðhátíðardegi þeirra sem var á þriðjudag. Í frétt KCNA var varað við líkum á frekari tilraunum og að Kim hefði skipað hernum að senda Kínverjar reita Donald Trump til reiði Bandaríkjaforseti segir Kínverja auka viðskipti sín við Norður-Kóreu. Tölur um viðskipti sem Trump vísar til eru frá því áður en hann fundaði með forseta Kína í apríl. Kínverjar ætla greinilega ekki að vinna með okkur. Ojæja, við urðum að minnsta kosti að reyna. Donald Trump, for- seti Bandaríkjanna Trump áður reiðst Kína Tíst gærdagsins markar ekki fyrsta skipti sem Trump hefur reiðst Kínverjum. Í kosningabar- áttu sinni hélt Trump því marg- sinnis fram að Kínverjar væru að ganga af bandarískum fram- leiðendum og verkamönnum dauðum. „Við getum ekki leyft Kín- verjum að nauðga landinu okkar lengur. Það er það sem þeir eru að gera,“ sagði Trump á kosn- ingafundi í Fort Wayne í Indiana- ríki í maí á síðasta ári. „Við ætlum að snúa þessu við. Við erum með spilin á okkar hendi, ekki gleyma því. Við erum eins og sparibaukur sem Kín- verjar ganga í. Við erum með spilin. Við erum mjög valdamikil í samskiptum okkar við Kín- verja,“ sagði þáverandi forseta- frambjóðandinn enn fremur. Var það ekki í fyrsta skipti sem Trump líkti kínverska ríkinu við nauðgara. Slíkt hið sama gerði hann árið 2011.Kim Jong-un, einræðisherra Norður-Kóreu, sést hér fagna eldflaugatilraun vikunnar með faðmlagi. Hann er uppspretta óánægju Donalds Trump Bandaríkjaforseta sem vill að Kínverjar láti af viðskiptum við Kim. NorDicpHoTos/AFp Bandaríkjamönnum reglulega slíkar gjafir. „Viðskipti Kína og Norður-Kóreu jukust um fjörutíu prósent á fyrsta ársfjórðungi. Kínverjar ætla greini- lega ekki að vinna með okkur. Ojæja, við urðum að minnsta kosti að reyna,“ tísti Trump í gær. Hann átti fund með forseta Kína í apríl til að ræða ýmis mál, meðal annars Norður-Kóreu. Sagði Trump í kjöl- far fundarins að mikill árangur hefði þar náðst. Tölurnar sem hann vísar til í tísti sínu eru hins vegar frá því fyrir fundinn og hluti þeirra frá því áður en Trump tók við embætti Banda- ríkjaforseta. Eflaust munu málefni Norður- Kóreu verða rædd á fundi  G20 ríkjanna sem hefst á morgun. Fund- inn sækja meðal annars Trump, Xi Jinping, forseti Kína, Shinzo Abe, forseti Japans, Moon Jae-in, forseti Suður-Kóreu og Vladimír Pútín Rússlandsforseti. Þá fundaði öryggisráð Sameinuðu þjóðanna fyrir luktum dyrum í gær, að frumkvæði Bandaríkjamanna. thorgnyr@frettabladid.is 6 . j ú l í 2 0 1 7 F i M M T U d a G U r10 F r é T T i r ∙ F r é T T a B l a ð i ð 0 6 -0 7 -2 0 1 7 0 3 :5 2 F B 0 5 6 s _ P 0 5 0 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 7 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 D 4 3 -C E C 0 1 D 4 3 -C D 8 4 1 D 4 3 -C C 4 8 1 D 4 3 -C B 0 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 A F B 0 5 6 s _ 5 _ 7 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.