Fréttablaðið - 06.07.2017, Blaðsíða 15
Meðal frægustu Letta úti um heim er skákmeistarinn Mikhail Tal sem hét réttu
nafni Mihails Tals. Öll lettnesk
karlmannsnöfn, bæði fornöfn og
eftirnöfn, enda á s að mér skilst.
Tal vakti heimsathygli þegar hann
sigraði Mikhail Botvinnik í heims-
meistaraeinvíginu í skák 1960 og
varð yngstur allra heimsmeistara
fram að því, 23ja ára að aldri. Hann
tapaði titlinum síðan aftur árið eftir í
hendur Botvinniks, gamla brýnisins
sem var heimsmeistari 1948-1963 ef
tvö ár eru undan skilin, 1957 þegar
Vasily Smyslov sigraði Botvinnik og
1960 þegar Tal hafði betur. Friðrik
Ólafsson náði jafntefli við Tal í Júgó-
slavíu 1959 og lagði hann í Moskvu
1971 og á Las Palmas 1975.
Sumir telja Tal snjallastan allra
skákmanna fyrr og síðar í sókn og
flóknum fléttum. Garðar Sverrisson,
sem átti Bobby Fischer að nánum
vini, segir að fv. eiginkona Tals hafi
verið daglegur gestur á heimili hans
og seinni konunnar og Boris Spasský
hafi skýrt það svo að Tal liði bezt í
flóknum stöðum.
Flóknar stöður
Lettar eru vanir flóknum stöðum.
Landið var undir erlendu oki frá
12. öld og nær samfellt fram til 1990.
Fyrst voru það Þjóðverjar sem stjórn-
uðu landinu frá 12. öld til 16. aldar,
síðan Pólverjar og Svíar fram á 18.
öld og þá Rússar fram að fyrra stríði
1914-1918. Lettar lýstu yfir sjálfstæði
1918 og þá tók fyrst við þingræði til
1934 og síðan innlent einræði fram
að síðari heimsstyrjöldinni þegar
Rússar réðust fyrst inn í landið 1940,
síðan Þjóðverjar 1941 og þá aftur
Rússar 1944 og höfðu sig ekki á braut
fyrr en 1991. Íslandssagan er heldur
viðburðasnauð í samanburði við
sögu Lettlands.
Ég kom fyrst til Lettlands 1992
til fyrirlestrahalds. Bókin mín um
markaðsbúskap sem ég hafði skrifað
ásamt tveim félögum mínum,
Norðmanni og Svía, var þá komin út
á lettnesku, fyrsta alvöruhagfræði-
bókin á því máli frá því fyrir stríð var
okkur sagt. Höfuðborgin Riga var í
niðurníðslu en undir yfirborðinu
grillti í gamlan glæsibrag því borgin
hafði verið mikilvæg miðstöð menn-
ingar og viðskipta á fyrri tíð. Sömu
sögu var að segja um Eistland og Lit-
háen. Þessi þrjú lönd höfðu hrærzt
fyrir eigið tilstilli í meginstraumi
evrópskrar menningar árin milli
stríða, 1918-1939, en þau voru síðan
innlimuð í Sovétríkin og svipt frelsi
sínu. Til að innsigla ráðahaginn voru
Rússar sendir til Eystrasaltsríkjanna
þriggja í stórum stíl til að koma
sér þar fyrir meðal heimamanna.
Fjórðungur íbúa Eistlands og Lett-
lands er nú Rússar, en hlutfallið er
miklu lægra í Litháen, um 5%.
Viðsnúningur
Lettar hafa notað tímann vel frá
endurheimt sjálfstæðis síns 1991.
Þeir urðu þá strax aðilar að SÞ,
gengu í ESB og NATO 2004 og tóku
upp evruna 2014. Í þjóðaratkvæða-
greiðslu um aðild að ESB 2003
greiddu 67% kjósenda í Lettlandi
og Eistlandi atkvæði með aðild og
91% kjósenda í Litháen. Munurinn
stafar trúlega af því að margir
rússneskir kjósendur greiddu
atkvæði gegn aðild en heimamenn
greiddu flestir atkvæði með aðild.
Óttinn við yfirgangssaman granna
í austri hafði trúlega talsverð áhrif
á úrslitin í öllum löndunum þrem
líkt og í Finnlandi 1994 þegar 57%
Umskipti við Eystrasalt
Þorvaldur
Gylfason
Í dag finnskra kjósenda sögðu já við
ESB-aðild.
Rússar kvarta á móti undan því að
rússneski minnihlutinn í Lettlandi
sitji ekki við sama borð og Lettar;
sama á við um Eistland. Eistar og
Lettar segja á móti: Rússar skildu
eftir sig sviðna jörð í Eystrasalts-
ríkjunum líkt og þeir hafa farið með
eigið land, t.d. í Karelíu. Kaupmáttur
þjóðartekna á mann í Lettlandi er
nú svipaður og í Grikklandi og Pól-
landi, nokkru minni en í Eistlandi
og Litháen en meiri en í Rússlandi
skv. upplýsingum Alþjóðabankans.
Lettar eru á þennan kvarða hálf-
drættingar á við Íslendinga.
Djarft teflt
Evran reyndist engin fyrirstaða
endurreisnar Lettlands eftir fjár-
málakreppuna sem lék landið grátt
2009-2010. Stjórnvöld hugleiddu að
fella gengi latsins líkt og krónan féll
hér heima og fresta upptöku evrunn-
ar fram yfir 2014 en þau ákváðu að
gera það ekki. Þau fóru heldur aðrar
leiðir m.a. með því að telja launþega
á að sætta sig við beina kauplækkun
frekar en kaupmáttarrýrnun í krafti
gengislækkunar með gamla laginu.
Staðan var flókin. Djarft var teflt, en
dæmið gekk upp.
Þegar Lettar endurheimtu sjálf-
stæði sitt 1991 þurftu þeir að byggja
ýmsar stofnanir upp frá grunni eða
jafnvel sækja þær til útlanda. Nær
allur bankarekstur í Lettlandi – um
90% – er í höndum útlendinga,
einkum Svía og Norðmanna. Nor-
rænum bönkum var boðið að starfa í
landinu gagngert til að auka gegnsæi
og girða fyrir spillingu. Fjárböðun
fyrir Rússa og skyld glæpastarfsemi
er að mestu bundin við lettneska,
rússneska og úkraínska banka sem
nota Lettland nú líkt og Kýpur áður
sem stökkpall inn í Evrópu.
Útsalan er hafin!
Flottur kvenfatnaður
á 40% afslætti
... opið til kl. 21 í kvöld
smáralindKRINGLUNNI
0
6
-0
7
-2
0
1
7
0
3
:5
2
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
4
3
-9
D
6
0
1
D
4
3
-9
C
2
4
1
D
4
3
-9
A
E
8
1
D
4
3
-9
9
A
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
5
6
s
_
5
_
7
_
2
0
1
7
C
M
Y
K