Fréttablaðið - 06.07.2017, Side 36
Fótbolti Dagný Brynjarsdóttir er
klár í slaginn á nýjan leik eftir erfið
meiðsli sem stofnuðu þátttöku
hennar á EM í Hollandi í hættu. Það
hefur birt til á undanförnum vikum
og Dagný er óðum að ná fyrri styrk.
„Ég myndi segja að staðan væri
hrikalega góð. Ég er búin að æfa vel
síðustu tvo mánuði og er klár í þetta
verkefni,“ sagði Dagný í samtali við
Fréttablaðið í gær. En hvað var það
nákvæmlega sem hrjáði hana?
„Ég fékk högg fyrir tveimur árum
og hélt áfram að þjösnast á því. Það
kom í ljós að þetta voru liðbönd sem
tengdust frá mjaðmagrindinni og út
í bak. Ég þurfti að styrkja allt í kring
og fara í sprautumeðferðir. Þetta var
spurning um hversu hratt liðböndin
myndu gróa. Það er komið núna og
ég hef verið á fullu undanfarna tvo
mánuði,“ sagði Dagný.
Rangæingurinn lék allan leik-
inn með félagsliði sínu, Portland
Thorns, um helgina. Það var aðeins
hennar fjórði leikur með liðinu á
tímabilinu. Dagný missti af byrjun
tímabilsins en sneri aftur í sigri á
Sky Blue 3. júní.
Það var þá fyrsti leikur Dagnýjar í
þrjá mánuði, eða frá því hún spilaði
síðasta stundarfjórðunginn í 2-0
tapi Íslands fyrir Japan á Algarve-
mótinu 3. mars. Það eru einu mín-
úturnar sem hún hefur spilað með
íslenska landsliðinu á árinu.
Fljót að komast í form
„Ég myndi ekki segja að leikformið
sé í toppstandi enda bara búin
að spila einn 90 mínútna leik. En
einn af mínum styrkleikum sem
leikmaður er að ég er mjög fljót að
koma mér í stand og vera í góðu
hlaupaformi. Ef ég á að vera alveg
hreinskilin hef ég ekki miklar
áhyggjur,“ sagði Dagný.
Hún var valin í íslenska hópinn
sem mætti Írlandi og Brasilíu í
tveimur vináttulandsleikjum í júní.
Dagný kom ekkert við sögu gegn
Írlandi og daginn fyrir leikinn gegn
Brasilíu var tilkynnt að hún myndi
ekki spila hann og væri á leiðinni
aftur til Portland.
Freyr Alexandersson landsliðs-
þjálfari hefur síðan greint frá því
að Dagný hafi neyðst til að sleppa
landsleikjunum tveimur. Annars
hefði hún væntanlega ekki spilað
meira með Portland á tímabilinu.
Dagný segir erfitt að hafa verið sett
í þessa stöðu.
Þeir borga launin mín
„Það var hrikalega fúlt. Ég missti af
aprílverkefninu með landsliðinu
og hlakkaði mikið til verkefnisins
í júní. En þeir borga launin mín og
ég lenti svolítið á milli. Ég þurfti
að gera það sem þeir sögðu mér að
gera. Auðvitað vill enginn lenda
í þessu en ég þurfti að takast á við
það,“ sagði Dagný sem hefur verið
í herbúðum Portland síðan 2015.
Hún segir framtíð sína óráðna.
„Samningurinn minn rennur út í
lok árs. Ef ég á að vera alveg hrein-
skilin er ég ekkert búin að ákveða
hvað ég ætla að gera. Mér líkar
vel þarna en auðvitað er ég langt í
burtu. Ég ætla að einbeita mér að
EM og svo nota ég það sem eftir
er árs til að hugsa hvað ég ætla að
gera,“ sagði Dagný. En lítur hún á
EM sem glugga til að komast annað?
„Það er ákveðinn gluggi ef mann
langar til Evrópu. En ég veit ekkert
hvort ég ætla að fara þangað eða
vera áfram í Bandaríkjunum,“ sagði
Dagný sem segist kunna betur við
sig hjá Portland en þegar hún var í
herbúðum Bayern München seinni
hluta tímabilsins 2015.
Kvennaboltinn betur metinn
„Já, mér finnst það miklu skemmti-
legra. Kvennaboltinn er betur
metinn þarna; fleiri áhorfendur og
betur hugsað um man. Manni líður
meira eins og atvinnumanni þarna
en í Bayern,“ sagði Dagný. Hún nýtur
þess að vera byrjuð að æfa með
landsliðinu.
„Síðustu tveir dagar hafa gengið
hrikalega vel. Það er gaman að hitta
stelpurnar aftur og andinn í liðinu
er góður. Við erum allar rosalega
spenntar og klárar í verkefnið,“
sagði Dagný sem er á leið á sitt
annað Evrópumót en hún var einn-
ig með á EM 2013. ingvithor@365.is
Þurfti að gera það sem
þeir sögðu mér að gera
Eftir erfið meiðsli er Dagný Brynjarsdóttir komin aftur á ferðina og segist vera
klár í slaginn fyrir EM í Hollandi. Hún segist hafa verið sett í erfiða stöðu af fé-
lagsliði sínu í síðasta landsliðsverkefni. Dagný segir óvíst hvað taki við hjá sér.
Dagný Brynjarsdóttir gat ekki spilað síðustu leiki íslenska liðsins fyrir EM 2017 þar sem félagsliðið hennar Portland vildi fá hana heim. FréttaBlaðið/EyÞór
Kvennaboltinn er
betur metinn þarna;
fleiri áhorfendur og betur
hugsað um mann.
Dagný Brynjarsdóttir
Urðarhvarfi 4 / 203 Kópavogi
Sími 557 4848 / www.nitro.is
RAFMAGNSVESPUR
Þarf ekki próf, tryggja eða skrá!
149.900,-
Svört, rauð eða hvít
Þarf ekki próf,
tryggja eða skrá!
FYRIR FLESTAR
GERÐIR BÍLA...
GORMAR
HÖGGDEYFAR
VANRÆKTU EKKI VIÐHALDIÐ!
STÁL OG STANSAR | SÍMI: 517-5000 | VAGNHÖFÐI 7 | STALOGSTANSAR.IS
DýRASTuR Í Sögu ARSEnAl
Enska úrvalsdeildarfélagið Arsenal
gekk í gærkvöldi frá kaupum á
franska framherjanum Alexandre
lacazette frá lyon á 46,6 milljónir
punda eða 6,3 milljarða króna.
Hann er því dýrasti leikmaður í
sögu lundúnafélagsins en mest
borgaði það 42,4 milljónir punda
fyrir Mesut özil árið 2013. Það
sem meira er þá getur kaupverðið
farið upp á 52,6 milljónir punda
eða sjö milljarða íslenskra króna
með árangurstengdum
greiðslum þannig
Frakkinn verður sá
langdýrasti í sögu
Arsenal. Þessi 28 ára
gamli framherji
skoraði 129 mörk
í 275 leikjum
fyrir lyon eftir
að brjóta sér leið
inn í aðalliðið árið
2009.
SnoRRi KynnTuR Í DAg
Snorri Steinn guðjónsson, fyrrver-
andi landsliðsmaður í handbolta
og silfurdrengur, verður kynntur
sem leikmaður og þjálfari Vals í
olís-deild karla í handbolta í dag.
Valsmenn boðuðu til blaðamanna-
fundar í hádeginu í dag þar sem
tíðindin verða endanlega staðfest
en íþróttadeild sagði frá þessu
fyrir tveimur vikum. Árni Þór Sig-
tryggsson verður einnig kynntur
sem leikmaður liðsins. Vísir verður
með mikla umfjöllun um fundinn
í dag sem hefst klukkan 12.30 að
Hlíðarenda.
6 . j ú l í 2 0 1 7 F i M M t U D A G U R24 S p o R t ∙ F R É t t A b l A ð i ð
sport
0
6
-0
7
-2
0
1
7
0
3
:5
2
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
4
3
-D
8
A
0
1
D
4
3
-D
7
6
4
1
D
4
3
-D
6
2
8
1
D
4
3
-D
4
E
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
A
F
B
0
5
6
s
_
5
_
7
_
2
0
1
7
C
M
Y
K