Fréttablaðið - 06.07.2017, Side 46
Hvað?
Hvenær?
Hvar?
Fimmtudagur
hvar@frettabladid.is
6. júlí 2017
Tónlist
Hvað? ENDURTEKNIR upphafstón-
leikar í sumartónleikaröð Listasafns
Sigurjóns Ólafssonar
Hvenær? 20.30
Hvar? Listasafni Sigurjóns Ólafssonar
Fullt var út úr dyrum á frábærum
tónleikum Gunnars Kvaran selló-
leikara og Helgu Bryndísar Magn-
úsdóttur píanóleikara í Listasafni
Sigurjóns á Laugarnesi á þriðju-
dagskvöldið var. Urðu margir frá
að hverfa og því verða tónleikarnir
endurteknir í kvöld.
Hvað? Chris Foster á Arctic Concerts
Hvenær? 20.30
Hvar? Iðnó
Chris Foster, einstakur listamaður
á sviði þjóðlagatónlistar, söngvari
og gítarleikari kemur fram á Arctic
Concerts í Iðnó í kvöld.
Hvað? Teitur Magnússon og fleiri
Hvenær? 20.00
Hvar? Húrra, Naustunum
Teitur Magnússon spilar ásamt
hljómsveit lög af plötu sem er
væntanleg í haust. Árni Vil-
hjálmsson (Kriðpleir, áður FM
Belfast) hitar upp en hann er að
leggja lokahönd á sína fyrstu sóló-
plötu. Síðan er það hann Lommi
(Jón Loðmfjörð) ljóðskáld sem er
nýbúinn að gefa út ljóðabókina
Sprungur. Hann mun lesa upp ljóð
inn á milli. 2.000 krónur inn.
Hvað? Daði Freyr
Hvenær? 21.00
Hvar? Græna hattinum, Akureyri
Daða Frey ættu nú flestir að kann-
ast við eftir að hann heillaði þjóð-
ina upp úr skónum í undankeppni
Eurovision fyrr í vetur með einkar
einlægri framkomu. Undanfarið
hefur Daði verið búsettur í Berlín
að leggja lokahönd á tónlistarnám
sitt þar en fyrirhugaðir eru örfáir
tónleikar á Íslandi á árinu. Til þess
að fylgja eftir þeirri gífurlegu vel-
gengni sem Daði hlaut í keppninni
hefur hann samið nýtt efni sem
hann mun væntanlega flytja á tón-
leikum hérlendis.
Hvað? Kitty Kovacs, organisti Landa-
kirkju
Hvenær? 12.00
Hvar? Hallgrímskirkju
Á Alþjóðlegu orgelsumri 2017,
sem nú er haldið 25. sumarið í röð,
koma fram afburða konsertorgan-
istar í fremstu röð frá ýmsum
löndum. Fimmtudaginn 6. júlí
kl. 12.00-12.30 mun Kitty Kovacs,
organisti í Landakirkju í Vest-
mannaeyjum, flytja Passacaglíu og
fúgu í c-moll eftir J.S. Bach og einn-
ig mjög spennandi verk eftir Zsolt
Gárdonyi. Kitty mun flytja bæði
verkin á hið stórfenglega Klais-
orgel Hallgrímskirkju, en það er
stærsta hljóðfæri landsins. Miða-
verð er 2.000 krónur.
Hvað? Sumarjazz
Hvenær? 20.00
Hvar? Hofi, Akureyri
Tónlistina flytja, ásamt Svan-
laugu, Agnar Már Magnússon
píanóleikari, Matthías Stefánsson
fiðluleikari, Margrét Arnardóttir
harmonikkuleikari og Þorgrímur
Jónsson kontrabassaleikari.
Hvað? Þóra Einarsdóttir, master class
tónleikar
Hvenær? 20.00
Hvar? Hafnarborg, Hafnarfirði
Hin margverðlaunaða Þóra
Einarsdóttir sópransöngkona og
nemendur hennar á master class
námskeiði á Sönghátíð í Hafnar-
borg halda uppskerutónleika.
Matthildur Anna Gísladóttir leikur
á píanóið.
Hvað? Rasta Gata – RVK Soundsystem
Hvenær? 22.00
Hvar? Bryggjunni brugghúsi, Granda-
garði
Reggífílingur úti á Granda.
Hvað? Extreme Chill Festival
Hvenær? 15.00
Hvar? Lucky Records
Extreme Chill hátíðin hefst í dag
í Lucky Records á Rauðarárstíg og
heldur síðan áfram í Mengi í kvöld.
Viðburðir
Hvað? Fyrirlestur: Íslensk list, af því
hún er til
Hvenær? 20.00
Hvar? Hafnarhúsinu
Bryndís Hafþórsdóttir list-
fræðingur heldur erindi í Hafnar-
húsinu og fjallar um hvort bak-
grunnur listamanna skipti máli.
Galleristar og aðrir sem sjá um
kynningu á íslenskri myndlist á
erlendri grund hafa lagt áherslu
á að list íslenskra myndlistar-
manna eigi erindi út fyrir land-
steinana burtséð frá bakgrunni
þeirra, að hún sé hvorki sérís-
lensk né staðbundin. Í fyrirlestri
sínum mun Bryndís Hafþórsdóttir
halda öðru fram. Hún telur að list
Ragnars Kjartanssonar sé einmitt
afsprengi samruna þess stað-
bundna, hins íslenska bakgrunns,
við hið alþjóðlega. Í því er falin
nokkur þversögn, en til að skilja
áhrifin sem list Ragnars hefur á
áhorfendur um allan heim þurfi
að viðurkenna að hún sé að ein-
hverju leyti séríslensk.
Hvað? Reykjavík Safarí – menningar-
leiðsögn á sex tungumálum
Hvenær? 20.00
Hvar? Borgarbókasafni, Grófinni
Í kvöld verður boðið til fjöltyngdu
menningargöngunnar „Reykjavík
Safarí“. Gangan er á vegum Borgar-
bókasafnsins, Borgarsögusafns
Reykjavíkur, Listasafns Reykja-
víkur og Bókmenntaborgarinnar
og fer nú fram tíunda árið í röð.
Borgarbúar, með önnur móður-
mál en íslensku, veita leiðsögn
um miðborgina sem verður í boði
á spænsku, pólsku, víetnömsku,
portúgölsku, ensku og arabísku.
Hvað? Róló – frumsýning
Hvenær? 17.00
Hvar? Klambratúni
Sirkuslistamenn elska að kanna
hið ómögulega, taka áhættu og
finna óvæntar leiðir til að leika sér
með ólíklegustu hluti. Hvað gerist
ef þú leyfir 12 sirkuslistamönnum
að leika sér á róluvelli? Jú, þá ger-
ast töfrar! Miðaverð 3.500 krónur.
Þóra Einarsdóttir heldur uppskerutónleika í Hafnarborg ásamt nemendum sínum. Fréttablaðið/GVa
Daði Freyr skemmtir akureyringum á
Græna hattinum í kvöld.
Fréttablaðið/StEFán
ÁLFABAKKA
AULINN ÉG 3 ÍSL TAL 2D KL. 4 - 6 - 8
AULINN ÉG 3 ÍSL TAL 3D KL. 3 - 5 - 7
ALL EYEZ ON ME KL. 9 - 10
ALL EYEZ ON ME VIP KL. 5 - 8 - 10:50
THE HOUSE KL. 8 - 10
TRANSFORMERS 2D KL. 5 - 8 - 11
BÍLAR 3 ÍSL TAL 2D KL. 2:50 - 3:20 - 5:40
WONDER WOMAN 2D KL. 8 - 10:50
BAYWATCH KL. 3 - 5:30
SPIDER-MAN 2D KL. 5 - 7:40 - 10:30
THE HOUSE KL. 5:50 - 8 - 10:10
TRANSFORMERS 2D KL. 7:40 - 10:30
BÍLAR 3 ÍSL TAL 2D KL. 5:20
WONDER WOMAN 2D KL. 5 - 7:40
BAYWATCH KL. 10:40
EGILSHÖLL
ALL EYEZ ON ME KL. 5 - 8 - 10:50
TRANSFORMERS 2D KL. 10:30
BÍLAR 3 ÍSL TAL 2D KL. 5:40
WONDER WOMAN 2D KL. 10:10
BAYWATCH KL. 8
PIRATES 2D KL. 4:50 - 7:30
KRINGLUNNI NÚMERUÐ SÆTI
ALL EYEZ ON ME KL. 8 - 10:50
THE HOUSE KL. 8
TRANSFORMERS 3D KL. 5
TRANSFORMERS 2D KL. 10
BÍLAR 3 ÍSL TAL 2D KL. 5:40
AKUREYRI
ALL EYEZ ON ME KL. 10:15
AULINN ÉG 3 ÍSL TAL 2D KL. 5:30
SPIDER-MAN 3D KL. 7:30 - 10:15
THE HOUSE KL. 8:20
BÍLAR 3 ÍSL TAL 2D KL. 6
KEFLAVÍK
KAUPTU BÍÓMIÐANN
Í SAMBÍÓ APPINU
92%
INDIEWIRE
THE SEATTLE TIMES
THE PLAYLIST
Mark Wahlberg Anthony Hopkins
THE UNTOLD STORY OF
TUPAC SHAKUR
CHICAGO SUN TIMES
KAUPTU BÍÓMIÐANN
Í SAMBÍÓ APPINU
Sýnd með íslensku tali í 2D og 3D
93%
Miðasala og nánari upplýsingar
5%
SÝND KL. 8SÝND KL. 10.20
SÝND KL. 5, 8, 10. 40
2D KL. 4, 6
3D KL. 4
ENSK TAL.
KL. 6, 8, 10
Allur borðbúnaður
fyrir veitingahús
gsimport.is
892 6975
6 . j ú l í 2 0 1 7 F I M M T U D A G U R34 M e n n I n G ∙ F R É T T A B l A ð I ð
0
6
-0
7
-2
0
1
7
0
3
:5
2
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
4
3
-B
F
F
0
1
D
4
3
-B
E
B
4
1
D
4
3
-B
D
7
8
1
D
4
3
-B
C
3
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
5
6
s
_
5
_
7
_
2
0
1
7
C
M
Y
K