Fréttablaðið - 03.07.2017, Blaðsíða 8
Frá degi til dags
Útgáfufélag: 365 miðlar ehf. Stjórnarformaður: Einar Þór Sverrisson forStjóri: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir Útgefandi og aðalritStjóri: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is
aðStoðarritStjórar: Andri Ólafsson andri@frettabladid.is, Hrund Þórsdóttir hrund@stod2.is, Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@365.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri.
Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSn 1670-3871 fréttaBlaðið Skaftahlíð 24, 105 reykjavík Sími: 512 5000,
ritstjorn@frettabladid.is ÞróunarStjóri: Tinni Sveinsson tinni@365.is helgarBlað: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is markaðurinn: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is menning: Magnús Guðmundsson
magnus@frettabladid.is lífið: Guðný Hrönn Antonsdóttir gudnyhronn@frettabladid.is ljóSmyndir: Vilhelm Gunnarsson villi@365.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is
Halldór
Magnús
Guðmundsson
magnus@frettabladid.is
Afleysingastúlka í Leikskólanum 101 náði haustið 2013 myndbandsbroti af starfssystur sinni „flengja“ stúlkubarn. Í stað þess að kvarta til yfirmanna á þess-
um 7 manna vinnustað var myndbandinu komið beint til
Kastljóssins og nú gerðust hlutirnir hratt: Þessum 33 barna
skóla var umsvifalaust lokað. Barnaverndarnefnd og Lög-
reglan í Reykjavík tóku yfir málið. Foreldrum var eðlilega
brugðið.
Ljóst var að umræddir foreldrar yrðu í knappri stöðu því
hvergi var laust pláss í leikskólum borgarinnar. Sá sem þetta
ritar var í þeim hópi og mátti á næstu vikum gjalda dýru
verði þjónustu aðstoðarfólks þar til hægt var að troða okkar
barni sem og öðrum fórnarlömbum umræddra aðstæðna
inn í leikskóla annarra hverfa, skóla sem þó voru allir
þegar yfirfullir. Upphófst nú alllangt tímabil 90 mínútna
daglegra bíltúra á háannatíma, til og frá því úthverfi sem
okkur bauðst pláss í.
Undirritaður óskaði nokkrum mánuðum síðar eftir
niðurstöðum rannsókna þessa máls sem svo áþreifanlega
hafði komið við dagskrá og pyngju fjölskyldu okkar og ann-
arra. Engin svör bárust.
Eigendur og starfsfólk skólans hafði beðið alvarlega
hnekki á starfsheiðri sínum og trúverðugleika. Starfsfólkið
missti vinnuna og eigendur glötuðu fyrirtæki sínu. Á miðju
ári 2015 var undirritaðan farið svo að lengja eftir niður-
stöðum að hann bankaði upp á hjá lögreglunni.
Þar reyndist fátt um svör, þótt rannsókn málsins væri
löngu lokið. Það eina sem fulltrúar lögreglunnar voru
reiðubúnir að láta hafa eftir sér: „Of mörg börn á Leikskól-
anum 101!“ Akkúrat. Hin 18 mánaða rannsókn hafði leitt
í ljós að myndbandið fræga innbar ekkert saknæmt eða
refsivert. Hins vegar hafði skólanum orðið á í messunni er
tveimur börnum var heimiluð vist umfram leyfilegan kvóta.
En afrakstur alls þessa hafði jú þýtt að tveimur til þremur
börnum hafði nú verið troðið í alla leikskóla höfuðborgar-
svæðisins umfram það sem leyfilegt var!
Þó vissulega séum við sammála um að láta börnin okkar
ávallt njóta vafans, gætum við hugsanlega lært eitthvað af
ofangreindu um hvernig EKKI skyldi hrapa að niðurstöðum
í málum af þessum toga, en saga þessi rifjaðist einmitt upp
að gefnu tilefni nú um helgina.
Refsa fyrst, spyrja svo?
Jakob Frímann
Magnússon
tónlistarmaður
Hin 18
mánaða
rannsókn
hafði leitt í
ljós að
mynd-
bandið
fræga innbar
ekkert
saknæmt
eða refsivert.
Blindað af umburðarlyndi
Margt umburðarlyndasta,
frjálslyndasta og víðsýnasta
fólk landsins rauk upp til
handa og fóta um helgina
eftir að formaður stjórn-
skipunar- og eftirlitsnefndar,
Brynjar Níelsson, ritaði á
Facebook að Reykjavík skorti
strípistaði til að teljast borg
meðal borga.
Meðan það viðraði sínar
eigin skoðanir af offorsi
virtist það gleyma því að
aðrar víðsýnar og frjálslyndar
skoðanir eru til. Merkilegt
hvernig fólk getur blindast
svona ótrúlega í víðsýni sinni.
Fögnum fjölbreytileikanum
Annars þarf Brynjar að hafa
litlar áhyggjur af því að fínu
flottu jakkafatakallarnir, frá
stóru flottu borgunum með
fínu fatafelluklúbbana, vilji
ekki halda ráðstefnur og geri
grín að litlu súludansstaða-
lausu Reykjavík.
Reykjavík hefur nefnilega
á undanförnum árum ratað
á lista sem ein besta ráð-
stefnuborg sem í boði er. Að
auki er náttúrulega mögu-
leiki að á markaðnum, besta
vini Brynjars, sé bullandi
eftirspurn eftir borg þar sem
strippstaðir eru jafn margir
og tennur hænunnar.
johannoli@frettabladid.is
Það er þessi tími ársins sem þjóðin eyðir einhverjum dögum í að skoða hverjir hafa hæstu tekjurnar, hafa það best og eiga flest og guð má vita hvað og sitt sýnist hverjum eins og gengur. Þannig hefur það löngum verið á Íslandi og verður eflaust
alltaf í landi þar sem misskiptingin er mikil og sumir
búa við einhvern svimandi veruleika sem er okkur
hinum viðlíka framandi og líf á öðrum hnöttum. Og
einu sinni á ári flettum við tekjublaðinu og veltum
því fyrir okkur hvernig það væri að vera á meðal
geimveranna sem svífa þarna einhvers staðar fyrir
ofan okkur og allt um kring á bleiku skýi.
Stundum eru þessar vangaveltur kallaðar öfund
eða eitthvað þaðan af verra en eitt er víst og það er að
góðu fréttirnar eru væntanlega að við þurfum ekkert
að hafa áhyggjur af þessu fólki, það spjarar sig greini-
lega. Vondu fréttirnar eru að það er nóg af fólki, það
er líklega ekki í tekjublaðinu, sem býr við veruleika
sem er mörgum eflaust fullkomlega framandi. Því það
er sama hvað stjórnmálamenn og fylgismenn þeirra
hamra á því að hér sé bullandi góðæri, hvínandi hag-
vöxtur og allir hafi það óskaplega gott, þá er það ekki
veruleikinn. Því þó svo margir hafi það gott á Íslandi
og sumir hafi það frábært þá er veruleikinn sá að
sumir búa við algjörlega óásættanleg lífskjör á Íslandi.
Á sama tíma og þjóðin skoðaði hver hefur hversu
miklar tekjur og hver á hvað þá fengu margir kaldar
kveðjur frá þessu sama samfélagi. Fjölmargir eldri
borgarar og öryrkjar eiga til að mynda að komast af
á 280.000 krónum á mánuði og það sér hver heilvita
maður að er ekki í lagi. Sumir fengu meira að segja
tilkynningu um að þeir hefðu fengið of mikið á ein-
hverjum tímapunkti frá kerfinu og að þeir þurfi því
að sætta sig við enn minna á næstu mánuðum. Það
er ekkert góðæri á þeim bæjum. Á Íslandi eru líka
börn sem fara svöng að sofa vegna þess að þau búa
við fátækt og allar þær félagslegu raunir og gildrur
sem henni fylgja. Þau éta ekki hagvöxtinn fyrir hátt-
inn. Nú og svo eru það þeir sem glíma við langvinn
veikindi og jafnvel ólæknandi sjúkdóma sem leggja
fjárhaginn í rúst á undraverðum hraða og standa
frammi fyrir bæði fjárhagsvandræðum og veikindum
í sömu andrá. Ætli þeim líði betur að vita af því að
lífskjörin hafa aldrei verið betri?
Það er sjálfsagt og í góðu lagi að gleðjast yfir því
sem vel gengur en það er ekki verkefni stjórnmál-
anna. Gleðin yfir efnahagslegri velgengni samfélags-
ins í heild hlýtur að vera fólgin í því að við getum þá
gert betur við þá sem mest þurfa á því að halda. En ef
gleðin felur það í sér að dansa í kringum gullkálfinn
fremur en að gera eitthvað í þessum málum þá er illa
komið fyrir íslensku samfélagi. Því stjórnmál, eða öllu
heldur stjórnmálamenn, sem láta sig þetta engu varða
eru einskis virði. Verkefni stjórnmálanna er nefnilega
að gæta að hagsmunum og lífsgæðum allra þegna
þessa lands en ekki einvörðungu þeirra sem eru efstir
á blaði í tekjublaðinu margfræga.
Tekjublaðið
Gleðin yfir
efnahagslegri
velgengni
samfélagsins í
heild hlýtur
að vera fólgin
í því að við
getum þá gert
betur við þá
sem mest
þurfa á því að
halda.
3 . j ú l í 2 0 1 7 M Á N U D A G U R8 s k o ð U N ∙ F R É T T A B l A ð i ð
SKOÐUN
0
3
-0
7
-2
0
1
7
0
4
:1
1
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
3
C
-B
F
A
0
1
D
3
C
-B
E
6
4
1
D
3
C
-B
D
2
8
1
D
3
C
-B
B
E
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
4
0
s
_
2
_
7
_
2
0
1
7
C
M
Y
K