Fréttablaðið - 03.07.2017, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 03.07.2017, Blaðsíða 10
Sjálfstæðisflokkurinn fer geyst í að útbreiða hið margtuggna um að ríkið eigi ekki að vera að vasast í rekstri sem aðrir geta sinnt betur. Á einhver að vera að vasast í rekstri sem aðrir geta sinnt betur? Umræddum predikunum fylgja þau rök að losa þurfi ríkið og skattgreiðendur undan þeirri áþján sem felst í því að ríkið standi að rekstri sem er svo óarðbær að Sjálfstæðisflokkurinn óskar tæpast sínum verstu andstæðingum að lenda í slíkum hremmingum. Sé tekið mið af framansögðu ættu rík- isstjórnarflokkarnir að forgangs- raða björgunaraðgerðum og skera óarðbæru einingarnar af fyrst. En því fer víðs fjarri. Rekstur Áfengisverslunar rík- isins er ekki óarðbær, og slíkur business er það reyndar hvergi á byggðu bóli. Rekstur flugvallarins á Reykjanesskaga, eina alvöru flug- vallarins hér á landi, er ekki heldur óarðbær og íþyngjandi – hann bara vex og dafnar eins og áhugi fjármála- og forsætisráðherra á að selja hann. Einkarekstur í heil- brigðiskerfinu, sem er í aðstöðu til að velja sér arðbær verkefni en nýtur engu að síður fallhlífar frá opinbera kerfinu, er fjarri því að vera glórulaus fjárfesting, að ógleymdri fyrirhugaðri sölu bank- anna – á nýjan leik. Hvað gengur Sjálfstæðisflokkn- um til? – hvernig er forgangsröð- uninni háttað? Þegar betur er að gáð kemur í ljós að búið er að for- gangsraða röngum lista – listanum yfir fýsilegustu kaupendurna hefur verið raðað upp samviskusamlega og áherslur þeirra og kröfur eru með þeim hætti, að listi hins opin- bera yfir fyrirtæki sem mikið ríður á að losa sig við, er listi arðbærra fyrirtækja í eigu almennings. Sjálf- stæðisflokkurinn vill sem sagt selja frá hinu opinbera rekstur og fyrirtæki sem eru arðvænleg, sýna stöðuga framlegð, eru með sterka markaðsstöðu og eru jafnvel í tölu- verðum vexti. Níski karlinn í Spaugstofunni Og hverjir fylla listann, sem búið er að forgangsraða kaupendamegin? Hvaða áhættufælnu athafnamenn hafa áður farið fremst í flokki þegar seldir hafa verið hlutir í arð- bærum fyrirtækjum í eigu hins opinbera undir stjórn Sjálfstæðis- flokksins, á allt of lágu verði og með greiðsluskilmálum sem líkjast meira greiðslufyrirkomulagi fyrir vinningshafa hjá Íslenskri getspá en hefðbundnum samningsskil- málum – ekki væri verra ef hægt er að greiða með fjármunum sem fylgja með í kaupunum, taka við hinu selda, greiða sér út arð áður en kemur að greiðslu kaupverðs, svona eins og níski karlinn í Spaug- stofunni gerði í viðskiptaerindum forðum daga. En hann var að svindla og svíkja, það er ágrein- ingslaust. Þurfum við að rifja upp nýaf- staðin viðskipti hins opinbera, þar sem hlutum í Borgun var úthlutað til valinna aðila, eða hvernig mál atvikuðust varðandi einka- væðingu bankanna á sínum tíma undir stjórn Sjálfstæðisflokksins. Er almenningur vaknaður af rotinu í fyrstu lotu, enn hálf rænulaus, en tilbúinn fyrir lotu tvö? Vildarvinir Sjálfstæðisflokksins eiga náttúr- lega ekkert að vera að vasast í því sem almenningur á, nema sitja við sama borð og aðrir, greiða fullt verð fyrir og fjármagna kaupin með eðlilegum hætti. Og auðvitað á hið opinbera ekki að vera að vasast í rekstri sem er íþyngjandi og óarð- bær og aðrir geta sinnt betur, er það eitthvert vafamál? Hvort um er að ræða bjarnargreiða við þjóðina eða bjarnargreiða við útvalda skal ósagt látið, en hvorugt er af hinu góða. Ógreiðasemi Sjálfstæðisflokksins við skattgreiðendur – Fyrri hlutiÍ fjölmiðlum hafa birst fregnir af því að einhver fyrirtæki í ferða- þjónustu virði ekki kjarasamn- inga leiðsögumanna. Sum þessara mála hafa borist á borð þeirra stétt- arfélaga sem í hlut eiga og verður auðvitað tekið á þeim. Auk þess má ætla að fjöldi „skuggamála“ sé nokkur, þ.e. mála, sem aldrei koma fram í dagsljósið vegna þess að laun- þegi þekkir ekki rétt sinn eða þorir ekki að biðja um aðstoð við leiðrétt- ingu þegar á honum er brotið af ótta við viðbrögð vinnuveitanda. Þá eru dæmi þess að vinnuveitendur hafi beinlínis meinað launþegum að vera í réttu stéttarfélagi, enda er það áhrifamikil leið til að „deila og drottna“. Það er vont ef ástand á þessum vinnumarkaði er þannig að unnt sé að misbeita valdi og hunsa þá ábyrgð sem vinnuveitandi hefur á því að samningar séu virtir. Á þessu verða stéttarfélög að taka með ákveðni og afli. Vegna þessa viljum við undirritaðir koma eftirfarandi á framfæri, svo auðveldara verði fyrir vinnuveitendur leiðsögumanna að gera sér grein fyrir skyldum sínum í þessum efnum og leiðsögumönn- um sé ljóst hver réttindi þeirra eru: Stéttarfélög eru samtök launa- manna úr tilteknum starfsstéttum og eru þau stofnuð í þeim tilgangi að sjá um sameiginlega hagsmuni þeirra. Í því felst m.a. gerð kjara- samninga, sem er samkomulag um réttindi og skyldur starfsmanna og launagreiðenda. Kjarasamningur veitir báðum aðilum viss réttindi og leggur á þá gagnkvæmar skyld- ur, og þetta ber báðum aðilum að virða sem lágmarksréttindi. Meðal annars er það skylda fyrirtækja í ferðaþjónustu að greiða þeim sem hjá þeim starfa við leiðsögn ferða- manna að lágmarki skv. kjarasamn- ingum Leiðsagnar – félags leiðsögu- manna. Hluti af þessum skyldum launa- greiðanda er að halda eftir af laun- um starfsmanna sinna iðgjaldi, félagsgjöldum og framlögum til samningsbundinna sjóða, og greiða það til viðkomandi stéttarfélags. Launamenn mega skv. ákvæði stjórnarskrárinnar um félagafrelsi og ákvæðum laga 55/1980 standa utan stéttarfélaga, en þeim ber engu að síður skylda til að taka þátt í því kjarnahlutverki stéttar- félaganna að gera kjarasamninga sem ná til allra í viðkomandi starfs- stétt. Það er því ekki hægt að velja sér stéttarfélag, eins og borið hefur við að gert er. Greiða ber iðgjöld til þess félags sem gerir kjarasamninga fyrir við- komandi starfsgrein. Í samræmi við framangreint eiga allir launagreið- endur leiðsögumanna að greiða iðgjöld af launum þeirra til Leið- sagnar – félags leiðsögumanna. Öllum er frjálst að taka þátt í starfi síns stéttarfélags og vinna að bættum kjörum félagsmanna, og skulu allir hvattir til þess enda eflir það félagið að sem flestir taki þátt og hafi áhrif. Ferðaþjónusta á Íslandi er bæði ung og gömul atvinnugrein. Fyrstu sporin í þjónustu við ferðamenn voru tekin snemma í sögu okkar og þá hefði nú sennilega engan órað fyrir því að fjöldi ferðamanna í framtíðinni næmi margföldum fjölda þjóðarinnar sjálfrar. Þangað erum við þó engu að síður komin og þá ríður á að ferðaþjónustan sé fagmannleg og traust. Það er ekki viðunandi að kjara- samningar starfsfólks í stærstu undirstöðuatvinnugrein þjóðar- innar séu virtir að vettugi og slegið sé af kröfum um faglega þjónustu. Metnaður ferðaþjónustunnar á m.a. að felast í að bera virðingu fyrir náttúru lands og menningu þjóðar og því fylgir að fara að lögum og kjarasamningum. Svo einfalt er það! Kjarasamningar í ferðaþjónustu Nokkuð er rætt um hagræð-ingu í rekstri framhalds-skólanna þessa dagana. Hæst ber þar umræðu um sam- einingu skóla. Annars vegar FÁ og Tækniskólans og hins vegar MR og Kvennó. Fleiri athyglisverð mál þarfnast skoðunar á næstunni eins og útboð á þjónustusamningum Versló, Tækniskólans, Menntaskóla Borgar- fjarðar og auðvitað á nýjum þjón- ustusamningi Fjölbrautaskólans við Ármúla, ef færa á rekstur hans úr höndum ríkisins til einkaaðila. Lítum nánar á þessi mál hvert fyrir sig: 1. Sameining FÁ og Tækniskólans. Ef til stendur að einkavæða FÁ, sem er áhugaverður kostur, verður slík einkavæðing að fara í útboð á Evrópska efnahagssvæðinu sam- kvæmt lögum um opinber innkaup nr. 120/2016 sem tóku gildi í lok síðasta árs. Það ferli sem skilgreint er í lögunum útilokar með öllu að ráðherra eða ríkisstjórn geti haft það í hendi sér fyrir fram hvaða aðili tekur við rekstri skólans. Þar með er útilokað að Tækniskólinn hafi ein- hverja sérstöðu ef af þessu verður. Því er óraunhæft á þessu stigi að tala sérstaklega um sameiningu þessara tveggja skóla. Ef það er rétt, sem haldið hefur verið fram í fjölmiðlum, að ráðherra hafi rætt sérstaklega við tiltekna einkaaðila um „að taka við skól- anum“ án opins útboðs er það brot á þessum lögum. Í 1. grein laganna segir: „Markmið með lögum þessum er að tryggja jafnræði fyrirtækja, stuðla að hagkvæmni í opinberum rekstri með virkri samkeppni og efla nýsköpun og þróun við innkaup hins opinbera á vörum, verkum og þjónustu.“ Lögin ná til kaupa ríkisins á þjónustu yfir kr. 50 milljónum. Ekki þarf því fleiri orð um þetta atriði. Að auki er alls ekki óhugs- andi að erlendir aðilar vilji koma að skólarekstrinum sem gæti orðið lyftistöng fyrir íslenskt mennta- kerfi. 2. Sameining MR og Kvennó. Um það er lítið annað að segja en að sameining tveggja ríkisstofnana er einfalt mál sé það vilji stjórnvalda (ráðherra, ríkisstjórnar og Alþingis). Ekkert útboð þarf til. Bara einfalt samþykki þessara aðila. Auðvitað má þó búast við mótmælaöldu eins og alltaf þegar einhverju á að breyta í blessuðu menntakerfinu. Hinu verður ekki á móti mælt að þessir skólar eru um margt líkir bóknáms- skólar sem höfða til svipaðs nem- endahóps, þ.e. nemenda sem eru að leita þekkingar í raungreinum, tungumálum og félagsvísindum og eru á leið í nám í háskóla. Engin sérstök sérhæfing er aug- ljós sem líkleg er til að tapast verði skólarnir sameinaðir, þótt hags- munaaðilar beggja skóla muni vafalítið benda á ýmislegt. Verður því ekki annað séð en að sameining geti verið skynsöm ákvörðun enda einfalt að spara með því mikið fé. Útboð á rekstri þessara skóla mundi enn fremur vera líklegt til að auka nýsköpun og bæta rekstur. Það er mikilvægt. 3. Þjónustusamningar ríkisins við Versló (samningur rennur út 31. desember 2017), Tækniskól- ann (samningur rennur út 31. maí 2018) og Menntaskóla Borgarfjarðar (samningur rennur út 31. desember 2017) renna út á næstu mánuðum. Í lögum nr. 120/2016 eru skýr ákvæði um að slíkan rekstur eigi að bjóða út. Ekki er þó óhugsandi að stjórn- völd reyni með tæknilegum brellum eða reglugerðum að forðast útboð. Slíkir tilburðir nú eru óskynsam- legir og stríða gegn lögunum. Um leið yrði fórnað tækifæri til endur- skipulagningar á því skólastarfi sem þessir skólar sinna og reyndar til endurskipulagningar á íslenska framhaldsskólakerfinu öllu. Ljóst er að spennandi tímar með einstökum tækifærum eru fram undan í íslenskum framhalds- skólum. Vonandi bera stjórnvöld gæfu til að nýta þessi tækifæri okkur öllum til hagsbóta en þó fyrst og fremst til hagsbóta fyrir ungmenni framtíðarinnar. Að þjóna þeim hópi sem best með vönduðu og fjölbreyttu skólastarfi er auðvitað það sem þetta allt snýst um. Því mikilvæga atriði má ekki gleyma við vörslu sérhagsmuna. Sameining framhaldsskóla og útboð þjónustusamninga Gunnar Árnason starfar við arktektúr og hönnun Ólafur Johnson fyrrverandi skólastjóri Ef það er rétt, sem haldið hefur verið fram í fjöl- miðlum, að ráðherra hafi rætt sérstaklega við tiltekna einkaaðila um „að taka við skólanum“ án opins útboðs er það brot á þessum lögum. Þegar betur er að gáð kemur í ljós að búið er að forgangs- raða röngum lista – listanum yfir fýsilegustu kaupendurna hefur verið raðað upp sam- viskusamlega og áherslur þeirra og kröfur eru með þeim hætti, að listi hins opin- bera yfir fyrirtæki sem mikið ríður á að losa sig við, er listi arðbærra fyrirtækja í eigu almennings. Indriði H. Þorláksson formaður Leið- sagnar – félags leiðsögumanna Jakob S. Jónsson formaður kjara- nefndar Leið- sagnar – félags leiðsögumanna Það er ekki viðunandi að kjarasamningar starfsfólks í stærstu undirstöðuatvinnu- grein þjóðarinnar séu virtir að vettugi og slegið sé af kröfum um faglega þjónustu. 3 . j ú l í 2 0 1 7 M Á N U D A G U R10 s k o ð U N ∙ F R É T T A B l A ð i ð 0 3 -0 7 -2 0 1 7 0 4 :1 1 F B 0 4 0 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 D 3 C -A B E 0 1 D 3 C -A A A 4 1 D 3 C -A 9 6 8 1 D 3 C -A 8 2 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 4 0 s _ 2 _ 7 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.