Fréttablaðið - 03.07.2017, Blaðsíða 9
569 6900 08:00–16:00www.ils.is
Kynningarfundur um húsnæðisstuðning fyrir
fyrstu kaupendur, þriðjudaginn 4. júlí frá kl. 12–13
Íbúðalánasjóður heldur kynningarfund um húsnæðis-
stuðning hins opinbera fyrir fyrstu kaupendur sem nýverið
tók gildi. Á fundinum verður allað um úrræðið, hverjum
það gagnast og vanda þeirra sem vilja eignast húsnæði við
núverandi markaðsaðstæður.
Fundurinn verður haldinn í fundarsal Íbúðalánasjóðs,
Borgartúni 21. Allir eru velkomnir og við hvetjum fyrstu
kaupendur sérstaklega til að mæta á fundinn.
Kemst fólk inn
á fasteigna-
markaðinn?
Í dag
Guðmundur
Andri Thorsson
Stúlkurnar sem urðu fyrir barðinu á Róberti Árna Hreiðarssyni munu aldrei endurheimta
glataða æsku. Aftur á móti stendur
til að endurheimta svonefnda æru
mannsins. Og lögmannsréttindi,
sem Hæstiréttur veitti honum
með þeim orðum meðal annars í
úrskurði sínum að „það skipti […]
hann miklu máli að geta skilið við
þann kafla í lífi sínu sem leitt hafi til
dómsins á árinu 2008“.
Virðingarstaða
Lögmennska er virðingarstaða
í samfélaginu, valdastaða gagn
vart alls konar fólki sem stendur
misvel að vígi, trúnaðarstaða þar
sem viðkvæm mál koma upp og
reynir á mannkosti og heiðar
leika viðkomandi manns. Það eru
ekki grundvallarréttindi að fá að
gegna lögmennsku – hafi maður
einu sinni verið sviptur þeim –
heldur forréttindi. Ekki blasir við
að dæmdur barnaníðingur sé vel
fallinn til slíkra starfa.
Um þetta mál hefur þegar verið
skrifað margt og sennilega litlu
við það að bæta. Hins vegar er það
umhugsunarefni fyrir okkur öll að
í þessu máli birtist óvenju skýrt
hvernig lagaleg niðurstaða máls
getur farið í bága við sómakennd og
siðferðisviðmið alls þorra fólks; það
er óheppilegt fyrir samfélag þegar
slíkt gerist oft.
Það blasir við nánast hverjum
manni – nema ef til vill Róberti og
lögmanni hans – að hann fær ekki
„uppreist æru“ si svona, nema í
þröngum lagaskilningi, og hugsan
lega í litlum hópi vina og velunnara.
Orðspor manns, sæmd – æra – er
ekki nokkuð sem aðeins er komið
undir lögum. Og sæmd sína geta
menn ekki sótt til dómstóla. Hvað
sem kann að vera átt við með
orðinu „æra“ í hinum stirðnaða og
gamla lagatexta um „uppreist æru“
þá er það samt sem áður svo, að
sæmd öðlumst við með framgöngu
okkar, orðum og verkum; því orði
sem af okkur fer. Sæmd er einfald
lega það álit sem annað fólk hefur
á okkur, hafi það á annað borð ein
hverjar skoðanir á manni, sem auð
vitað er sjaldnast, og kannski best.
Þó að sakamaður komi út úr fang
elsi frjáls maður, búinn að afplána
frelsissviptingu vegna glæpa sinna,
á viðkomandi alveg eftir að byggja
upp mannorð sitt í samfélaginu;
þó að sérhver eigi svo sannarlega
skilið nýtt tækifæri til að verða nýt
manneskja eftir slíka afplánun,
þá verður viðkomandi sjálfur að
sýna meðborgurum sínum fram á
að vera orðinn nýr og betri maður.
Besta leiðin til þess er ekki endilega
að sækjast eftir mannvirðingum á
borð við lögmannsstarf.
Við erum það sem við gerum
Það er mikilvægt að við gerum
okkur grein fyrir því að lögin hafa
sínar takmarkanir í siðferðilegum
og heimspekilegum álitamálum.
Dómar eru ekki einhlítur mæli
kvarði á rétt og rangt. Þeir geyma
mat (vonandi) færustu manna á
því hvernig tekist hefur að sanna
ávirðingar og þó að manneskja
teljist saklaus uns sekt er sönnuð
á enginn heimtingu á því að njóta
sæmdar í samfélaginu. Álit annarra
á okkur ræðst af verkum okkar og
framgöngu – persónu okkar – við
erum það sem við gerum. Lögin
segja hins vegar að það sé ekki
endilega svo – heldur séum við það
sem sem við verðum uppvís að því
að gera.
Þetta eru takmarkanir lögfræð
innar. Hún nær ekki utan um
siðferðileg álitamál nema upp að
vissu marki. Áður en Róbert Árni
var dæmdur sagðist hann saklaus
af ásökunum (og hefur aldrei sagt
annað). Hann var líka saklaus í
skilningi laganna – en hann var
ekki saklaus, það vitum við nú. Við
erum það sem við gerum – og það
sem meira er: við berum það sem
við gerum. Allt sem við gerum fylgir
okkur og mótar okkur – meira að
segja þó að það hafi aldrei komist
upp.
Róbert mun aldrei geta „skilið við
þann kafla í lífi sínu sem [leiddi]
til dóms yfir honum 2008“ frekar
en annað fólk sem þessu ömur
lega máli tengist. Hann getur ekki
létt af sér byrðunum af verkum
sínum. Það getur enginn gert. Ekki
lögfræðingur hans og ekki heldur
Hæstiréttur. Menn sem hafa gerst
sekir um alvarlega glæpi á borð við
morð, nauðgun eða barnaníð fara
um með þungar byrðar og ekkert
okkar getur létt þessum byrðum af
þeim. Kristnir menn segja að það
geti guð einn gert – aðeins guð geti
veitt fyrirgefningu fyrir svo skelfi
lega glæpi en þá aðeins að undan
genginni sannri og raunverulegri
iðrun.
Aðrir segja sem svo, að fyrir
gefning sé ekki í boði en við séum
hins vegar það sem við gerum, og
þar á meðal það sem við gerum
næst. Við getum ekki breytt því sem
við höfum áður gert af okkur en við
getum valið um hitt sem við gerum
næst, og þannig getum við hægt og
hægt reynt að lifa frá degi til dags
og létta þunga daganna með því
að reyna að breyta rétt og hætta að
réttlæta glæpi, eins og við vitum að
kynferðisglæpamenn eru sérlega
gjarnir á að gera. Hvað sem því öllu
líður þá er sjálf afplánun dóms
aðeins fyrsti liður í því langa og
stranga ferli fyrir barnaníðinga að
lifa með sér og verkum sínum.
Við berum það sem við gerum
0
3
-0
7
-2
0
1
7
0
4
:1
1
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
3
C
-B
0
D
0
1
D
3
C
-A
F
9
4
1
D
3
C
-A
E
5
8
1
D
3
C
-A
D
1
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
4
0
s
_
2
_
7
_
2
0
1
7
C
M
Y
K